Tillagan um breytingu á skilyrðum fyrir stjórn FME kemur frá fjármálaráðuneytinu

Starfs­hópur fjall­aði um hæf­is­skil­yrði þeirra sem geta tekið sæti í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í frum­varpi Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um breyt­ingu á lögum vegna afnáms á upp­reist æru, og lagt var fram á Alþingi á dög­unum, er ákvæði sem lítur að breyt­ingu á lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi.

Eins og greint var frá á vef Kjarnans þá hefur ákvæðið verið gagn­rýnt í umsögun um frum­varpið, bæði af Alýðu­sam­bandi Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME), en breyt­ingin gerir ráð fyrir því að fólk sem hefur hlotið refsi­dóm geti tekið sæti í stjórn FME tíu árum eftir að það hefur hlotið dóm.

Í umsögn FME segir meðal ann­ars að þessi breyt­ing geti falið í sér orð­spors­á­hættu fyrir eft­ir­litið. „Fjár­­­mála­eft­ir­litið vill því velta því upp hvort það gæti rýrt traust á slíkum ákvörð­unum stjórnar ef þar sætu menn sem hafa hlotið refsi­­dóm,“ segir í umsögn­inni.

Í til­­lögum frum­varps­ins felst afnám kröf­unnar um að stjórn­­­ar­­menn í Fjár­­­mála­eft­ir­lit­inu hafi óflekkað mann­orð.

Í umsögn Alþýð­u­­sam­­bands­ins segir að auk hennar sé „þeim sem gerst hafa sekir um um alvar­­leg brot á hegn­ing­­ar­lög­um, lögum á sviði fjár­­­mála­­mark­aðar eða félaga eða þolað íþyngj­andi stjórn­­­valds­á­kvarð­­anir sem ein­stak­l­ingar eða for­svar­s­­menn fyr­ir­tækja, veitt sjálf­krafa hæfi að liðnum 10 árum eftir hafa verið dæmd­­ir.“

Í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans, kemur fram að þessi breyt­ing er varðar fyrr­nefnd ákvæði hafi komið frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar. „Áður en frum­varpið var sett inn á sam­ráðs­gátt Stjórn­ar­ráðs­ins leit­aði dóms­mála­ráðu­neytið til allra þeirra ráðu­neyta sem höfðu for­ræði á lög­gjöf sem breyta þurfti vegna afnáms upp­reistar æru úr íslenskri lög­gjöf. Ákvæðið sem þú vísar til í fyr­ir­spurn þinn er 33. gr. frum­varps­ins og lítur að breyt­ingu á lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi nr. 87/1998 (til breyt­ingar á 2. málsl. 3. mgr. 6. gr. lag­anna). Sú lög­gjöf er á for­ræði fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem sendi inn til­lögu að skil­yrðum fyrir stjórn­ar­setu í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Þau skil­yrði byggja alfarið á til­lögu starfs­hóps sem skil­aði skýrslu þann 13. júní sl. um lagaum­gjörð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins,“ segir í svar­inu.

Er þar vitnað til starfs­hóps sem í voru Eva H. Bald­urs­dóttir, Haraldur Stein­þórs­son og Leifur Arnkell Skarp­héð­ins­son, lög­fræð­ingar í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Tinna Finn­boga­dóttir, hag­fræð­ingur í sama ráðu­neyti, og Jóhannes Karl Sveins­son hrl., lög­maður, sem jafn­framt var for­maður starfs­hóps­ins.

Frum­varpið er nú til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd sem mun vinna úr þeim umsögnum sem bár­ust og í kjöl­farið tekur Alþingi málið til efn­is­legrar með­ferðar. „Dóms­mála­ráð­herra telur mik­il­vægt að lög­gjaf­inn komi sér saman um það hvernig haga skuli skil­yrðum fyrir emb­ætt­is­veit­ingu eða starfsveit­ingum af ýmsum toga í kjöl­far afnáms upp­reistar æru að teknu til­liti til umsagna hags­muna­að­ila og sér­fæð­inga. Þá ber einnig að líta til þess að í fram­tíð­inni mun gef­ast tæki­færi til að end­ur­skoða slík skil­yrði í hlut­að­eig­andi ráðu­neytum ef menn telja þörf á því eftir að hafa fengið frekara ráð­rúm til þess að skoða þessi mál í ljósi reynsl­unnar,“ segir í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Um þessar mundir er í gangi und­ir­bún­ingur fyrir end­ur­skoðun á lögum um FME og Seðla­banka Íslands, en eins og til­kynnt hefur verið um, þá er stefnt að sam­ein­ingu þessar stofn­anna með það að mark­miði að styrkja eft­ir­lit með fjár­mála­mark­aði á Íslandi.

Hluti af þeirri vinnu og þeim lögum, verður meðal ann­ars að leggja lín­urnar um hæf­is­skil­yrði þeirra sem stýra eft­ir­lit­inu, en Seðla­banki Íslands heyrir undir ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, og mun sam­einuð stofnun gera það einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár