Markaðsvirði Reita 48 milljarðar - bankar enn stórir hluthafar

Reitir, stærsta fast­eigna­fé­lag lands­ins, lauk hluta­fjár­út­boði sínu á dög­unum og hefur Arion banki umsjón með útboð­inu. Samkvæmt til­kynn­ingu félags­ins í morgun varð mikil umfram­eft­ir­spurn í útboð­inu en mark­aðsvirði félags­ins, sam­kvæmt með­al­geng­inu í við­skiptum með bréfin, nemur um 48 millj­örðum króna. Bæði almenn­ingi og fag­fjár­festum bauðst að kaupa bréf í félag­inu en nú er ljóst að fjár­festar fá ekki eins mörg bréf og þeir hefðu viljað.

Sölu­and­virði nemur 6,4 millj­örðum króna, en um 3.600 fjár­festar ósk­uðu eftir að kaupa hluta­bréf í Reitum, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá í morgun. Heild­ar­eft­ir­spurn var 25,5 millj­arðar, en Arion banki seldi sem nemur 13,25 pró­sent af heild­ar­hlutafé í félag­inu.

Verðmætt eignasafn


Eigna­safn Reita saman stendur af mörgum af verð­mæt­ustu fast­eignum lands­ins. Mik­il­væg­asta ein­staka eign félags­ins er Kringlan en félagið á einnig margar verð­mætar eignir mið­svæðis í Reykja­vík. Félagið á stórt eigna­safn í versl­un­ar­hús­næði til við­bótar við Kringl­una, t.d. Holta­garða, Spöngina, Mjóddina og Eiðis­torg. Þá á félagið t.a.m. tvær stórar Icelandair hót­el­eignir; Hilton Reykja­vík hótel og Icelandair Natura.

Tilkoma Reita verður annað fast­eigna­fé­lagið sem bæt­ist í hóp félaga í Kaup­höll­inni. Þar er fyrir fast­eigna­fé­lagið Reginn og von er á Eik fast­eigna­fé­lagi í Kaup­höll­ina á næst­unni. Ef allt gengur að óskum verða bréfin í Reitum tekin til við­skipta í Kaup­höll­inni þann 9. apríl næst­kom­andi.

Fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Reita lauk end­an­lega fyrir skemmstu og komu nokkrir af helstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins með nýtt hlutafé inní félagið. Fjár­hags­lega stendur félagið sterkt eftir þessa end­ur­skipu­lagn­ingu.

Bankar selja lítið
Athygli vekur að af íslensku bönk­unum er það ein­ungis Arion banki sem selur hlut af sínum eign­ar­hlut í útboð­inu. Það teng­ist því lík­lega, án þess að það sé full­yrt hér, að Arion banki er umsjón­ar­að­ili útboðs­ins. Arion banki átti fyrir um 22% í Reitum en seldi 13,25% í útboð­inu og halda eftir 8,7%. Lands­bank­inn á 17,7% hluta­fjár í Reitum en seldi ekk­ert í útboð­inu. Íslands­banki á 3,9% hlut í Reitum og seldi heldur ekk­ert í útboð­inu. Loks á Glitnir hf (slitabú) 6,25% hluta­fjár í félag­inu og seldi heldur ekk­ert af sínum hlut.

Reitir hf
hluta­fjár­eign bank­anna 16/3/2015
Eign fyrir útboð Eign eftir útboð
Arion banki 21,97% 8,72%
Lands­bank­inn 17,66% 17,66%
Íslands­banki 3,86% 3,86%
Glitnir (+ Haf Funding) 6,25% 6,25%
Samtals bankar og slitabú Glitnis 49,74% 36,49%

Í takt við reglur Samkeppniseftirlitsins?


Samkvæmt til­mælum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki að selja eign­ar­hluti í félögum í óskyldum rekstri svo fljótt sem auðið er, en meg­in­reglan í lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki er sú að bankar eigi ekki að stunda óskyldan rekstur. Fjár­mála­eft­ir­litið getur síðan veitt und­an­þágur frá laga­á­kvæðum um þetta, og hefur verið dug­legt við það, jafn­vel þó nú séu brátt sjö ár frá hruni og sér­stökum aðstæðum sem þá sköp­uð­ust í kjöl­farið, þar sem bankar urðu hlut­hafar í mörgum fyr­ir­tækjum.

Í ljósi mik­illar umfram­eft­ir­spurnar er aug­ljóst að end­ur­reistu bank­arnir þrír, Arion banki, Lands­bank­inn og Íslands­banki, hefðu allir getað selt mun meira af sínum eign­ar­hlut, en vilja greini­lega freista þess að eiga eigna­hlut­ina lengur, og fá meira fyrir þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár