Washington stefnir að því að verða markaðsleiðandi í kannabisiðnaðinum

Mesti vöxt­ur­inn í ógn­ar­sterku hag­kerfi Washington-ríkis er í kanna­bis­iðn­aði. Hann varð til, lög­legur, í nóv­em­ber 2012.

Washington-ríki, með ríf­lega sjö millj­ónir íbúa, er frægt­fyrir að vera heima­völlur Seattle-hag­kerfs­ins, sem var til umfjöll­unar ádög­unum á vef Kjarnans, en í seinni tíð er það reglu- og laga­breyt­ing sem hefur sett ríkið á heimskortið. Lög­leið­ing kanna­bis­fram­leiðslu, neylsu og sölu hefur skapað því vafa­samt orð­spor í hugum sumra, en hjá öðrum er það nú fyr­ir­mynd­ar­ríkij.

Óvænt áhrif

Hvað sem veldur skoð­ana­á­grein­ingi, þegar kemur að lög­leið­ingu kanna­bis­efna, þá hefur lög­leið­ingin á kanna­bis­efnum, frá því í nóv­em­ber 2012, haft mikil og óvænt efna­hags­leg áhrif innan rík­is­ins á fjórum árum.

Ólíkt þeim ríkjum sem hafa lög­leitt neyslu á maríjúana, sem unnið er úr kanna­bisl­plönt­unni, einkum í lækn­inga­skyni, þá gekk Washinton ríki lengra og lög­leiddi alla keðj­una; fram­leiðslu, sölu og neyslu. Á móti kemur síðan strangt opin­bert eft­ir­lit (21 árs ald­urs­tak­mark), og krafa um háþró­aðan fram­leiðslu­búnað sem stenst heil­brigð­is­reglu­gerðir rík­is­ins, skatt­skyldu og önnur lág­mörk sem hefð­bundnir atvinnu­vegir þurfa að laga sig að. Eins og hendi væri veifað varð því til umgjörð um risa­vax­inn iðnað sem hafði verið grass­er­andi í svarta hag­kerf­inu með til­heyr­andi tengslum við skipu­lagða glæp­a­starf­semi og alla þá vafasömu hluti sem henni til­heyra, ára­tugum saman.

Fjárfestar bíða í röðum

Í júlí á þessu ári fór velta í kanna­bis-hag­kerf­inu í Washington ríki yfir einn millj­arð Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 115 millj­örðum króna. Þetta hefur skilað rík­inu miklum ávinn­ingi, eða um 250 millj­ónum Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 30 millj­arða króna. Búist er við því að kanna­bis­iðn­að­ur­inn í rík­inu muni marg­fald­ast á næstu árum.

Samkvæmt Samtökum kanna­bis­iðn­að­ar­ins í Washington ríki (Cannabis Business Association), þá bíða fjár­festar nú í röðum eftir því að geta kom­ist inn í marg­vís­lega nýsköp­un­ar­starf­semi með cannabisafurðir. Þar eru margar vörur undir, sem þykja spenn­andi. Bæði fyrir lyfja­starf­semi, vegna kanna­bis­neyslu í lækn­inga­skyni, og svo einnig fyrir fólk almennt sem neytir kanna­bis­efna reglu­lega.

Eitt af því sem Washington ríki hefur lagt mikla áherslu á, er að upp­lýs­inga­gjöf um skað­semi kanna­bis­efna sé sýni­leg og komi fram alls staðar þar sem efnin eru seld. Samkvæmt könn­unum rík­is­ins hefur neysla ekki auk­ist frá því sem var fyrir lög­leið­ingu en for­varn­ar­starf hefur stór­auk­ist, þar sem skatt­féð sem ríkið fær af iðn­aðnum fer að stórum hluta í for­varnir og með­ferðir fyrir fíkni­efna­neyt­endur.

Markaðsleiðtogi

Það sem fjár­fest­ingar, og ekki síst nýsköp­un­ar­fjár­festar, sjá vera að ger­ast í Washington ríki er að aðstæður þar séu lík­lega til að búa til mark­aðs­leið­toga (market leader) á sviði kanna­bis­iðn­aðar. Reglu­lega fara nú fram fundir og ráð­stefnur um nýsköpun, fjár­fest­inga­mögu­leika, fram­leiðslu­tækni, lyfja­tengda þróun í iðn­að­inum, og er Washinton-ríki nú orðið heima­svæði þessa geira að miklu leyti.

Hvað ætli ger­ist eftir mörg önnur ríki Banda­ríkj­anna fara sömu leið og Washington? Þá horfa fyr­ir­tæki til Washington eftir þekk­ingu og fjár­magni, verður að telj­ast lík­legt.

Meðal þess sem nú er orðið að stórum iðn­aði í Washington er fram­leiðsla á nútíma­legum neyslu­pípum. Þær eru með USB tengil á end­anum og kanna­bis­olíu í plast­hylki á hinum end­anum. Svo stingur fólk þeim í USB tengi áður en neysla hefst.

Fjármálakerfið lokað

Það eru samt ennþá nokkrir hnökrar í þessum nýtil­komna iðn­aði. Fjár­mála­kerfið í Banda­ríkj­unum getur ekki tekið iðn­að­inum opnum örmum, þar sem ólög­legt er í flestum ríkjum Banda­ríkj­anna að taka á móti fé sem teng­ist kanna­bis­fram­leiðslu. Búðirnar sem selja efnin og vörur sem tengj­ast iðn­aðn­inum eru því margar hverjar ekki með kort, og taka ein­ungis við reiðufé.

Aðeins bankar og spari­sjóðir sem eru ein­ungis með starf­semi í Washington ríki geta tekið á móti fjár­munum fyr­ir­tækja í iðn­aðnum, en það verður þá að vera gull­tryggt að fjár­magnið fari ekki út fyrir rík­is­mörkin. Annars þarf Alrík­is­lög­reglan FBI að mæta á svæðið og ákæra þá sem að fjár­magns­flutn­ingum standa fyrir pen­inga­þvætti og aðild að skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Eins og ótrú­legt að það hljómar.

Veðmál þeirra sem tala fyrir því að Washinton ríki geti raun­veru­lega byggt upp risa­vax­inn kanna­bis­iðnað, er ekki síst und­ir­byggt þess­ari stöðu sem nú er komin upp. Það er að nú sé að fara af stað ferli sem að lokum muni leiða til lög­leið­ingar um öll Banda­ríkin, og hugs­an­lega um heim allan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár