Hvað ræða Pútín og Trump?

„Símtöl eru aldrei nægi­leg,“ sagði Vladimír Pútín. Leið­togar Banda­ríkj­anna og Rúss­lands hitt­ust á G20-ráð­stefn­unni.

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, takast í hendur á G20-ráðstefnunni.
Vladimir Pútín, for­seti Rúss­lands, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, takast í hendur á G20-ráð­stefn­unni. Mynd: EPA

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hitt­ust í fyrsta sinn, báðir sem for­setar, á sér­stökum hlið­ar­fundi á ráð­stefnu G20-ríkj­anna í Hamborg í dag.

[links]Leið­tog­arnir ávörp­uðu fjöl­miðla stutt­lega eftir að hafa rætt saman í stutta stund og áður en fundur þeirra hófst. „Við höfum átt gott spjall, og það mun halda áfram. Það eru fullt af spenn­andi hlutum fram undan fyrir bæði Banda­ríkin og Rússland. Það er heiður að vera með þér hérna, herra Pútín,“ sagði Trump.

Pútín átti líka fal­leg orð handa Trump: „Við höfum átt nokkur sím­töl um mörg mik­il­væg alþjóða­mál og um sam­band Rúss­lands og Banda­ríkj­anna. Símtöl eru hins vegar aldrei nægi­leg. Ég er ánægður með að fá að hitta þig loks­ins, herra Trump.“

[adspot]

Sem for­seti hefur Donald Trump sagst vilja bæta sam­skiptin milli Banda­ríkj­anna og Rúss­lands. Hann langar að finna leiðir til þess að vinna með Pútín en það hefur reynst erfitt vegna ágrein­ings um afskipti Rússa af stríð­inu í Sýrlandi og átök­unum í Úkraínu. Þá hafa banda­rísk lög­gæslu­yf­ir­völd kom­ist að nið­ur­stöðu um að Rússar hafi blandað sér í kosn­inga­bar­átt­una fyrir for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum í fyrra, þegar Trump var kjör­inn for­seti. Þá hefur Rússland stillt sér upp með Kína í aðgerðum gegn Norður-Kóreu, þvert á vilja Banda­ríkj­anna.

Trump svar­aði ekki spurn­ingu blaða­manns um afskipti Rússa af kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum.

Stærstu fjöl­miðlar heims hafa fjallað mikið um fyrsta handa­band leið­tog­ana fyrir fyrsta sam­eig­in­lega fund G20-ríkj­anna í morgun. Það var óform­legur hitt­ingur. Á mynd­bands­upp­töku af handa­bandi leið­tog­ana sést hvernig Trump treystir handa­bandið með því að klappa létt á hand­legg Pútíns.

Síðar í sama mynd­skeiði sést Trump klappa Pútín á bakið á meðan báðir brosa.

Forsetar og utanríkisráðherrar

Í fylgd með Trump og Pútín eru utan­rík­is­ráð­herrar land­anna. Það eru þeir Rex Tiller­son og Sergei Lavrov. Saman eru Pútín og Lavrov mun reynd­ari í diplómat­ískum sam­skiptum en þeir Trump og Tiller­son.

Pútín hefur gengt emb­ætti for­seta Rúss­lands síðan árið 2000 og Trump er þriðji for­seti Banda­ríkj­anna sem hann fundar með. Þá er Lavrov tal­inn vera einn brögð­ótt­asti utan­rík­is­ráð­herra heims­ins.

Tiller­son fund­aði síð­ast með Pútín í apríl. Eftir þann fund sagði Tiller­son að það væri lítið traust milli rík­is­stjórna land­anna tveggja. Þetta verður í annað sinn sem Tiller­son sest niður með Pútín, frá því að hafa tekið við emb­ætti í jan­úar.

Umræðu­efni leið­tog­ana á fund­inum í dag munu að öllum lík­indum fjalla um helstu ágrein­ings­efni þess­ara þjóða:

  • Stríðið í Sýrlandi og aðgerðir beggja ríkja þar.
  • Ógnina frá Norður-Kóreu og við­brögð við henni.
  • Átökin í Úkraínu og óþægi­lega nær­veru Rúss­lands við landa­mæri nágranna sinna.

Þá er ekki ólík­legt að Pútín og Trump ræði aðgerðir í lofts­lags­málum og norð­ur­slóða­mál. Jafnvel þó að Rússland sé einn stærsti sölu­að­ili jarð­gass í heim­inum þá hafa stjórn­völd í Kreml ákveðið að standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið.

Það er hægt að lesa margt um fund Donalds Trump og Vla­dimírs Pútín á sam­fé­lags­miðlum. Þetta er þó ekki fyrsti eig­in­legi fundur þeirra, heldur aðeins fyrsti form­legi fund­ur­inn sem þeir eiga augliti til auglitis sem for­setar Banda­ríkj­anna og Rúss­lands.

Loftslagsmál til umræðu í dag

Áður en fundur Pútín og Trump var áætl­aður hófst vinnu­smiðja leið­tog­anna í ráð­stefnusalnum. Þar er rætt um sjálf­bæra þróun, lofts­lags- og orku­mál.

Trump hefur sagst ætla að draga Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um lofts­lags­mál og hlotið gagn­rýni fyrir frá nær öllum þeim ríkjum sem eiga sæti á G20-ráð­stefn­unni. Gest­gjaf­inn Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hefur verið sér­lega gagn­rýnin á þessa ákvörðun Trumps. Það hefur Emmanuel Macron, nýr for­seti Frakk­lands, einnig verið.

Saman eru leið­togar G20-ríkj­anna full­trúar landa heims þar sem 2/3 jarð­ar­búa lifa. Í þessum löndum verður 4/5 af allri lands­fram­leiðslu heims­ins til og verslun á milli þess­ara landa nemur 3/4 af allri milli­ríkja­verslun í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár