Lesið í myrkri Eitt öfga­kennda dæmið um raf­magns­leysi er Líbería en þar hafa ein­ungis tvö pró­sent lands­manna aðgang að raf­magni dags­dag­lega.

Líf án rafmagns

Viðvarandi raforku­skortur er í þróunar­ríkjum þar sem fólk treystir á eldivið eða dýra­úrgang til að hita híbýli sín. Meira en helmingur Afríku­ríkja stendur frammi fyrir rafmagns­kreppu, þrátt fyrir möguleika á að nýta sólarorku, vatnsafl og vindorku. Stríðs­átök og spilling standa í vegi fram­þróunar. Ísland gegnir lykil­hlutverki í nýtingu jarðvarma í Austur Afríku.

Veltu fyrir þér hvernig líf þitt væri án rafmagns. Engin ljós á dimmum vetrar­kvöldum, engin rafmagns­eldavél og ekkert rennandi vatn. Veltu fyrir þér lífs­skilyrðum stúlkna og kvenna sem þurfa alla daga, allan ársins hring, að leggja á sig nokkurra kílómetra göngu til að sækja vatn í fötu og eldivið. Víða í Afríku og Asíu er þetta raun­veruleiki meirihluta barnungra stúlkna og það sem meira er þá er þetta ekki hættulaus leiðangur þegar fáir eru á faralds­fæti snemma í morguns­árið.

Heima við elda konur síðan í kolaofnum eða við varðeld sem veldur mörgum dauðsföllum vegna lunga- og hjarta­sjúkdóma. Stór hluti barns­hafandi kvenna deyr við barnsburð á spítölum og heilsu­gæslu­stöðvum sem skortir allan eðlilegan búnað sem og rafmagn. Án bólu­setninga, sem krefjast rafmagns því mótefni sem og flest lyf þurfa að vera geymd í kæli, eru börn mun líklegri til að deyja úr mörgum skæðum og auðlæknanlegum sjúkdómum.

Nemendur læra við stein­olíulampa sem reglulega valda slæmum brunum þegar olían lekur. Rafmagns­leysi þýðir líka engar sauma­vélar eða tækni­nýjungar, sem auðvelda vinnu í land­búnaði, sem og vatns­dælur sem bæta uppskeruna til muna. Enn ein afleiðing skorts á rafmagni er síðan fjarvera stór­fyrirtækja sem sjá ekki hag sinn í því að vera á svæðum sem erfitt er að stóla á og einmitt af þeim ástæðum eru atvinnu­tækifæri lands­manna færri en ella. Þetta er þó raun­veruleiki sem stór hluti mannkyns býr við.

Reiða sig á eldivið eða dýraúrgang

Rúmlega tveir milljarðar mannkyns búa við skort á rafmagni og tæplega þrír milljarðar manna reiða sig á eldivið eða dýra­úrgang við að hita híbýli sín eða við elda­mennsku. 90% þeirra sem býr við stöðugt rafmangsleysi býr í Suður-Asíu eða sunnan Sahara eyði­merkunnar í Afríku. Eitt öfga­kennda dæmið um rafmagns­leysi er Líbería en þar hafa einungis tvö prósent lands­manna aðgang að rafmagni dags­daglega.

Í Tansaníu telja stjórn­endur stór­fyrirtækja rafmangsleysi vera helstu fyrir­stöðu viðskipta í landinu. Rafmagns­leysi veldur því að viðskipti við þessi svæði eru margfalt minni en þau gætu verið og fram­leiðsla, þar sem vinnu­stundir eru mun færri en við eðlileg raforku­skilyrði, er mun minni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár