Íslenskur landbúnaður – hvar liggja sóknarfæri?

Mikil sókn­ar­færi eru til staðar þegar kemur að minnkun umhverf­is­á­hrifa vegna íslensks land­bún­aðar. Hér er fimmta greinin í greina­röð á vegum Circular Solutions um umhverf­is­mál á Íslandi.

Íslenskur land­bún­aður hefur tölu­verða sér­stöðu á heims­vísu að mörgu leyti. Ímynd vegur þar þungt enda hefur mikil gagn­rýni hefur komið fram á verk­smiðju­land­búnað erlendis, þá sér í lagi innan Banda­ríkj­anna. Hin íslenska ímynd er minna tengd við þessa gagn­rýni og er það af hinu góða.

Íslenskur land­bún­aður virð­ist einnig vera tölu­vert skil­virkur enda má sjá að fram­leiðni í íslenskum land­bún­aði er mjög góð í alþjóð­legum sam­an­burði (1). Starfs­fólk í þessum geira er því sýni­lega mjög hæft og selur vöru sem aðrir eru til­búnir að greiða hærra verð fyrir. Á mynd 1 má sjá sam­an­burð við önnur svæði er lítur að þessum þætti. Íslenskur land­bún­aður skilar tölu­vert meiri ábata en hjá þeim löndum sem við berum okkur saman við, fyrir hvern starfs­mann innan geirans.

Mynd 1. Framleiðni á hvern starfsmann er mjög góð á Íslandi í alþjóðlegum samanburði (1).
Mynd 1. Fram­leiðni á hvern starfs­mann er mjög góð á Íslandi í alþjóð­legum sam­an­burði (1).

Í nýlegri skýrslu Hag­fræði­stofn­unnar Háskóla Íslands er bent á að útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda (GHL) frá sjáv­ar­út­vegi hefur dreg­ist saman um 43% á milli áranna 1990 og 2014. Í land­bún­aði hefur slíkur útblástur minnkað minna og dreg­ist saman um 4% (2). Í skýrsl­unni er bent á að útblástur frá land­bún­aði gæti náð 500 þús­und tonnum árið 2020. Losun GHL í land­bún­aði skipt­ist nokkuð jafnt á milli dýra­halds og tún­ræktar (52% og 48%). Í aðgerða­á­ætlun rík­is­ins frá 2010 er ekki gripið til ráð­staf­ana til að minnka losun GHL vegna með­ferðar úrgangs og er þar gert ráð fyrir að almenn stefna og laga­setn­ing muni leiða til þeirrar minnk­unar (2).

Land­bún­aður er ábyrgur fyrir um 16% af útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda Íslend­inga og þess vegna er umhugs­un­ar­vert hvers vegna hið opin­bera hefur ekki litið til og tekið á þeim mikla útblæstri sem hér á sér stað með mark­vissum hætti. Þó ber að nefna að í júní 2017 var und­ir­rit­aður samn­ingur um verk­efni við mótun veg­vísis um minnkun los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði sem er skref í rétta átt (2).

Til sam­an­burðar er sjáv­ar­út­vegur ábyrgur fyrir 10% og úrgangur 6% af útblæstri á Íslandi. Sé litið til sam­an­burð­ar­ins er útblástur frá land­bún­aði, dreift á hvern íbúa lands­ins, tölu­vert meiri en þeirra landa sem við gjarnan berum okkur saman við. Fyrir útblástur á hvern íbúa standa Norðmenn, Finnar, Þjóð­verjar, Frakkar og Banda­ríkja­menn betur en Íslend­ingar. Sem mögu­lega útskýr­ingu á slæmu kolefn­is­spori íslensk land­bún­aðar hefur verið bent á að staðlar milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál (IPCC) um útblástur frá jórt­ur­dýrum geti gert það að verkum að útblástur íslenskra dýra sé ofmet­inn þar sem „íslensku búfjár­kynin eru nokkru minni en þau búfjár­kyn sem notuð eru til við­mið­unar”. (3) Til þess að fá raun­hæf­ari mynd af útblæstri frá íslenskum land­bún­aði er þörf á nán­ari rann­sóknum sem snúa að íslenskum dýrum og hver raun útblástur frá þeim er.

Mynd 2. Möguleikar íslensks landbúnaðar eru gríðarlegir, og auðsóttir (4).
Mynd 2. Mögu­leikar íslensks land­bún­aðar eru gríð­ar­legir, og auð­sóttir (4).

En hvað geta bændur sjálfir gert?

Það getur vel verið að IPCC sé mögu­lega að ofmeta útblástur frá búfén­aði eða það að staðlar IPCC eigi bein­línis ekki við íslenskan búfénað. Það er þó ekki víst að hvaða marki slíkt ofmat skiptir í raun máli og hvort frammi­staða Íslend­inga verði betri en nágranna­þjóða þrátt fyrir að slíkir útreikn­ingar séu leið­réttir.

Það sem þessi staða býður þó upp á er að bændur taki málin í eigin hendur og geri eitt­hvað í mál­unum. Umhverf­is­á­hrif fram­leiðslu má skoða frá mörgum, misná­kvæmum vís­inda­legum sjón­ar­hornum. Líf­fer­ils­grein­ing (LCA) er til dæmis aðferða­fræði sem skoðar umhverf­is­á­hrif frá fram­leiðslu, en ýmsa aðra mæli­kvarða má nota til að skoða nýtni í land­bún­aði. Orku­arð­semi (EROI) hefur verið notuð (5), en aðrir stuðla, svo sem orku­notkun á hverja fram­leidda ein­ingu, má nota til að greina og bæta fram­leiðslu innan land­bún­aðar í heild sinni en einnig innan ein­stakra býla (6).

Nið­ur­stöður slíkra grein­inga má svo að sama skapi nota til að lág­marka umhverf­is­á­hrif í land­bún­aði ann­ars vegar, án nauð­syn­legrar aðkomu ríkis, og nýta til virð­is­aukn­ingar á íslenskum land­bún­að­ar­vörum hins vegar. Það er svo að slíkar grein­ingar má nota – og þess þarf gjarnan – til að öðl­ast leyfi til að merkja land­bún­að­ar­vörur sem umhverf­is­vænar.

Einnig hefur það oft verið sýnt að neyt­endur eru með­vit­aðir um umhverf­is­á­hrif þeirrar vöru sem þeir versla og greiða gjarnan hærra verð fyrir slíka vöru (7). Hér er því gott tæki­færi fyrir íslenskan land­búnað að minnka umhverf­is­á­hrif sín, án aðkomu stjórn­valda, og á sama tíma auka virði sinnar vöru.

Miklir mögu­leikar liggja í land­bún­aði. Bændur eru í eðli sínu fram­sýnir og þekkja sína fram­leiðslu best sjálfir. Fram­kvæmd grein­inga á umhverf­is­á­hrifum frá búum getur aukið virði land­bún­að­ar­vöru og ekki þarf þrýst­ing frá stjórn­völdum til að sækja þann ávinn­ing.

Þessi grein er fimmta af sex í greina­röð um umhverf­is­mál á Íslandi. Í næstu greinum munum við fjalla hvernig hægt er að minnka umhverf­is­á­hrifin og um umhverf­is­mál í sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og svo fram­vegis.

Um höfunda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

circular solutions

Mest lesið undanfarið ár