Gylfi Zoega: Fjórþætt óvissa framundan

Bóluefni gegn COVID-19 er innan seil­ingar en mikil óvissa ríkir um hvaða áhrif það mun hafa á þjóð­ar­búið. Gylfi Zoega segir ekki hægt að stóla fyrst og fremst á ferða­þjón­ustu til fram­tíðar.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands Mynd: Háskóli Íslands

Góðar fréttir af bólu­efni gegn COVID-19 geta haft ýmis áhrif á efna­hags­lífið, m.a. á gengi hluta­bréfa og á krón­una vegna vænt­inga um að ferða­þjón­ustan muni brátt taka við sér á ný. En þegar búið verður að bólu­setja þorra þjóð­ar­innar verður fyrir hendi óvissa um hvað ger­ist.

Þetta sagði Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun. Hann fór yfir fjóra óvissu­þætti sem framundan eru.

Í fyrsta lagi er að sögn Gylfa óvissa um hversu margir erlendir ferða­menn munu koma hingað á næsta ári því ómögu­legt sé að segja á þess­ari stundu hvaða áhrif far­ald­ur­inn og tak­mark­anir vegna hans muni hafa á áhuga fólks til að ferð­ast til ann­arra landa yfir höfuð.

[adspot]

En áhrifin á þjóð­ar­búið munu líka stýr­ast af því hversu mikið Íslend­ingar eiga eftir að ferð­ast til útlanda. „Það sem hjálp­aði okkur í sumar er að þessi kaup­máttur var læstur inni í land­inu og hélt líf­inu í mörgum atvinnu­greinum,“ segir Gylfi. „En segjum sem svo að Íslend­ingar verði bólu­settir fyrr en stærri þjóðir og þeir ein­fald­lega fari, þá höfum við hvorki erlenda ferða­menn né inn­lenda sem er ekki gott fyrir atvinnu­lífið.“

[links]Gylfi segir að svo bæt­ist við þriðji óvissu­þátt­ur­inn sem sé sá flókn­asti. „Atvinnu­líf hefur verið að breyt­ast síð­ustu ára­tugi með bættri tækni. Líf okkar er að breyt­ast ár frá ári og það virð­ist vera eins og COVID hafi flýtt þessum breyt­ingum mjög mikið. Líf okkar hefur breyst á örfáum mán­uðum sem hefði ann­ars gerst á mörgum árum.“ Hann nefnir fjar­vinnu í þessu sam­bandi og vís­bend­ingar erlendis frá um breyttar áherslur t.d. í hvar fólk velji að búa.

Gylfi segir að þótt jafn­vægi verði í ann­ars vegar ferðum útlend­inga hingað og Íslend­inga til útlanda sé ekki hægt að segja hvaða áhrif þetta nýja ástand, þessi mögu­lega nýj lífs­stíll í sam­fé­lag­inu, muni hafa.

Fjórði óvissu­þátt­ur­inn snýst um efna­hags­á­standið fyrir COVID. „Það er ekki eins og það hafi allt verið í sóm­anum hér í febr­úar,“ segir Gylfi. Atvinnu­leysi sé nú 10 pró­sent en það var orðið 5 pró­sent fyrir COVID og hafði þá farið hækk­andi frá sumr­inu 2018. Gylfi segir að ef far­sóttin hefði ekki komið til væri ekki þar með sagt að engin nið­ur­sveifla hefði orðið. Mörg fyr­ir­tæki, sem voru farin að eiga erfitt í byrjun árs, hefðu vænt­an­lega sagt upp fólki og hætt starf­semi.

Sár gætu myndast

Gylfi segir að búið sé að rann­saka áhrif far­sótta fyrri tíma á efna­hags­lífið og að oft taki það hratt við sér. Sem dæmi tók hann að í kjöl­far spænsku veik­innar hafi orðið gríð­ar­leg upp­sveifla í Banda­ríkj­unum. „Þannig að það er ekki ástæða til að búast við við­var­andi áhrifum [far­sótt­ar­innar] nú en það er samt sár sem mynd­ast. Það eru fyr­ir­tæki sem detta út, það eru fyr­ir­tæki sem eru skuldugri núna en áður.“ Þá séu skuldir rík­is­sjóðs einnig að aukast. „En svo er það sem maður hefur kannski mestar áhyggjur af er að við­kvæm­ustu þjóð­fé­lags­hóp­arnir, eins og krakkar í skólum, sem missa nú eitt ár úr skóla, upp á þeirra félags­þroska og menntun. Þarna gæti verið að mynd­ast annað sár.“

Þannig að þegar „eðli­legt ástand“ næst, með til­komu bólu­efnis, standa eftir meiri skuldir hins opin­bera og fyr­ir­tækja, atvinnu­leysi og mögu­leg áhrif á við­kvæma hópa í sam­fé­lag­inu.

„Far­sóttin lamar þær atvinnu­greinar sem krefj­ast þess að fólk hitt­ist. Þar er ferða­þjón­ustan,“ segir Gylfi. En af því að hún barst svo aftur inn í landið í haust þá hafi öll menn­ing­ar­starf­semi, per­sónu­leg þjón­usta og annar rekstur líka orðið fyrir skelli.

Gylfi segir að það séu greinar sem hafi hagn­ast á ástand­inu. Það eru greinar sem eru að selja vörur sem Íslend­ingar hefðu ann­ars nálg­ast í útlöndum og greinar sem selja vörur sem Íslend­ingar sækj­ast nú eftir af því að þeir eru ekki að fara erlendis. „Það hefur mynd­ast ann­ars konar hag­kerfi,“ segir Gylfi. Almenn­ingur hafi eytt pen­ingum sínum í annað en áður, s.s. í þjón­ustu iðn­að­ar­manna, í bygg­inga­vöru­versl­unum og í fata­verslun inn­an­lands. „Það sem hefur komið í veg fyrir að aðrar greinar hafi orðið fyrir miklu áfalli er í fyrsta lagi það að þessir 200 millj­arðar sem Íslend­ingar eyddu erlendis árið 2019 hafa farið, ekki allir en eitt­hvað af þeim, í kaup á vörum og þjón­ustu hér inn­an­lands.“ Þá hafi ríkið komið með veru­legt fram­lag til að bæta höggið hjá því fólki sem missti vinn­una. Það aftur örvar eft­ir­spurn eftir inn­lendri þjón­ustu og vörum. Einnig hafi vaxta­lækk­anir haft mikil áhrif. Fólk hafi end­ur­fjár­magnað lánin sín.

Gylfi segir að margir bindi vonir við að hótel og veit­inga­staðir muni fyll­ast af erlendum ferða­mönnum í vor og sumar. „En næstu fimm ár er kannski ekki skyn­sam­legt að byggja á þess­ari grein.“

Hann segir ferða­þjón­ust­una hafa verið búhnykk og að gjald­eyr­ir­inn sem hún skap­aði hafi breytt stöðu íslensks efna­hags­lífs – borgað upp erlendar skuldir og fleira. „Þannig að þessi góða staða sem við höfum í dag er að stóru leyti og vegna þess­ara gjald­eyr­is­tekna sem þarna komu inn.“

Samkeppni við láglaunalönd

Ókost­ur­inn við að byggja á ferða­þjón­ustu fyrst og fremst sé að í þeirri sam­keppni er verið að keppa við lág­launa­lönd. „Svo það að hafa ferða­þjón­ustu sem svo mik­il­væga grein í landi þar sem laun eru að með­al­tali mjög há, ójöfn­uður í alþjóð­legum sam­an­burði lít­ill, býður hætt­unni heim. Að það verði órói á vinnu­mark­aði, eins og við sáum, að fólk sem er í lág­launa­störfum í grein­inni er að bera sig saman við aðra. Síðan er samið um launa­hækk­anir. Þær launa­hækk­anir sem samið var um vorið 2019, ég tel alveg víst að þær kipptu grund­vell­inum undan rekstri veit­inga­staða í mið­bænum. Þetta eru ekki margar krónur en samt, ef þú ert að selja mál­tíðir til að greiða starfs­fólk­inu þá þarftu að selja svo mikið til að hafa upp í þennan kostnað.“

Þannig að það að stóla fyrst og fremst á ferða­þjón­ustu til fram­tíðar er ekki skyn­sam­legt að hans sögn. „Það væri mjög gagn­legt að það væri horft aðeins lengra fram í tím­ann og sjá hvernig fyr­ir­tæki eiga að þríf­ast hérna og búa til ein­hverja umgjörð, þar sem passað er upp á mennta­kerfið, fjár­mögnun fyr­ir­tækja. Þannig að einka­fram­takið búi til fyr­ir­tæki sem eru búa til mikið virði og góð störf. En ekki bara láta hlut­ina ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár