Landsnet flytur raforku til kísilvers Thorsil í Helguvík - enn ekki vitað hvaðan orkan kemur

Landsnet og Thorsil skrif­uðu í dag undir sam­komu­lag um raf­orku­flutn­inga fyrir kís­il­ver Thorsil í Helguvík. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Lands­neti er nú gert ráð fyrir því að rekstur kís­il­vers­ins hefj­ist í árs­byrjun 2018.

Kostn­aður við það að tengja kís­il­verið við meg­in­flutn­ings­kerfi Lands­nets er um 2,5 millj­arðar króna, en teng­ingin verður gerð með lagn­ingu 132 kíló­volta jarð­strengs á milli Fitja og Stakks, tengi­virkis Lands­nets, sem verið er að byggja í Helguvík. Fram­kvæmdir eiga að hefj­ast næsta haust.

Segjast hafa tryggt sér orku en ekki hvaðan hún kemur


Hákon Björns­son, fram­kvæmda­stjóri Thorsil, sagði í síð­ustu viku við Frétta­blaðið að fyr­ir­tækið hefði tryggt sér 87 megawatta orku sem áætlað er að kís­il­verið þurfi að jafn­aði til að fram­leiða 54 þús­und tonn af kís­il­málmi á ári.Hann vildi hins vegar ekki upp­lýsa hvaðan orkan kæmi né á hvaða verði hún yrði keypt. Hvorki Lands­virkjun né Orku­veita Reykja­víkur hafa gengið frá neinum samn­ingum við Thorsil, en Ásgeir Mart­eins­son, for­stjóri HS Orku, vildi ekki tjá sig um hvort fyr­ir­tækið hygg­ist veita ork­una eða ekki.

Thorsil gat ekki greitt umsamin gjöld


Í DV í byrjun mán­að­ar­ins var greint frá því að Reykja­nes­höfn hefði gefið Thorsil greiðslu­frest á gatna­gerð­ar­gjöldum vegna lóð­ar­innar undir verk­smiðj­una. Gjöldin áttu að greið­ast 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en gjald­dag­anum var frestað til 15. des­em­ber. Hákon Björns­son vildi ekki upp­lýsa um hversu háa upp­hæð er um að ræða.

Thorsil er stærsti við­skipta­vinur Reykja­nes­hafnar, sem hefur fengið greiðslu­frest út nóv­em­ber­mánuð til að greiða skuldir sínar. Ljóst er að litlar tekjur Reykja­nes­hafnar, sem hún þarf til að geta staðið við greiðslur af lánum, aukast ekki á meðan stærsti við­skipta­vinur hennar greiðir ekki umsamin gjöld á réttum tíma.

Ef Reykja­nes­höfn getur ekki greitt fyrir lok nóv­em­ber verður greiðslu­fall og sveit­ar­fé­lagið Reykja­nes­bær er í ábyrgð fyrir skuld­unum. Bærinn hefur ekki fjár­hags­lega getu til að hlaupa undir bagga með höfn­inni, enda skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins.

Bygging verk­smiðju Thorsil er mjög umdeild í Reykja­nesbæ og í ágúst sam­þykkti bæj­ar­ráð sveit­ar­fé­lags­ins að efna til íbúa­kosn­ingu í nóv­em­ber vegna hennar. Samhliða var hins vegar sam­þykkt að íbúa­kosn­ingin yrði bind­andi og Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, hefur sagt að nið­ur­staða hennar skipti í raun engu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár