Lágmarkar mikil hagsæld áhrif á umhverfið?

Útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda virð­ist aukast í takt við hag­sæld og þess vegna er mik­il­vægt að hags­muna­að­ilar beiti sér fyrir fjár­fest­ingu í grænum lausnum. Hér er síð­asta greinin af sex í greina­röð á vegum Circular Solutions um umhverf­is­mál á Íslandi.

Við lifum á áhuga­verðum tímum þar sem umhverf­is­vit­und almenn­ings og fyr­ir­tækja hefur tekið stökk­breyt­ingum. Í sögu­legu sam­hengi þá er gjarnan talað um þrjár öldur umhverf­is­vit­undar. Sú fyrsta var á sjö­unda ára­tugnum þegar umhverf­is­á­hrif frá fram­leiðslu fóru að koma ljós sem vanda­mál og þrýst­ingur fór að mynd­ast frá almenn­ingi. Umhverf­is­stofnun Banda­ríkj­anna (EPA) var síðar stofnuð árið 1970. Á níunda ára­tugnum fóru leið­bein­ingar og reglu­gerðir að mynd­ast, sér í lagi innan Banda­ríkj­anna. P2 (Pollution Prevention) var komið á lagg­irnar innan EPA sem gaf fyr­ir­tækjum leið­bein­andi fyr­ir­mæli um hvernig mætti koma í veg fyrir mengun í stað þess að lág­marka hana. Eftir árið 2000 hefur umhverf­is­vakn­ing almenn­ings verið ráð­andi og fyr­ir­tæki hafa – að ein­hverju leyti – tekið mið af þeirri vakn­ingu (1).

Umhverfiskúrfa Kuznets

Ein kenn­ing sem sett hefur verið fram tengir saman hag­sæld og umhverf­is­á­hrif þjóða. Í stuttu máli er sagt að í upp­hafi, þegar hag­sæld er mjög lítil, sé lít­ill iðn­aður til staðar. Þegar iðn­aður fer að aukast og hag­sæld eykst innan við­kom­andi lands, eykst einnig mengun á hvern fram­leiddan dollar. Þegar ákveðnu marki er náð heldur hag­sældin áfram að vaxa en umhverf­is­á­hrif á hverja fram­leidda ein­ingu byrja að minnka.

Þessa þróun má útskýra á tvennan hátt. Í fyrsta lagi þá hafa efn­aðri þjóðir frekar mögu­leika á að fjár­festa í umhverf­is­vænni tækninýj­ungum og eru (oft­ast) viljugri til þess. Í öðru lagi þá eru efn­aðri lönd gjörn á að úthýsa fram­leiðslu – til dæmis til fátæk­ari landa – og verða í leið­inni með þjón­ustu­mið­aðri efna­hag. Með þessa vit­neskju að leið­ar­ljósi ætti eina mark­mið okkar að vera aukin fram­leiðni enda munu umhverf­is­vænni tímar bíða tak­ist okkur að þéna nægi­lega mikið. Þessi þróun er kölluð umhverfiskúrfa Kuznets (2).

Við nán­ari athugun sést að umhverfiskúrfa Kuznets stenst ekki skoðun að mörgu leyti (3). Í hvora átt­ina sem orsaka­sam­hengið snýr þá virð­ist það vera svo að þró­aðri ríki mengi ein­fald­lega meira á hverja fram­leidda ein­ingu en grípi ekki frekar til umhverf­is­vænni tækni. Hér að neðan má sjá mynd sem tekin er saman af höf­undum þess­arar greinar. Á mynd­inni er not­ast við gögn frá Alþjóða­bank­anum varð­andi útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda (y-ás), þjóð­ar­fram­leiðslu á hvern íbúa (x-ás) og hlut­fall þjóð­ar­fram­leiðslu sem kemur frá fram­leiðslu (stærð kúlna) (4).

Á mynd­inni getur þú ýtt á „Play“-hnapp­inn og séð þróun 198 ríkja með til­liti til þess­ara þátta frá árinu 1990 til 2014. Standist umhverfiskúrfa Kuznets ættu þjóð­irnar að ferð­ast yfir hól á miðjum x-ásnum.

Mynd 1 – Grafísk framsetning umhverfiskúrfu Kuznets

Hafir þú nú skoðað þró­un­ina á mynd­rit­inu er auð­séð að slíkt mynstur líkt og spáð er fyrir í umhverfiskúrfu Kuznets er ekki sjá­an­legt þegar litið er til útblást­urs á koldí­oxíði. Þvert á móti þá virð­ist það svo vera að mengun á hverja fram­leidda ein­ingu auk­ist við frek­ari hag­sæld! Hvergi er að finna þann punkt (eða hann er mjög veikur) þegar þjóðir grípa til sterk­ari aðgerða til að draga úr útblæstri.

Nokkur ríki virð­ast þó vera und­an­skilin þessu, til dæmis Liechtenstein, Sviss og Lúx­em­borg sem þríf­ast að miklu leyti á fjár­mála­mörk­uðum. Almennt séð þá virð­ist sú hug­mynd að aukin hag­sæld leiði að lokum til umhverf­is­vænni lifn­að­ar­hátta ekki stand­ast skoðun.

Hvað með Ísland?

Í nýlegri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands er litið til sama tíma­bils og skoðað er hér að ofan, 1990 til 2014 [5]. Kemur þar fram að „Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda jókst um 26% frá 1990 til 2014…“ einnig er tekið fram að „útstreymi jókst mest frá iðn­aði og efna­notkun, eða um 79%. Útstreymi jókst einnig frá orku­fram­leiðslu (69%), úrgangi (52%) og sam­göngum (39%).“

„Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda jókst um 26% frá 1990 til 2014…útstreymi jókst mest frá iðn­aði og efna­notkun, eða um 79%. Útstreymi jókst einnig frá orku­fram­leiðslu (69%), úrgangi (52%) og sam­göngum (39%).“

Almennt séð hafa Íslend­ingar sýnt fram á að umhverfiskúrfa Kuznets stand­ist alls ekki. Á mestu góð­ær­is­árum okkar höfum við aukið útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, ekki ólíkt flestum öðrum þjóðum, nema meira ef eitt­hvað er. Hefði þróun Íslands verið í takt við hug­mynd­ina um umhverfiskúrfu Kuznets hefði dregið úr útblæstri á Íslandi á tíma­bil­inu frá 1990. Í nán­ast öllum geirum hefur útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist.

Getur verið að þrátt fyrir mikla hag­sæld hafi hinar þró­uðu þjóðir ein­fald­lega ekki náð hápunkti umhverfiskúrfu Kuznets? Að þær eigi eftir að menga enn meira og öðl­ast frek­ari hag­sæld þar til að fjár­fest er í lausnum sem draga úr mengun? Lítum aftur til Íslands.

Í téðri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar er bent á að útblástur í sjáv­ar­út­vegi hafi dreg­ist saman um 43%. Í raun er það aug­ljóst afhverju lág­mörkun útblást­urs skipa sé í eðli sínu hag­kvæm enda er útblást­ur­inn bein­tengdur kostn­að­ar­samri olíu­notkun. En sé aðeins rýnt betur í aðra iðn­að­ar­geira má einnig sjá þætti sem gefa til kynna að Ísland gæti verið á leið­inni niður hinn enda Kuznets-kúrf­unnar.

Til að mynda hefur CarbFix-verk­efni Orku­veitu Reykja­víkur lofað virki­lega góðum nið­ur­stöðum varð­andi bind­ingu koldí­oxíðs frá jarð­varma­virkj­unum (6). Auð­linda­garð­ur­inn á Reykja­nesi er einnig ágætt sýni­dæmi um hvernig auka má orku­nýtni með úthugs­aðri stað­setn­ingu fyr­ir­tækja sem nýta afgangs­varma frá jarð­varma­verum. Þar má til dæmis nefna Bláa lónið, líf­tækni­fyr­ir­tæki og fisk­eldi (í raun hafa hund­ruð starfa skap­ast í tengslum við auð­linda­garð­inn).

Að lokum má benda á að hið opin­bera virð­ist ekki hafa áhuga á að færa okkur niður hægri enda umhverfiskúrfu Kuznets með beinum aðgerðum. Heldur virð­ist það fyrst og fremst vera einka­fram­tak sem drífur áfram umhverf­is­væna nýsköpun og skapar störf tengd henni. Þar spilar mögu­lega inn í þrýst­ingur frá hinu opin­bera og almenn­ingi að ein­hverju leyti. Líkt og bent hefur verið á í fyrri greinum höf­unda (sem finna má hér að neðan) er valdið í höndum fyr­ir­tækj­anna sjálfra að hámarka virði umhverf­is­vænni hátta, hvort sem þau eru í fram­leiðslu eða þjón­ustu.

Þessi grein er sú síð­asta af sex í greina­röð um umhverf­is­mál á Íslandi. Í næstu greinum munum við fjalla hvernig hægt er að minnka umhverf­is­á­hrifin og um umhverf­is­mál í sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og svo fram­vegis.

Um höfunda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

circular solutions

Mest lesið undanfarið ár