Fjöldi ríkisstjórnarmála enn ókominn í þingið

Rík­is­stjórn Íslands fjall­aði um 20 frum­vörp á síð­ustu tveimur rík­is­stjórn­ar­fund­unum fyrir páska. Mörg stór frum­vörp sem boðað hefur verið að komi fram á þessu þingi voru ekki þar á meðal, og því má búast við því að fleiri frum­vörp verði sam­þykkt á næstu rík­is­stjórn­ar­fundum.

Frumvörp sem kom­ast eiga á dag­skrá þings­ins þurfa að ber­ast fyrir lok mars á skrif­stofu Alþingis, sem þýðir í þess­ari viku. Þing kemur svo saman á ný eftir viku, mánu­dag­inn 4. apríl.

Fram að þessum tveimur fundum fyrir páska hafði rík­is­stjórnin afgreitt 11 frum­vörp eftir jól. 61 frum­varp hefur komið inn í þingið það sem af er þessum vetri, og þar af eru 34 orðin að lögum. 20 eru til umfjöll­unar í nefndum, fimm bíða fyrstu umræðu og tvö bíða þriðju og síð­ustu umræðu.

Alls eru 145 frum­vörp á end­ur­skoð­uðum lista rík­is­stjórn­ar­innar yfir frum­vörp sem hún ætl­aði sér að koma fram með á þessu þingi. Sem fyrr segir eru 61 þeirra komin fram á þingi.

26 þing­funda­dagar eru eftir af þing­inu miðað við starfs­á­ætlun þings­ins. Samkvæmt áætl­un­inni á þingið að fara í frí í lok maí. Þó má ljóst vera að ef stjórn­ar­and­staðan leggur fram van­traust­til­lögu á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra gæti slík umræða tekið langan tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár