Verðlagsstofa skiptaverðs finnur annað skjal

Verð­lags­stofa skipta­verðs seg­ist í dag hafa fundið, við frek­ari leit, þriggja blað­síðna vinnu­skjal um karfa­út­flutn­ing. Þetta er skjalið sem sýnt var í Kast­ljósi á RÚV árið 2012. Samherji hefur fengið skjalið og birt það á vef fyr­ir­tæk­is­ins.

Skjáskot af skjalinu í Kastljósþættinum
Skjáskot af skjal­inu í Kast­ljós­þætt­inum Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

Við áfram­hald­andi leit í gögnum Verð­lags­stofu skipta­verðs (VSS) að upp­lýs­ingum sem varða útflutn­ing á karfa á árunum 2010 og 2011 hefur komið í leit­irnar vinnu­skjal með grein­ingu á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýska­lands á árunum 2008 og 2009.

Vinnu­skjalið sem ber yfir­skrift­ina: „Greining á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýska­lands á árunum 2008 og 2009“ var tekið saman af þáver­andi starfs­manni VSS og sent úrskurð­ar­nefnd í apríl 2010. Við­kom­andi starfs­maður lét af störfum hjá Verð­lags­stofu vorið 2010.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Verð­lags­stofu skipta­verðs sem send var út í dag.

Um er að ræða þriggja blað­síðna ódag­sett og óund­ir­ritað skjal með töflum og tölu­legum upp­lýs­ingum um útflutn­ing á óunnum karfa til Þýska­lands árin 2008 og 2009, um með­al­verð og magn í beinni sölu og á mark­aði inn­an­lands þessi ár ásamt yfir­liti um útgefin með­al­við­mið­un­ar­verð á karfa hjá VSS eftir mán­uðum árin 2008 og 2009. Í lok skjals­ins dregur þáver­andi starfs­maður VSS ályktun af þessum gögnum í nokkrum línum, að því er fram kemur í yfir­lýs­ing­unni.

[adspot]

Vistað utan hefðbundins skjalakerfis og fannst ekki

Verð­lags­stofa skipta­verðs sagði í fyrri yfir­lýs­ingu, sem stofn­unin sendi frá sér þann 12. ágúst síð­ast­lið­inn, að VSS hefði tekið saman upp­lýs­ingar um karfa­út­flutn­ing áranna 2010 og 2011 og sent úrskurð­ar­nefnd sjó­manna og útvegs­manna í upp­hafi árs 2012 vegna athug­unar á máli sem þá var til umfjöll­unar hjá úrskurð­ar­nefnd.

Þetta virt­ist vera skjal­ið, sem Helgi Seljan frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu kall­aði „skýrslu“ í umfjöllun Kast­ljóss í mars árið 2012, en Sam­herji kall­aði „skýrsl­una sem aldrei var gerð“ í mynd­bandsum­fjöllun sinni um málið sem birt­ist þann 11. ágúst, eða dag­inn fyrir fyrri yfir­lýs­ingu Verð­lags­stofu.

„Ástæða þess að ekki var getið um til­vist þessa skjals í fyrri yfir­lýs­ingu VSS frá 12. ágúst er að það fannst ekki fyrr en nýlega þar sem það var vistað utan hefð­bund­ins skjala­kerfis VSS á aflögðu gagna­drifi sem núver­andi starfs­menn hafa fæstir aðgang að,“ segir í yfir­lýs­ingu stofn­un­ar­innar í dag.

Samherji birtir skjalið

Samherji hefur birt skjalið á vef­síðu sinni í dag. Þar segir fyr­ir­tækið enn fremur að ekk­ert í skjal­inu styðji „þær ásak­anir sem settar voru fram á hendur Samherja í Kast­ljósi“ nema síður sé.

„Ekkert í hinu nýfundna vinnu­skjali Verð­lags­stofu stað­festir þær ásak­anir sem voru fluttar í þætti Kast­ljóss. Þvert á móti kemur fram í skjal­inu að aðeins lít­ill hluti umrædds útflutn­ings á karfa var veiddur af skipum Samherja. Þá er ekk­ert fjallað um stærð eða gæði karfans í vinnu­skjal­inu,“ segir í yfir­lýs­ingu Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár