Hvernig stöndumst við Parísarsáttmálann?

Íslend­ingar munu að öllum lík­indum ekki stand­ast skuld­bind­ingar Kyoto-bók­un­ar­innar og mikið átak þarf að gera til þess að við getum stað­ist Par­ís­ar­sátt­mál­ann. Hér er önnur grein í greina­röð á vegum Circular Solutions um umhverf­is­mál á Íslandi.

Íslend­ingar munu að öllum lík­indum ekki stand­ast skuld­bind­ingar Kyoto-bók­un­ar­innar fyrir árið 2020 og þurfa að hafa mikið fyrir því að stand­ast Par­ís­ar­sátt­mál­ann fyrir árið 2030. Í skýrslu hag­fræði­stofn­unar eru settar fram mót­væg­is­að­gerðir í sjö geirum ásamt land­græðslu, skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis (1). Geir­arnir sjö eru; orku­fram­leiðsla, sam­göngur, fisk­veiðar, fiski­mjölsvinnsla, land­bún­aður, með­ferð úrgangs og iðn­aður.

Mótvægisaðgerðir fyrir Parísarsáttmálann

Í fyrstu fjórum geir­unum er lagt upp með í skýrsl­unni að draga veru­lega úr notkun jarð­efna­elds­neytis með því að hámarka raf­væð­ingu. Þetta á aðal­lega við um bíla­flot­ann og fisk­mjöls­verk­smiðjur. Einnig er lagt upp með að auka notkun elds­neytis sem unnið er úr lífmassa við fisk­veiðar (1). Svo þarf að auka bind­ingu koltví­sýr­ings frá jarð­varma­virkj­unum. Í land­bún­aði þarf að bæta fóður til þess að draga úr fram­leiðslu met­ans, loft­þétta geymslu búfjár­á­burðar, fram­leiða metan­gas úr mykju og að auka notkun búfjár­á­burðar á kostnað köfn­un­ar­efn­is­á­burðar (1). Og helstu leiðir til með­höndl­unar á úrgangi eru urðun, jarð­gerð, metanga­svinnsla, brennsla og end­ur­vinnsla (1).

Það góða við þessar lausnir er það að þær eru margar hverjar til­búnar og nokkur reynsla er komin á sum þeirra hér inn­an­lands og erlendis. Það er til dæmis fyrir löngu orðið eðli­legt að sjá raf­magns­bíla á götum lands­ins og notkun búfjár­á­burðar er alda­gömul aðferð. Svo er einnig búið að raf­væða nokkrar fisk­mjöls­verk­smiðjur. En til þess að klára þá raf­væð­ingu þarf að styrkja raf­magns­flutn­ing á ákveðnum svæðum lands­ins. Svo hefur metangas­fram­leiðsla verið á Álfsnesi um þó nokk­urt skeið úr urð­uðu sorpi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og eru all­nokkrir bílar knúnir áfram af þeirri afurð. En hvað varðar elds­neyti úr lífmassa á fisk­veiði­skip vantar meiri reynslu og halda þarf áfram með rann­sóknir á bind­ingu koltví­sýr­ings frá jarð­varma­virkj­unum.

Það sem er kannski enn skemmti­legra en að þessar lausnir eru til, er að þær tengj­ast hver annarri. Það er hægt að binda koltví­sýr­ing frá jarð­varma­virkj­unum með því að dæla niður og binda í basalt eins og Orka nátt­úr­unnar hefur unnið að (2). En það er líka hægt að fanga hann og búa til met­anól með því að nota raf­magn til þess að raf­greina vetni úr vatni eins og Carbon Recycling hefur verið að gera (3). Metanól sem er fram­leitt á þennan máta má einnig kalla raf­elds­neyti (e. electrofuel) og hefur verið nefnt ásamt met­ani frá bæði urð­uðu sorpi og mykju frá land­bún­aði sem fram­tíð­ar­lausn fyrir Danmörku og jafn­vel Evrópu í held. Þar sem met­anól og metan er notað á þau far­ar­tæki sem ekki er auð­velt að raf­væða, t.d. lang­ferða­bíla, flug­vélar og fiski­skip (4, 5). Þetta á að öllum lík­indum við fram­tíð Íslands í þessum málum sömu­leiðis og tengj­ast því allir þessir geirar saman og það þarf að skipu­leggja heild­stæða vinnu að þeirri fram­tíð með sam­vinnu í öllum þessum geirum.

Rafmagnsbíll í hleðslu
Raf­magns­bíll í hleðslu

Útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá iðn­aði á Íslandi kemur aðal­lega frá álf­ram­leiðslu, kís­il­verum og járn­blendi. Í skýrslu hag­fræði­stofn­unar er ekki tal­inn mik­ill mögu­leiki í því að minnka útblástur frá álverum fyrir árið 2030 (1). En föngun kolefnis og notkun eðal­raf­skauta gæti orðið fýsi­legur mögu­leiki um og eftir árið 2030. Föngun kolefnis getur einnig orðið lausn fyrir útblástur frá járn­blendi­fram­leiðslu og kís­il­verum en fýsi­leiki þess er enn óljós og kallar á rann­sóknar- og þró­un­ar­vinnu (1).

Í dag er hægt að auka notkun á timb­ur­k­urli í járn­blendi­verk­smiðjum en í byggðu kís­il­veri og fyr­ir­hug­uðum kís­il­verum stendur til að hámarka notkun lífmassa í fram­leiðsl­unni þar sem starfs­leyfi eru miðuð bestu fáan­legu tækni. Þannig er ólík­legt að útstreymi frá kís­il­verum minnki fyrir árið 2030 miðað við áætlun. En með mik­illi þró­un­ar­vinnu er fræði­lega hægt að fram­leiða kís­il­málm með raf­grein­ingu. Hins­vegar, ef jarð­efna­elds­neyti er ekki notað í fram­tíð­inni í sam­göngum og fisk­veiðum, gæti verið þörf á því kolefni sem hægt er að fanga í iðn­aði til þess að búa til raf­elds­neyti og tryggja þannig 100% inn­lenda fram­leiðslu. Þar sem það er ólík­legt að inn­lend fram­leiðsla á lífmassa sé nægi­lega mikil til þess að svara allri þörf. Þannig gæti stór­iðjan orðið hluti af lausn­inni.

Mót­væg­is­að­gerð­irnar sem eru nefndar í skýrslu hag­fræði­stofn­unar (1) eru ekki ein­skorð­aðar við að minnka losun heldur er mögu­leiki á að auka bind­ingu kolefnis með land­græðslu, skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis. En þessa vinnu er líka hægt að nota til þess að styðja við mót­væg­is­að­gerðir í öðrum geirum atvinnu­lífs­ins, til dæmis með því að auka ræktun á lífmassa sem má nota við fram­leiðslu á líf­dísil eins og ráð­gjafa­hópur undir for­ystu Jóns Bern­ód­us­sonar fag­stjóra rann­sókna og þró­unar hjá Sam­göngu­stofu lagði til fyrir um tveimur árum (6), og/eða fram­leiðslu á raf­elds­neyti með því að auka fram­boð á kolefni til þess að vinna með. Það ætti því að vera ljóst að vinna þarf sam­eig­in­lega heild­stæða mynd þar sem allar þessar lausnir og mót­væg­is­að­gerðir eru skipu­lagðar saman.

Framtíðarlausnin er samtenging helstu iðnaðargeira landsins
Fram­tíð­ar­lausnin er sam­teng­ing helstu iðn­að­ar­geira lands­ins

En með öllum þessum mót­væg­is­að­gerðum sem nefndar hafa verið hér að ofan og miðað við núver­andi áætlun í bind­ingu verður heild­ar­út­streymið ein­ungis 18 pró­sent lægra en árið 1990. Aftur á móti ef ráð­ist verður í end­ur­heimt vot­lendis og umfang land­græðslu og skóg­rækt yrði tvö­földuð miðað við núver­andi áætlun og ef aðgerð­ar­hraði á sviði land­notk­unar er fjór­fald­aður er mögu­legt að nettóút­streymið verði 39 pró­sent lægra en árið 1990 (1). Það þarf því gríð­ar­legar fjár­fest­ingar og breyt­ingar í þessum sjö grunn­geirum og gríð­ar­lega aukn­ingu í bind­ingu kolefnis til þess eiga mögu­leika á að minnka nettóút­streymi á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum fyrir árið 2030 í sam­ræmi við Par­ís­ar­sátt­mál­ann.

Þessi grein er önnur af sex í greina­röð um umhverf­is­mál á Íslandi. Í næstu greinum munum við fjalla hvernig hægt er að minnka umhverf­is­á­hrifin og um umhverf­is­mál í sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og svo fram­vegis.

Um höfunda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

circular solutions

Mest lesið undanfarið ár