Fyrirhuguð rafíþróttamót í Laugardal „fordæmalaus landkynning fyrir Ísland“

Formaður Raf­í­þrótta­sam­tak­anna gerir ráð fyrir að tugir millj­óna muni fylgj­ast með raf­í­þrótta­mót­unum sem fara fram í Laug­ar­dals­höll í maí. Mikil áhersla er lögð á sótt­varnir í tengslum við komu og dvöl kepp­enda hér á landi.

Meira bil verður á milli keppenda á rafíþróttamótunum sem fram fara í Laugardalshöll í maí heldur en var á þessu móti sem haldið var fyrir kórónuveirufaraldur.
Meira bil verður á milli kepp­enda á raf­í­þrótta­mót­unum sem fram fara í Laug­ar­dals­höll í maí heldur en var á þessu móti sem haldið var fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur. Mynd: EPA

Raf­í­þrótta­mótin tvö sem fara munu fram í Laug­ar­dals­höll í maí eru sam­bæri­leg við stærstu íþrótta­við­burði í heim­inum, segir Ólafur Hrafn Stein­ars­son for­maður Raf­í­þrótta­sam­taka Íslands. Alls verða 25 útsend­inga­dagar frá mót­unum tveimur og gert er ráð fyrir því að tugir millj­óna muni fylgj­ast með mót­unum. Keppt verður í League of Legends á Mid-Season Invitational mót­inu (MSI) dag­ana 6. til 23. maí og strax í kjöl­farið hefst keppni í tölvu­leiknum Valorant. Mótin eru haldin af einu stærsta tölvu­leikja­fyr­ir­tæki heims, Riot Games.

Ólafur segir að Riot Games eigi mikið undir því að sótt­varnir kepp­enda og starfs­fólks séu tryggðar og að allt gangi vel fyrir sig. Hjá fyr­ir­tæk­inu vinni margt starfs­fólk sem komið hefur að keppn­is­haldi hjá stóru íþrótta­deild­unum í Banda­ríkj­unum í skugga kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og því sé mikil þekk­ing til staðar um hvernig eigi að standa að fram­kvæmd­inni.

Engar undanþágur frá sóttvörnum fyrir keppendur

Öll umgjörð móts­ins er unnin í náinni sam­vinnu við sótt­varna­yf­ir­völd hér á landi að sögn Ólafs. Von sé á um 450 manns alls staðar að úr heim­inum vegna móts­ins og munu kepp­endur og starfs­fólk þurfa að fara hefð­bundna leið við kom­una til lands­ins. Þátt­tak­endur munu því þurfa að skila inn nei­kvæðu PCR vott­orði fyrir kom­una til lands­ins, fara í tvö­falda sýna­töku og sótt­kví á milli.

Búast má við því að kepp­end­urnir muni þurfa að fylgja ströngum reglum móts­hald­ara er varðar ferða­lög, þrátt fyrir að ferða­frelsi þeirra verði óskert að lok­inni seinni sýna­töku.

„Þeir munu upp­fylla í raun­inni öll þau skil­yrði til þess að vera frjálsir ferða sinna inn­an­lands. Ef þetta væri hópur sem væri að koma hingað til lands og umgjörðin væri svo þannig að þau hefðu tæki­færi til þess að gera hvað sem er í kringum mótið þá mættu þau fara hvert sem er og gera hvað sem er. En við búumst við því og vitum af því að það verða settar miklu strang­ari reglur heldur en þarf varð­andi allt sem getur sett verk­efnið í upp­nám,“ segir Ólafur.

Kepp­endur munu til að mynda gang­ast reglu­lega undir skimanir, í mesta lagi megi líða 72 tímar á milli skim­ana.

„Þannig að það eru settar mjög miklar hömlur til að tryggja það að þegar búið er að fara í gegnum allar þessar ráð­staf­anir og það er búið að koma öllum hingað að þá sé ekki að ber­ast smit úr sam­fé­lag­inu inn í þennan hóp sem hugs­an­lega grass­erar og setur keppn­ina í hættu.“

Engin líkamleg snerting í rafíþróttum

Á mót­inu sjálfu verður kepp­endum og liðum skipt upp í hólf og við allan und­ir­bún­ing hefur verið gengið út frá því að fjöldi í hólfi þurfi að tak­markast við tíu eða tutt­ugu að sögn Ólafs. Þar af leið­andi hafi þurft mörg þús­und fer­metra flöt til þess að geta haldið mótið enda verða að minnsta kosti tveir metrar á milli kepp­enda og tíu metrar á milli liða.

„Það er kannski einn af kost­unum sem við höfum í raf­í­þróttum að þetta krefst ekki lík­am­legrar nándar og það þarf ekki lík­am­lega snert­ingu þarna á milli. Þannig að sviðið og sviðs­myndin er hönnuð með það í huga að nýta þetta svæði,“ segir Ólafur en líkt og áður segir mun mótið fara fram í Laug­ar­dals­höll.

Gerir ráð fyrir miklum áhuga erlendis frá

„Ég hef alltaf verið að reyna að koma því til skila hvað þetta er for­dæma­laus land­kynn­ing fyrir Ísland,“ segir Ólafur í sam­hengi við þá athygli sem þetta mót fær erlendis frá. Mestur sé áhug­inn á League of Legends í Kína, þar horfi jafn­vel millj­ónir á streymi frá vin­sæl­ustu spil­ur­unum þegar þeir eru að æfa sig heima.

Þá nefnir Ólafur auk þess banda­ríska liðið sem mun taka þátt í MSI mót­inu en það hefur um 20 millj­ónir fylgj­enda á sam­fé­lags­miðlum. „Þeir eru að fara að vera hérna í fjórar vikur að tala um dvöl­ina sína, að tala um Ísland, taka þátt í land­kynn­ingu og annað,“ bætir hann við.

Ef ekki væri fyrir far­ald­ur­inn þá hefði verið rök­rétt að byggja leik­vang fyrir mótið að sögn Ólafs. „Ef við tökum þetta allt saman þá eru þetta ein­hverjir 25 útsend­ing­ar­dagar sem við erum að fara að keyra úr Laug­ar­dalnum okkar þar sem Ísland verður í lyk­il­hlut­verki sem völl­ur­inn fyrir þessa keppni. Það má alveg gera ráð fyrir að áhorf­endur verði tugir millj­óna á hverjum tíma­punkti í öllum riðla­keppn­unum og yfir 100 millj­ónir í und­an­úr­slitum og úrslitum. Áhorfs­lega séð er stærð­argráða við­burð­ar­ins þannig að við værum ekki að halda þetta í venju­legu árferði án þess að eyða tíu til tólf millj­örðum í að byggja þjóð­ar­leik­vang sem tekur 40 til 50 þús­und manns í sæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár