Verðlagsstofa skiptaverðs staðfestir tilvist karfagagna

Verð­lags­stofa skipta­verðs hefur stað­fest til­vist gagna um karfa­út­flutn­ing sem voru til umfjöll­unar í Kast­ljós­þætti árið 2012. Um var að ræða trún­að­ar­gögn sem stofn­unin vann og sendi á nefnd­ar­menn í úrskurð­ar­nefnd, en ekki „sér­staka skýrslu“.

Upplýsingarnar um karfaverðið sem Verðlagsstofa skiptaverðs tók saman árið 2012 voru í Excel-skjali og birtust svona í Kastljósi í mars árið 2012.
Upp­lýs­ing­arnar um karfa­verðið sem Verð­lags­stofa skipta­verðs tók saman árið 2012 voru í Excel-skjali og birt­ust svona í Kast­ljósi í mars árið 2012. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV

Verð­lags­stofa skipta­verðs segir rétt að það komi fram að stofn­unin tók saman upp­lýs­ingar um karfa­út­flutn­ing áranna 2010 og 2011 og sendi úrskurð­ar­nefnd sjó­manna og útvegs­manna í upp­hafi árs 2012 vegna athug­unar á máli sem þá var til umfjöll­unar hjá úrskurð­ar­nefnd.

Þetta virð­ist vera skjalið, sem Helgi Seljan frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu kall­aði „skýrslu“ í umfjöllun Kast­ljóss í mars árið 2012, en Samherji kallar „skýrsl­una sem aldrei var gerð“ í mynd­bandsum­fjöllun sinni um málið sem birt­ist í gær. Það virð­ast því áhöld um hvað rétt sé að kalla þetta skjal.[links]

„Um var að ræða excelskjal sem unnið var af starfs­manni Verð­lags­stofu og inni­hélt tölu­legar upp­lýs­ingar sem unnar voru upp úr gagna­grunnum Fiski­stofu. Í skjal­inu er tafla sem sýnirallan útflutn­ing á karfa frá Íslandi yfir fyrr­greint tíma­bil eftir hvaða skip veiddi afl­ann, afla­verð­mæti og magni,“ segir í yfir­lýs­ingu Verð­lags­stofu, sem barst fjöl­miðlum í dag.

Þar er því bætt við að ekki hafi verið skrifuð „sér­stök skýrsla“ af hálfu Verð­lags­stofu af þessu til­efni og að ekki hafi verið lagt efn­is­legt mat á þær upp­lýs­ingar sem voru dregnar saman og sendar úrskurð­ar­nefnd. Hins vegar hafi verið áréttað að um trún­að­ar­gögn væri að ræða.

Samherji fékk þau svör að engin „skýrsla“ hefði verið samin

Samherji spurði deild­ar­stjóra Verð­lags­stof­unnar að því fyrr á árinu því hvort „skýrsla“ hefði verið samin og fékk þau svör að engin „skýrsla“ hefði verið samin, sam­kvæmt því sem fram kom í mynd­bandi fyr­ir­tæk­is­ins í gær. Fyr­ir­tækið hefur síðan krafið Rík­is­út­varpið um að birta „skýrsl­una“ og sakað Helga um „eiga við“ skjalið.

[adspot]

Skjalið sem birt­ist í Kast­ljósi og inni­heldur upp­lýs­ingar um karfa­út­flutn­ing áranna 2010 og 2012 var vissu­lega unnið og sent til nefnd­ar­manna í úrskurð­ar­nefnd sjó­manna og útvegs­manna, en Helgi Seljan hefur sagt að hann hafi afmáð af skjal­inu per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar sem vísað gæti á heim­ild­ar­mann.

Verð­lags­stofa hefur lögum sam­kvæmt það hlut­verk að fylgj­ast með fisk­verði og upp­gjöri á afla­hlut sjó­manna og stuðla að réttu og eðli­legu upp­gjöri á afla­hlut sjó­manna. Verði Verð­lags­stofa vör við mis­ræmi og telji skýr­ingar útgerðar ófull­nægj­andi getur hún skotið mál­inu til úrskurð­ar­nefndar sjó­manna og útvegs­manna.

Til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar skulu fylgja öll gögn sem Verð­lags­stofa hefur aflað um upp­gjör á afla­hlut áhafnar skips svo og nauð­syn­legar upp­lýs­ingar um verð­lagn­ingu sam­bæri­legs afla í hlið­stæðum við­skiptum. Þau gögn sem Verð­lags­stofa safnar og vinnur fyrir nefnd­ina eru trún­að­ar­gögn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár