Einróma stuðningur við lengra fæðingarorlof vegna andvana fæðinga

Einróma stuðn­ingur er við það innan vel­ferð­ar­nefndar Alþingis að fæð­ing­ar­or­lof vegna and­vana fæð­inga verði lengt svo að for­eldrar fái hvor um sig þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lof. Nú er það svo að for­eldrar eiga sam­eig­in­lega rétt til þriggja mán­aða orlofs ef and­vana­fæð­ing á sér stað, eftir 22 vikna með­göngu. Ef fóst­ur­lát verður eftir 18 vikna með­göngu eiga for­eldrar sam­tals rétt á allt að tveggja mán­aða orlofi sam­an­lagt.

Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður greiddi for­eldrum tæp­lega 9,7 millj­ónir í fæð­ing­ar­or­lof árið 2014 vegna fjórtán and­vana fæð­inga. Ef greiðslur hefðu mið­ast við fyr­ir­komu­lagið sem frum­varpið gerir ráð fyrir og for­eldr­arnir hefðu full­nýtt rétt sinn hefði fjár­hæðin farið upp í tæp­lega 30 millj­ónir króna. Kostn­að­ar­auki Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs yrði því árlega rétt rúm­lega 20 millj­ónir króna.

Frumvarp um breyt­ingar á lög­unum var lagt fram í haust í annað skipti, en Páll Valur Björns­son, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, var fyrsti flutn­ings­maður þess. Auk hans voru flutn­ings­menn hinir fimm þing­menn Bjartrar fram­tíðar, Katrín Jak­obs­dóttir for­maður VG, Helgi Hrafn Gunn­ars­son kafteinn Pírata og Össur Skarp­héð­ins­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Frum­varpið gerir ráð fyrir því að for­eldrar barna sem fæð­ast and­vana fái fullt fæð­ing­ar­or­lof, enda sé varla hægt að halda því fram að munur sé á því að eign­ast and­vana barn eða að missa barn skömmu eftir fæð­ingu. Ef barn deyr skömmu eftir fæð­ingu fá for­eldrar fullt fæð­ing­ar­or­lof, sem er þrír mán­uðir hvort for­eldri um sig og þrír mán­uðir sem eru sam­eig­in­legir. „Í báðum til­vikum þurfa for­eldr­arnir að takast á við sam­bæri­legt sorg­ar­ferli, til við­bótar því álagi sem fylgir fæð­ingu barns. Hið and­lega bata­ferli er af sama meiði hvort sem barnið lést í móð­ur­kviði eða stuttu eftir fæð­ingu,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varpi.

Vel­ferð­ar­nefnd fellst á það að svo mik­ill munur, sex mán­uðir, sem er á rétti for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs eftir því hvort barn deyr fyrir eða eftir fæð­ingu sé ekki heppi­legur. Þá segir að komið hafi fram í við­tölum nefnd­ar­innar að núver­andi réttur veiti for­eldrum ekki nægi­legt svig­rúm til að jafna sig. Nefndin telur því rétt að rýmka rétt­inn þannig að for­eldrar eigi sjálf­stæðan rétt til þriggja mán­aða fæð­ing­ar­or­lofs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár