Hvernig minnkum við kolefnisfótspor Íslendinga?

Hvernig geta heim­ili og fyr­ir­tæki minnkað kolefn­is­fót­spor sitt? Hér er þriðja greinin í greina­röð á vegum Circular Solutions um umhverf­is­mál á Íslandi.

Mótvægisaðgerðir heimila

Í grein eftir Jack Clarke, Jukka Heinonen og Juudit Ottelin (1) er kolefn­is­fót­spor neyslu­menn­ingar íslend­inga lýst og talað er um þann sýnd­ar­veru­leika sem er hið umhverf­is­væna Ísland. Þar sem mestu máli skiptir er mengun frá sam­göngum, sem og inn­fluttum mat­vælum, vörum og fatn­aði. Mót­væg­is­að­gerðir fyrir Par­ís­ar­sátt­mál­ann taka á sam­göngu­mál­unum en hann snertir ekki á áhrifum neyslu Íslend­inga á mengun sem á upp­runa sinn í öðrum löndum við fram­leiðslu og flutn­ing á þeim vörum sem enda hér á landi. Í þeirri grein var einnig nefnt að meiri­hluti umhverfis-birgða sem neysla Íslend­inga setur á önnur lönd eru í þró­un­ar­löndum. Í heim­il­is­haldi eru það mat­væli sem hafa mest áhrif á kolefn­is­fót­spor fyrir utan sam­göngur (1). En þegar borið er saman við Evrópu þá er kolefn­is­fót­spor á mat­væli svipað en það er magnið sem er meira hér, það ber því við að minnkun á neyslu og/eða á mat­ar­sóun getur haft mikil áhrif.

Mynd 1. Gróðurhúsaáhrif á hverja orkueiningu frá ýmsum svæðum og löndum.
Mynd 1. Gróð­ur­húsa­á­hrif á hverja orku­ein­ingu frá ýmsum svæðum og löndum.

Einnig eru aðrar lausnir nefndar í grein­inni, t.d. að auka neyslu á mat sem er fram­leiddur inn­an­lands og inn­leiða stefnur varð­andi umhverf­is­vænan mat (1). Aukin neysla á vörum sem eru fram­leiddar inn­an­lands á ekki aðeins við um mat­væli, heldur einnig elds­neyti, föt og aðrar vörur. Ástæðan er að gróð­ur­húsa­á­hrif á hverja fram­leidda orku­ein­ingu er lítil hér á landi í sam­an­burði við flest lönd sem við flytjum þessar vörur inn frá (smá mynd 1). Ef ekki er hægt að fram­leiða vörur sem nýttar eru hér á landi má aðstoða þau lönd sem við höfum áhrif á með jákvæðum fjár­fest­ingum í „grænum innviðum“ og þró­un­ar­að­stoð.

Í því sam­hengi er einnig vert að nefna að sam­kvæmt bók­inni „Drawdown: The most comprehensive plan ever proposed to reverse global warming“ (2) er eitt af því sem fólk og fyr­ir­tæki geta gert til þess að hafa áhrif á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda að styrkja menntun stúlkna í þró­un­ar­löndum. Þar sem aukin menntun stúlkna leiðir af sér færri og heil­brigð­ari börn sem getur hjálpað til að stemma stigu við fólks­fjölgun. Það eru fjöl­margar stofn­anir á Íslandi og erlendis sem hægt er að styrkja í þessum til­gangi.

Einföld jafna er oft sett fram í umræðum um lofts­lags­breyt­ingar og hvað þurfi til þess að ná böndum á það vanda­mál. Hún er marg­feldi og segir; fjöldi fólks marg­fald­aður með þjón­ustu á hverja mann­eskju marg­faldað með orku á hverja þjón­ustu marg­faldað með gróð­ur­húsa­loft­teg­undum á hverja orku­ein­ingu er jafnt og heild­ar­út­blástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Það er skemmti­legt að skoða þessa jöfnu fyrir okkur Íslend­inga, því við erum fámenn þjóð. Hins vegar, eins og nefnt hefur hér að ofan, þá er bæði þjón­usta á hverja mann­eskju mikil og hugs­an­lega orka á hverja þjón­ustu sem á bæði við um inn­lenda orku og orku sem er notuð í að fram­leiða inn­fluttar vörur erlendis. Lítið magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er við hverja orku­ein­ingu, það er að segja þá orku sem er notuð hér á landi við fram­leiðslu á vöru eða þjón­ustu sem við neytum, en ekki endi­lega á inn­fluttum varn­ingi sem er um 60 pró­sent af kolefn­is­spori neyslu okkar sam­kvæmt tölum frá OECD. (4)

Mótvægisaðgerðir fyrirtækja

Líkt og fyrir heim­ilin – sé ekki ein­ungis litið til beins rekst­urs fyr­ir­tækja heldur þátta ofar í virð­is­keðju þeirra (líkt og fram­leiðslu á hrá­efnum) – eru umhverf­is­á­hrif oft tölu­vert meiri en gert er ráð fyrir í fyrstu. Þar skiptir máli hvert land fram­leiðsl­unnar er líkt og bent var á hér að ofan; Flutn­ings­leiðir, hvernig vör­unni er fargað og fleira. Slík vit­neskja er oft ekki á reiðum höndum, en fáir þekkja fram­leiðslu íslenskra fyr­ir­tækja betur en starfs­fólk og sér­fræð­ingar innan þeirra eigin raða.

Það eru margir mögu­leikar sem birt­ast þegar fyr­ir­tæki skoða fyrir alvöru umfang starf­semi þess og hvernig það hefur áhrif á umhverfið hér á landi og erlendis. Hug­mynda­fræði hring­hag­kerfis (e. circular economy) getur komið að góðum notum fyrir fyr­ir­tæki þar sem hægt er að ná utan um sóun á hrá­efnum og auð­lindum, upp­götvað nýtt líf fyrir vörur og hrá­efni með end­ur­nýt­ingu og end­ur­nýjun. Einnig geta fyr­ir­tækið farið á mis við verð­mæti úrgangs og svo fram­vegis.

Vindtúrbínur í dögun
Vind­túrbínur í dögun

Utan­að­kom­andi ráð­gjöf getur því ein­ungis aðstoðað við útreikn­inga á slíkum umhverf­is­á­hrifum, en það er ein­ungis í nánu sam­starfi við þá sem þekkja sína vöru best sem raun­hæfum nið­ur­stöðum er náð. Hér er ekki hægt að hafa eina lausn sem hentar öllum, því lang flest fyr­ir­tæki eru gríð­ar­lega ólík, jafn­vel frá hörð­ustu sam­keppn­is­að­ilum sínum. Séu umhverf­is­á­hrif af rekstri fyr­ir­tækis þekkt opn­ast heimur mögu­leika (5). Aðgengi opn­ast að mörk­uðum með strangt reglu­verk og sem inn­legg í mark­aðs­starf svo fátt eitt sé nefnt. Það mik­il­væg­asta er þó að með slíka vit­neskju í fartesk­inu geta fyr­ir­tæki tekið með­vit­aða ákvörðun um hvaða aðgerðir skal taka til að lág­marka umhverf­is­á­hrif sín, ákvarð­anir byggðar á rök­föstum grunni og vís­inda­legri nálgun (6).

Þessi grein er þriðja af sex í greina­röð um umhverf­is­mál á Íslandi. Í næstu greinum munum við fjalla hvernig hægt er að minnka umhverf­is­á­hrifin og um umhverf­is­mál í sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og svo fram­vegis.

Um höfunda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

circular solutions

Mest lesið undanfarið ár