Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Szczecin

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Jájá, þetta er nafn á borg. Hingað höfum við aldrei komið en hingað væri ég til í að koma aftur. Þetta var óbeislað og ofboðs­legt.

Ég fór alger­lega orku­laus að sofa, eða í það minnsta í koju. Verð­skuldað eftir líf­ernið und­an­farið. Það end­aði nú samt sem áður svo að ég horfði á þrjár bíó­myndir og sofn­aði ekki fyrr en kannski sjö. Sól­ar­hring­ur­inn ...

Jæja. Ég var svo sann­ar­lega trufl­aður við þessa færslu. Klukkan er 1.35 og nú er ég nýkom­inn aftur inn í rútu. Ég hef hingað til talað vel um pólskan almenn­ing og geri það áfram í fram­tíð­inni. En hér er margt skýrið og ofríki. Hér sat ég í rút­unni, þétt­pass­legur og svo­leiðis. Hingað inn bár­ust vand­ræða­fregnir af for­söngv­ara vorum. Jebb. Böbbi átti í vand­ræðum með hægðir síð­ast, núna hefði hann ekki átt að pissa svona.

Það er bannað að míga á víða­vangi í Póllandi. Böbbi gerði það. Í runna hér rétt fyrir utan venjúið. Hann var þó varla nema rétt byrj­aður að slaka úr þeim hjálm­lausa þegar að kom víf­andi lög­reglu­bíll af stærri gerð­inni, sá hafði blikk­andi ljós og út úr honum komu sirka þrír lög­reglu­þjónar. Og nú er Böbbi samt enn að míga á sig. Einmitt, hann var ekki nema rétt byrj­aður. Og þarna stóðu þeir, með alvæpni, ekki nema mátu­lega ham­ingju­samir, og reyndar alls ekki. Ég veit ekki hvað ég var nákvæm­lega að gera þarna, en ég gerði alls ekk­ert gagn þegar ég fleygði sígar­ettu­stubb í stétt­ina. Það er líka bannað. Okkur til björg­unar var þar kom­inn mað­ur­inn sem hefur haldið utan um þessi þrjú Póllands-gigg. Hann gerði sitt allra besta sem varð sjálf­sagt alveg þónokkuð. Ég slapp með til­tal, Böbbi fékk eitt­hvað sem sam­svarar 5.000 króna sekt. Og auð­vitað vopnað til­tal. Böbbi af öllum mönnum. Maðurinn sem alltaf er með sitt á hreinu, gerir ekki flugu mein, leggur sig fram dag hvern við mann­gæsku og gengur fram af sjálfum sér með sam­visku­semi. Æi þetta gladdi mig. Ég kem til með að muna þetta fram í dauð­ann.

[caption id="attachment_13410" align="alignnone" width="4193"] „Ég veit ekki hvað ég var nákvæm­lega að gera þarna, en ég gerði alls ekk­ert gagn þegar ég fleygði sígar­ettu­stubb í stétt­ina. Það er líka bannað.“ Bibbi braut lögin, eins og Böbbi.[/caption]

Rétt í þessu stopp­uðum við svo á bens­ín­stöð þar sem Böbbi bað um eina rauð­vín og jarð­ar­berja­sultu. Við höfum nefni­lega haldið þeirri hefð und­an­farna daga að búa til hnetu­smjörs- og sultu­sam­lokur en sultan klárað­ist í gær. Bens­ín­mað­ur­inn átti enga sultu. Böbbi bað um tvær aukar­auð­víns­flöskur í stað­inn en sá átti bara eina. Böbbi reif í mig á plan­inu og skutl­aði mér inn í rútu: „Komum okkur héðan, ég hata Pólland!“

Þetta er þó í gamni sagt. Pólland er meist­ari þrátt fyrir þessa síð­ustu hnökra. Giggið í dag var örlítið hrárra en und­an­farna daga, minni salur, allt aðeins frum­stæð­ara, en alger­lega brjálað. Fyrr­nefndur pró­móter, mað­ur­inn sem bjarg­aði Böbba frá extens­ífri fangsels­is­vist, og hans fylgd­ar­lið hafa verið okkur óskap­lega vin­veitt og hóta því að skipu­leggja heilt tón­leika­ferða­lag Skálmaldar hér­lendis á næsta ári. Sjáum hvar það endar, svona full­yrð­ingar falla víða á tón­leika­ferðum.

En já, hvar var ég við byrjun færslu? Sól­ar­hring­ur­inn hjá mér er alger­lega öfug­snú­inn. Ég sofn­aði um sjö í morgun eftir þrjár bíó­myndir, vakn­aði svo um þrjú og álp­að­ist á venjúið. Það var pínu flókið, ég þurfti að labba gegnum hóp af fólki sem þá þegar hafði safn­ast saman til að bíða þess að stað­ur­inn opn­aði. Þar bank­aði ég á dyrnar sem stór maður opn­aði, ég sýndi pass­ann minn og labb­aði inn. Og svo bara gerði ég ekk­ert. Ég lá í óþægi­legum sófa og í kringum mig var vond lykt og hávaði. Böbbi og Halli afréðu að rölta. Klukku­tíma síðar komu þeir til baka og sögð­ust hafa fundið Starbucks. Þá rifum við Flexi okkur upp af röss­unum og tókum stefn­una þangað. Og þetta var það eina sem ég sá af Póllandi á þessum þremur dögum fyrir utan bíla­stæði og skítuga tón­leika­staði. Við röltum sirka sjö mín­útur í skíta­fokk­ingkulda, fundum kaffi­stað­inn umrædda og þar blæddi minn ást­kæri Felix jóla­kaffi og meððí á vesk­is­lausan mig. Þarna sátum við í sirka klukku­tíma, umkringdir Póllands-meng­uðum Ameríku-kúlt­úrnum og nutum stundar. Það var alger­lega osom og kló­settið var alveg sér­lega hreint.

Líkt og und­an­farna daga fengum við ekk­ert eig­in­legt sánd­tékk, aðeins örstutt línu­tékk eftir lókal­böndin. Við upp­haf þess kom svo sann­ar­lega babb í bát­inn. Þetta pólska krú sem hefur fylgt okkur síð­ustu daga hefur upp­á­staðið frá upp­hafi að við skulum aldrei halda á dót­inu okkar, hljóð­færum og með­fylgj­andi, úr og í bíl­inn. Það er vissu­lega léttir fyrir okkur, þetta dag­lega rót er óþol­andi. En þegar aðrir róta ger­ast mis­tökin. Hljóm­borðs­sta­tífið varð eftir í Kraká. Venju­lega mónitorum við sjálfir það sem fer úr kerrunni og í hana aftur en kæru­leysið varð okkur að falli í þetta skiptið. Í miklu tíma­hraki leystum við málin með Halla í far­ar­broddi, fengum lán­aða stóra flug­kistu frá Elu­veitie undir stærra borðið og settum hið minna á kistu undan því stærra. Venju­lega höfum við borðin á standi sem ber þau í sama flútti, minna borðið fyrir ofan hið stærra. Hér var ekki um það að ræða og Halli spil­aði á þau í 90 gráðu horn­upp­still­ingu. Svona eins og Jakob Frímann og Nick Rhodes. Það ku vera í fyrsta skipti Skálmaldar og ekki til eft­ir­breytni. Við sendum fyr­ir­spurn á venjú gær­dags­ins en höfum ekki fengið svar. Fed-Ex og vinir hans hafa reyndar ekki reynst okkur vel gegnum árin og því hugsa ég að við kaupum nýtt í Berlín á morgun. Szczecin er ekki langt frá landa­mær­unum og Robert hótar ekki nema kannski þriggja tíma keyrslu til Berlín.

Þrási var eitt­hvað örlítið sloj í dag en keyrði sig í gang af stað­festu eftir langan svefn. Hann var þó fram­lágur eftir lög­reglu­hneykslið og lagði sig eftir rauð­víns­kaupin. Nú er klukkan 2.25 og Jón var að laum­ast í koj­una. Síbrota­mað­ur­inn og litli bróðir eru hér sínu glað­astir en auk okkar sitja í setu­stof­unni þeir Flex og Halli. Rauð­vínið sem Böbbi keypti er ógeðs­lega vont. Ég er samt búinn með þrjú glös. Lítil samt. Svona plast­glös sem maður notar oft­ast undir kaffi á bið­stofum. Við erum að hlusta á HAM. Svik, harmur og dauði! Það er gaman að vera í Skálmöld.

Meist­ara­legt dags­ins: Böbbi tek­inn af lögg­unni fyrir að pissa á almanna­færi.

Sköll dags­ins: Við yfir­gefum Pólland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár