G20: Sérstök bandarísk klausa um loftslagsmál í sameiginlegri yfirlýsingu

19 ríki á G20-ráð­stefn­unni stað­festu stuðn­ing sinn við Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Banda­ríkin hagg­ast ekki í við­snún­ingi sínum. Ráð­stefn­unni lauk í dag.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er sögð hafa unnið gott verk sem fundarstjóri G20-ráðstefnunnar.
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, er sögð hafa unnið gott verk sem fund­ar­stjóri G20-ráð­stefn­unnar. Mynd: EPA

Tuttugu stærstu iðn­ríki heims hafa sam­þykkt opin­bera til­kynn­ingu G20-ráð­stefn­unnar sem lauk í dag. Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands og gest­gjafi í Hamborg þar sem ráð­stefnan fór fram, til­kynnti þetta síð­degis í dag.

[links]Öll ríkin voru sam­stíga nema í lofts­lags­málum þar sem Banda­ríkin kröfð­ust að fjallað væri um auk­inn rétt til að grafa eftir jarð­efna­elds­neyti.

Verkefni Merkel sem fund­ar­stjóri á ráð­stefn­unni var stórt enda þurfti hún að sætta ólík­ari sjón­ar­mið um sam­eig­in­lega hags­muni þess­ara tutt­ugu stærstu hag­kerfa heims en oft áður.

Stefna nýrra stjórn­valda í Banda­ríkj­unum undir for­ystu Donalds Trump var það sem hægði á samn­inga­ferl­inu enda hefur Trump lýst vilja sínum til þess að ein­angra Banda­ríkin í hinum hnatt­ræna heimi.

Merkel er talin hafa unnið nokkuð fræk­inn sigur með því að ljúka ráð­stefn­unni með sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu allra 20 aðil­anna. Henni hefur tek­ist að sýna diplómat­ískan mátt sinn í aðdrag­anda þing­kosn­inga í Þýska­landi í sept­em­ber þar sem Merkel sæk­ist eftir umboði til kansl­ara­emb­ætt­is­ins fjórða kjör­tíma­bilið í röð.

[adspot]

Ráð­stefnan fór fram með mikil mót­mæli í bak­grunni. Mörg þús­und mót­mæl­endur gengu götur Ham­borgar og mót­mæltu. Til átaka kom milli lög­reglu og mót­mæl­enda. Meira en 200 lög­reglu­menn eru slas­aðir og tugir mót­mæl­enda voru teknir höndum.

Bandaríkin gegn hinum

Lofts­lags­málin reynd­ust vera það við­fangs­efni ráð­stefn­unnar sem erf­ið­ast var að lenda. Svo fór að Banda­ríkin fengu því fram­gengt að klausu um jarð­efna­elds­neyti var bætt við.

Klausan er eft­ir­far­andi í laus­legri þýð­ingu: „Banda­ríkin leggja sig fram við að starfa náið með vina­ríkjum og hjálpa þeim að sækja og not­færa sér auð­lindir jarð­efna­elds­neytis á mun hreinni og afkasta­meiri hátt.“

Allar aðrar þjóð­irnar sem áttu aðild að ráð­stefn­unni und­ir­strik­uðu stuðn­ing sinn við Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Banda­ríkin er eina ríkið í heim­inum sem hefur sagt sig frá sam­komu­lag­inu.

Þetta er í fyrsta sinn sem afurð G20-fundar er útli­stuð lofts­lags- og orku­stefna. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Climate Action Network benda á þessa stað­reynd: „Allar þjóðir, nema ein, við­ur­kenna að þetta snýst um að vernda heilsu fólks, standa vörð um líf­ríki jarðar, styðja við aukna hag­sæld og stöð­ug­leika hnatt­ræna kerf­is­ins.“

Nær allir leið­togar G19-ríkj­anna hvöttu Donald Trump til þess að aft­ur­kalla ákvörðun sína um að hætta í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Maraþonfundur Pútíns og Trump

Donald Trump og Vladimír Pútín fund­uðu í fyrsta sinn sem leið­togar Banda­ríkj­anna og Rúss­lands í hlið­ar­sal ráð­stefn­unnar í gær, föstu­dag. Ásamt þeim sátu utan­rík­is­ráð­herrar þjóð­anna fund­inn, þeir Rex Tiller­son og Sergei Lavrov.

Kjarninn fjall­aði um fund þeirra á vefnum í gær.

Donald Trump virð­ist eiga mun meira saman­eig­in­legt með Vladimír Pútín en öðrum leið­togum á ráð­stefn­unni. Pútín og Trump fund­uðu mun lengur en nokkur hafði gert ráð fyrir að þeir gerðu í gær. Fundur þeirra stóð í tvær klukku­stundir og fimmtán mín­útur en hafði upp­haf­lega verið áætl­aður í hálfa klukku­stund.

Trump og Pútín eru sagðir hafa hlegið saman að óvæg­inni fjöl­miðlaum­fjöllun um sjálfa sig. Vel fór á með þeim á fund­inum og þeir töl­uðu saman á bein­skeyttan máta.

Banda­ríski for­set­inn spurði Pútín út í meint afskipti Rússa af kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum á síð­asta ári. Pútín þvertók fyrir að Rússar hafi átt nokkurn þátt í slíkum árásum.

Leið­tog­arnir ræddu lengi um Úkraínu og lögðu lín­urnar fyrir hugs­an­legu sam­starfi í stríð­inu í Sýrlandi.

Frétta­skýr­andi The Economist, Arkady Ostrov­sky, rýndi í fund­inn í sjón­varps­innslagi á BBC News í gær­kvöldi. Hann telur Trump og Pútín hafa sæst á einu lyk­il­at­riði; Þeir ætla ekki að pissa utan í staura hvors ann­ars.

Heiminum skipt í austur og vestur

Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, var eini full­trúi Banda­ríkj­anna fyrir utan Trump sem sat fund­inn. Hann sagði leið­tog­ana hafa fall­ist á að draga ekki gamlar deilur fram í sam­skiptum sínum, til þess að geta unnið saman í mál­efnum Sýrlands, ISIS og Norður-Kóreu.

Tiller­son hélt blaða­manna­fund eftir mara­þon­fund­inn þar sem hann lýsti stemmn­ing­unni fyrir fjöl­miðla­mönnum. Engar mynda­vélar voru leyfðar á blaða­manna­fund­inum svo hér að neðan er hljóð­upp­taka af utan­rík­is­ráð­herr­anum.

Tillerson lýsir stemmningunni á fundinum

Ivanka Trump í stað Donalds

Hið óvana­lega gerð­ist á fundi leið­tog­anna í morgun, laug­ar­dag, að Ivanka Trump, dóttir Donalds, tók sæti hans við leið­toga­borðið. Ivanka sat þar í umboði föður síns við hlið Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Xi Jinping, for­eta Kína.

Ivanka tók sæti föður síns á meðan for­set­inn átti fund með kollega sínum frá Indónesíu í hlið­ar­her­bergi. Ivanka er ráð­gjafi föður síns í Hvíta hús­inu. Það þykir hins vegar óvana­legt að ráð­gjafar taki fremsta sætið á fundum sem þessum. Vanalega eru það hátt skrif­aðir emb­ætt­is­menn sem hlaupa í skarðið.

Á vef BBC seg­ist reyndur frétta­maður ekki muna eftir for­dæmi fyrir þess­ari upp­á­komu. Það var rúss­neskur sendi­full­trúi sem tók mynd af Ivönku Trump við leið­toga­borðið og sendi á Twitter. Færsl­unni var síðar eytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár