Brotið á mannréttindum Anders Behring Breivik í fangelsi

Brotið er á mann­rétt­indum fjöldamorð­ingj­ans og hryðju­verka­manns­ins Anders Behring Breivik í fang­els­inu sem hann dvelur í í Noregi. Þetta er nið­ur­staða dóm­stóls í Osló.

Aðstæður Breivik í fang­els­inu brjóta gegn grein í mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, sem bannar ómann­úð­lega og nið­ur­lægj­andi með­ferð fanga, segir dóm­stóll­inn. Breivik hefur setið í fang­elsi frá því árið 2011, þegar hann var hand­samaður eftir að hafa myrt 77 ein­stak­linga í Osló og Útey. Hann var dæmdur í 21 árs fang­elsi ári síðar, sem er hámarks­dómur í Noregi, en hægt er að fram­lengja dóm­inn ef hann verður enn tal­inn hættu­legur.

Breivik fór í mál við norska ríkið og hefur haldið því fram að brotið sé gegn rétt­indum hans með því að honum væri haldið í ein­angrun, að leitað væri á honum dag­lega og hann væri hand­járn­aður oftar en eðli­legt væri. Hann kærði einnig ríkið fyrir að bréf sem hann skrif­aði í fang­els­inu væru lesin áður en þau væru send út.

Dóm­stóll­inn féllst á að það væri brot á mann­rétt­inda­sátt­mál­anum að halda honum í ein­angrun. Ríkinu er gert að greiða honum and­virði rúm­lega fimm millj­óna íslenskra króna í máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár