Tuttugu og eitt smit og átta utan sóttkvíar

Tuttugu og einn ein­stak­lingur greind­ist með COVID-19 hér­lendis í gær. Minni­hluti þeirra, eða átta manns, voru utan sótt­kvíar við grein­ingu.

Smitum fjölgar um eitt á milli daga.
Smitum fjölgar um eitt á milli daga. Mynd: EPA

Tuttugu og einn ein­stak­lingur greind­ist með COVID-19 inn­an­lands í gær, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Meiri­hluta þeirra sem greindust voru þegar í sótt­kví, eða alls 13 manns, en 8 manns voru utan sótt­kvíar við grein­ingu.

Rúmlega sex­hund­ruð manns eru nú í sótt­kví á land­inu og 660 manns til við­bótar eru í skimun­ar­sótt­kví eftir að hafa komið til lands­ins erlendis frá.

Á fimmtu­dag greindust tutt­ugu manns með veiruna og voru ell­efu þeirra utan sótt­kvíar. Þessi þróun virð­ist ætla að setja áform um að slaka eitt­hvað á sótt­varna­ráð­stöf­unum á land­inu í upp­hafi des­em­ber­mán­aðar í upp­nám.

Í við­tölum við fjöl­miðla í gær lýsti Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir yfir miklum áhyggjum af stöð­unni og sagði vís­bend­ingar um að far­ald­ur­inn væri að fara upp í veld­is­vöxt aftur.

Hann óskaði eftir því við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að hún myndi bíða með að útfæra aðgerðir byggðar á til­lögum í minn­is­blaði hans, þar sem þær þyrfti að end­ur­skoða vegna breyttrar stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár