Viðskiptaráð og Vilhjálmur Árnason fá frelsisverðlaun frá SUS

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Við­skipta­ráð Íslands hljóta frels­is­verð­laun Kjartans Gunn­ars­sonar, sem eru verð­laun sem Samband ungra sjálf­stæð­is­manna veita á hverju ári þeim sem þau telja hafa „aukið veg frels­is­hug­sjón­ar­innar á Íslandi.“

Vil­hjálmur hlýtur verð­launin vegna frum­varps síns um frjálsa sölu áfengis, en SUS segir hann hafa staðið í langri og strangri mál­efna­bar­áttu „þar sem hann kvik­aði hvergi í rök­festu sinni fyrir auknu við­skipta- og ein­stak­lings­frelsi.“

Um Við­skipta­ráð segir SUS að ráðið hafi lagt fram mál­efna­legar og vel ígrund­aðar til­lögur sem hafi hlotið verð­skuld­aða athygli og reynst gott inn­legg í sam­fé­lags­um­ræð­una. Þá hafi ráðið fjallað um „lág­mörkun opin­berra afskipta, hag­fellt skatt­kerfi og ókosti þess að ríkið standi í sam­keppn­is­rekstri við einka­að­ila.“

Samband ungra sjálf­stæð­is­manna hefur veitt verð­laun sín á hverju ári frá árinu 2007, ein ávallt fá einn ein­stak­lingur og einn lög­að­ili verð­laun. Átta karlar hafa nú fengið ein­stak­lings­verð­launin frá SUS og ein kona, Margrét Pála Ólafs­dóttir, stofn­andi Hjalla­stefn­unnar.

Fyrri verð­launa­hafar:

2007: Andri Snær Magnason og Andríki
2008: Margrét Pála Ólafs­dóttir og Við­skipta­ráð Íslands
2009: Davíð Scheving Thor­steins­son og Hug­mynda­ráðu­neytið
2010: Brynjar Níelsson og InDefence
2011: Ragnar Árnason og Advice
2012: Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son og AMX
2013: Gunn­laugur Jónsson og Samtökin '78
2014: Pawel Bartoszek og Rann­sókn­ar­setur um nýsköpun og hag­vöxt

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár