Stjórnarþingmaður kallar RÚV stjórnmálahreyfingu

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Anton Brink

„Skemmti­leg þessi nýja stjórn­mála­hreyf­ing i Efsta­leit­inu. Kom á fram­færi við okkur boð­skap gam­als vinstri rót­tæk­lings, sem fékk rúm­lega 1% fylgi í frönsku for­seta­kosn­ing­unum, um að kjósa ekki núver­andi stjórn­ar­flokka.“ Þetta segir Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Þar er hann að kalla RÚV, sem hefur starf­semi sína í Efsta­leiti, stjórn­mála­hreyf­ingu. „Gamli vinstri rót­tæk­ling­ur­inn“ sem Brynjar skrifar um er Eva Joly, sem var í við­tali í Kast­ljósi í síð­ustu viku þegar hún var stödd hér­lendis til að vera frum­mæl­andi á mál­þingi sem Píratar stóðu fyrir.

Gagnrýnir umfjöllun um neyðarlánasímtal

Brynjar gagn­rýnir RÚV einnig fyrir að hafa komið „á fram­færi við okkur eld­gömlum upp­lýs­ingum úr Seðla­bank­anum ef við skyldum gleyma hverjir bæru nú ábyrgð á fjár­málakreppu heims­ins“ og spyr svo í kald­hæðni „Hvernig ætli það fjár­magni sig þetta nýja og öfl­uga stjórn­mála­afl?“

RÚV og frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kastljós hefur legið undir mik­illi gagn­rýni frá stuðn­ings­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir að hafa fjallað um áður óbirtar upp­lýs­ingar um hið svo­kall­aða neyð­ar­lána­sím­tal sem átti sér stað milli Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­banka Íslands, í októ­ber 2008. Á meðal þeirra sem hafa sett fram slíka gagn­rýni er Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, sem telur að upp­lýs­ingum um málið hafi verið „plantað“ og að til­gang­ur­inn hafi verið að hafa áhrif á kom­andi kosn­ingar.

Nýjar upplýsingar um óupplýst mál

Neyð­ar­lána­veit­ingin til Kaup­þings hefur verið mikið til umfjöll­unar á und­an­förnum átta árum. En eru margir fletir hennar óljósir og þeir sem að henni komu hafa ekki viljað opin­bera sím­talið þar sem hún var ákveðin til að varpa ljósi á þá fleti. Þá liggur ekki skýrt fyrir í hvað neyð­ar­lánið fór. Sér­stakur sak­sókn­ari hefur haldið því fram að það hafi verið notað í sak­næma gjörn­inga en fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings hafna því alfarið og segj­ast hafa notað pen­ing­anna til að styrkja stöðu bank­ans.

Upp­lýs­ing­arnar, sem komu úr fjög­urra ára vitna­skýrslu sér­staks sak­sókn­ara, höfðu aldrei birst áður. Í skýrsl­unni var til að mynda að finna eft­ir­rit úr sím­tal­inu, en slíkt hefur aldrei áður komið fyrir sjónir almenn­ings þar sem Geir hefur neitað að sím­talið verði gert opin­bert. Auk þess kom fram að Davíð Oddsson hafi vís­vit­andi tekið sím­talið við Geir í gegnum síma und­ir­manns síns til að tryggja að það yrði hljóð­ritað og að Davíð hafi sagt við und­ir­mann­inn að hann teldi að neyð­ar­lánið sem var verið að veita Kaup­þingi, alls upp á 500 millj­ónir evra, myndi ekki end­ur­greið­ast. Um var að ræða alla nettó gjald­eyr­is­vara­forða Seðla­bank­ans.

Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu á öllum flötum neyð­ar­lána­máls­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár