Umhverfisáhrif Íslands og Íslendinga

Umhverf­is­á­hrif Íslend­inga eru marg­slungin en leið­irnar til þess að kom­ast undan þeim eru marg­vís­legar. Hér er fyrsta grein í greina­röð á vegum Circular Solutions um umhverf­is­mál á Íslandi.

Stutt er síðan umhverf­is­þing var haldið í Hörpu. Þar voru fjöl­mörg erindi flutt um marg­vís­legar hliðar lofts­lags­breyt­inga, allt frá áhrifum þeirra á Ísland og hvernig við getum best tek­ist á við þann vanda. Það var til að mynda áhuga­vert að heyra frá Moniku Araya frá Kosta Ríka hvernig lítil lönd geta haft áhrif á stór alþjóða­leg vanda­mál með því að leggja til og hrinda stórum hug­myndum í fram­kvæmd. Þannig geta lönd eins og Ísland og Kosta Ríka verið fyr­ir­mynd ann­arra landa þar sem erf­ið­ara er að koma djörfum áætlum í gegnum kerfið. Þá tók maður það til sín þegar Saga Rut Sunn­evu­dóttir og Bríet Fel­ix­dóttir (nem­endur Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð) töl­uðu um skort á umræðu og kennslu fyrir ungt fólk um lofts­lags­mál.

Eftir sem áður var það staða Íslands gagn­vart Kyoto-bók­un­inni og Par­ís­ar­sátt­mál­anum sem stóð helst upp úr. Íslend­ingar horfa fram á að ná ekki að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart Kyoto-bók­un­inni fyrir tíma­bilið 2013-2020 (1). Svo í beinu fram­haldi tekur Par­ís­ar­sátt­mál­inn við fyrir árin 2021 til 2030 og það er ljóst að þörf er á miklum aðgerðum ef við ætlum að stand­ast skuld­bind­ing­arnar okkar gagn­vart honum.

Staðan gagnvart Kyoto-bókunin

Skuld­bind­ing Íslands gagn­vart Kyoto-bók­un­inni gerir ráð fyrir 20% lækkun á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda miðað við árið 1990 (2). Staðan í dag er sú að tæp­lega 30% aukn­ing hefur orðið á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda miðað við árið 1990 (3), það er því ljóst að draga þarf mjög úr losun á rúm­lega tveimur árum. Kristín Linda Árna­dóttir, for­stjóri Umhverf­is­stofn­unar, setti þetta í sam­hengi á umhvef­is­þing­inu með því að bera saman lækkun á losun fyrir árið 2020 við heild­ar­losun frá fisk­veiðum og vega­sam­göngum.

Hún sagði í erindi sínu að lækk­unin þurfi að vera meiri en heild­ar­losun frá fisk­veiðum eða 75% af heild­ar­losun vega­sam­gangna. Ef skuld­bind­ingin er ekki upp­fyllt þarf að kaupa los­un­ar­heim­ildir, en vegna þess hversu langt við erum frá mark­mið­inu og hversu lít­ill tími er til stefnu er nokkuð ljóst að umtals­verðum fjár­munum þarf að eyða í los­un­ar­heim­ildir.

Staðan gagnvart Parísarsáttmálanum

Skuld­bind­ing (og fram­lag) Íslands í Par­ís­ar­sátt­mál­anum mun vænt­an­lega vera nálægt 40% lækkun á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fyrir árið 2030 miðað við árið 2005. Á umhverf­is­þing­inu kynnti Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, pró­fessor í umhverfis- og auð­linda­fræði við Háskóla Íslands, nið­ur­stöður úr nýlegri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands. Í henni eru meðal ann­ars settar fram sviðs­myndir af fram­tíð­inni, þar sem losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2030 er aukin og áætluð 33-79% hærri en árið 1990 (með kolefn­is­bind­ingu) (3). Munurinn á lág­gildi (33%) og hágildi (79%) er aðal­lega hversu mikil aukn­ing verður á stór­iðju á Íslandi yfir þetta tíma­bil. Ef við gerum ráð fyrir því að látið verði af frek­ari stór­iðju­fram­kvæmdum er áætl­unin samt sem áður tölu­vert frá mark­mið­inu árið 2030. Það verður því erfitt að lækka kolefn­is­sporið án mik­illar tækni­þró­unar í stór­iðj­unni.

Eiffelturninn í París.
Eif­fel­turn­inn í París.

Ef við lítum til þess að sam­kvæmt Par­ís­ar­sátt­mál­anum verður stór­iðja skil­greind innan við­skipta­kerfis Evrópu og ekki talin með í los­un­ar­bók­haldi Íslands, þá breyt­ast sviðs­mynd­irnar fyrir árið 2030. Án stór­iðju er losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda áætluð minni, það er að segja 18-12% lægri en árið 1990 (með kolefn­is­bind­ingu) sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrslu Hag­fræði­stofn­unar (3). Þar sem það er ekki búið að fast­móta skuld­bind­ingu Íslands er óvíst hversu mikið af kolefn­is­bind­ing­unni verður hægt að telja til mót­vægis. En án bind­ingar er losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda áætluð 10-16% hærri en árið 1990. Það þarf sem sagt mikið að ger­ast á 12 árum til þess að nálg­ast 40% lækkun. Það er þess virði að nefna að stór­iðj­una ber ekki að öfunda að vera ekki hluti af los­un­ar­bók­haldi Íslands því skuld­bind­ing aðila að við­skipta­kerfi Evrópu verða að öllum lík­indum meiri en fyrir Ísland.

Kolefnisfótspor Íslendinga

En hvað er kolefn­is­fót­spor Íslend­inga? Los­un­ar­bók­hald Íslands fyrir bæði Kyoto-bók­un­ina og Par­ís­ar­sátt­mál­ann mið­ast aðal­lega við fram­leiðslu og er mælt út frá losun sem á sér stað innan landamæra og lög­sögu Íslands. Þó svo að við náum að öllum lík­indum ekki að stand­ast Kyoto-bók­un­ina fyrir árið 2020 hefur losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á fram­leidda ein­ingu (2010 USD af GDP) þó minnkað um 50% á tæpum 30 árum sé litið á tölur frá Alþjóða­bank­anum (4). Íslend­ingar standa sig því vel þegar litið er til þessa, og þó víða væri leitað (Danir standa sig þó betur). En Banda­ríkja­menn, lönd á Evru­svæð­inu og OECD ríkin losa allt að tvö­falt meira magn af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum við hverja fram­leidda ein­ingu heldur en Ísland. Sé litið á mynd 1 má sjá þessa þróun frá árinu 1990 (4).

Útblástur gróðurhúsalofttegunda á framleidda einingu frá ýmsum svæðum og löndum.
Útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á fram­leidda ein­ingu frá ýmsum svæðum og löndum.

Gríð­ar­legum árangri hefur verið náð á stóru svæði heims­ins. Fátæk lönd í Austur-Asíu hafa þó ekki náð slíkum árangri. Á sömu mynd má sjá að hægri y-ás mynd­ar­innar á ein­ungis við þau lönd. Útblástur á því svæði, á hvern fram­leiddan dollar af GDP er nærri því þre­faldur á við Ísland, og tvö­faldur miðað við almennt gildi á Evru­svæð­inu. Velji fyr­ir­tæki fram­leiðslu á því svæði, af kostn­að­ar­á­stæðum eða öðrum, geta þau gert ráð fyrir því að umhverf­is­á­hrifin af iðju sinni verði tölu­vert hærri en þurfa þykir. Á árunum 1990 til 2001 má sjá að miklum fram­förum var náð í fátæk­ari hluta Austur-Asíu, þó tók við tíma­bil á milli 2001 og 2005 þar sem nýtnin gekk til baka og var komin í sama horf árið 2005 og árið 1997 (4).

Útblástur frá mengandi starfssemi.
Útblástur frá meng­andi starfs­semi.

Með alþjóða­væð­ingu eru vörur sem við neytum hér heima hluti af alþjóð­legum virð­is­keðjum og leiðir til los­unar á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum í mörgum öðrum löndum. Gróð­ur­húsa­loft­teg­undir sem eru leystar út í and­rúms­loftið á einum stað hafa áhrif á heims­vísu, þar sem þær lifa mjög lengi í and­rúms­loft­inu og dreifast til­tölu­lega hratt. Það er því vert að athuga hvernig neysla okkar Íslend­inga hefur áhrif á lofts­lags­breyt­ingar í heim­inum. Til þess að gera það er oft stuðst við svo­kall­aðar „inter country input-output (ICIO)“-töflur eða „multi-reg­ion input-output (MRIO)“-töflur sem inni­halda gögn um við­skipti milli landa. OECD reiknar út kolefn­is­fót­spor landa út frá fram­leiðslu þess og neyslu með notkun á ICIO töflum (5).

Það er áhuga­vert að bera saman kolefn­is­spor Íslend­inga út frá fram­leiðslu lands­ins ann­ars vegar og svo neyslu hins vegar yfir tíma­bil. Þá sést mjög vel hvernig efna­hags­leg skil­yrði í land­inu hafa áhrif á kolefn­is­sporið okkar. Til að mynda jókst kolefn­is­spor með til­liti til neyslu á árunum fyrir efna­hags­hrunið árið 2008 og dróst svo saman enn hraðar á hrunsár­unum. Með því að nota tölur frá OECD er einnig hægt að finna hversu mikið af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna neyslu Íslend­inga er inn­an­lands og hversu mikil los­unin er erlendis. Frá árunum 1995–2011 var losun erlendis vegna fram­leiðslu á vörum fyrir neyslu Íslend­inga um það bil 60%.

Kolefnisfótspor Íslendinga útfrá framleiðslu og neyslu, ásamt skiptingu á losun innanlands og erlendis
Kolefn­is­fót­spor Íslend­inga útfrá fram­leiðslu og neyslu, ásamt skipt­ingu á losun inn­an­lands og erlendis

Í grein sem kom út á árinu í vís­inda­tíma­rit­inu „Journal of Cleaner Production“ eftir Jack Clarke, Jukka Heinonen og Juudit Ottelin um kolefn­is­fót­spor Íslend­inga kemur fram að þrátt fyrir að hér sé umhverf­is­væn raf­orka og hús­hitun svipar kolefn­is­fót­spor Íslend­inga til þró­aðra landa sem geta ekki státað af „hreinni“ orku (6). Í þeirri grein kom einnig fram að ástæðan væri aðal­lega vegna auk­inna sam­gangna og neyslu á inn­fluttum vörum. Ásamt því að nefna að meiri­hlut­inn af kolefn­is­spori Íslend­inga utan land­stein­ana á sér stað í þró­un­ar­löndum við fram­leiðslu á vörum sem Íslend­ingar neyta (6). Umhverf­is­á­hrif Íslands og Íslend­inga eru því mikil og marg­slungin, en leið­irnar sem hægt er að fara til þess að minnka það eru að sama skapi margar og áhuga­verðar. Sú vinna þarf að vera hröð og mark­viss svo við getum haldið áfram að skapa okkur sér­stöðu sem umhverf­is­vænt land og ekki myndi skemma fyrir að vera raun­veru­lega „græn”.

Þessi grein er sú fyrsta af 6 í greina­röð um umhverf­is­mál á Íslandi. Í næstu greinum munum við fjalla hvernig hægt er að minnka umhverf­is­á­hrifin og um umhverf­is­mál í sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og svo fram­vegis.

Um höfunda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

circular solutions

Mest lesið undanfarið ár