Hryllingurinn í Brussel

Hryðju­verk eru veru­leiki sem Evr­ópu­menn munu þurfa að búa við næstu árin. Árás­irnar á Brussel stað­festu það. Borgin sem var helst þekkt fyrir afburða súkkulaði, gæða­bjór er nú einnig þekkt fyrir her­skáa múslima og hryðju­verka­menn.

Hryðjuverkin í Brussel staðfesta þann veruleika sem Evrópumenn búa nú við.
Hryðju­verkin í Brussel stað­festa þann veru­leika sem Evr­ópu­menn búa nú við. Mynd: EPA

Spreng­ing­arnar í Brussel stað­festu það sem margir hafa sagt að und­an­förnu: Hryðju­verk eru veru­leiki sem Evr­ópu­menn munu búa við næstu árin. Manuel Valls, for­sæt­is­ráð­herra Frakk­lands, hefur ítrekað sagt að und­an­förnu að það sé ekki spurn­ing um hvort - heldur ein­ungis hvenær stór hryðju­verka­árás verði framin í Evrópu. Að þessu sinni var það Brussel, 31 lát­inn - 270 særðir.

Öll spjót hafa raunar beinst að Brussel eftir árás­irnar í París. Borgin er helst þekkt fyrir afburða súkkulaði, gæða­bjór og nú: her­skáa múslima og hryðju­verka­menn.

Molenbeek-hverf­inu í Brussel hefur verið lýst sem útung­un­ar­stöð hryðju­verka­manna og þar lá Salah Abdasalem í bæli móður sinnar í heila þrjá mán­uði, óáreittur. Þar voru árás­irnar í París und­ir­búnar, þaðan komu helstu hryðju­verka­menn­irnir, þar vopn­uð­ust Kouachi-bræður áður en þeir réð­ust á Charlie Hebdo. Um 500 Belgar, all­flestir úr Molenbeek hafa farið til Sýrlands til þess að berj­ast þar fyrir íslamska ríkið. Sem er Evr­ópu­met. Margt af þessu fólki hefur snúið til baka eftir ára­langa her­þjálfun og hryll­ing.

Af hverju er ekki fyrir löngu búið að fín­kemba þetta hverfi?

Brussel er mið­punktur og höf­uð­borg Evr­ópu­sam­band­ins, þaðan er stutt til Lundúna, Parísar, Amster­dam og Berlínar. Árás á Brussel er árás á Evrópu; árás á vest­ræn gildi um frjálst sam­fé­lag. Það hefur kraumað í Frökkum og öðrum Evr­ópu­búum vegna örygg­is­mála í Belgíu eftir árás­irnar í París 13. nóv­em­ber. Franskir ráða­menn, sér­fræð­ingar, lög­reglu­yf­ir­völd og fleiri hafa harð­lega gagn­rýnt belgísku lög­regl­una, mátt­leysi hennar og skipu­lags­leysi. Eftir hand­tök­una á Abdasalem kom François Hollande fram á blaða­manna­fundi og bar lof á sam­starf Frakka við Belga í því máli. Hann ítrek­aði að það væri nauð­syn­legt að Evr­ópu­löndin myndu fram­vegis vinna betur saman gegn hryðju­verka­vánni. Hryll­ing­ur­inn í Brussel 22. mars var því gíf­ur­leg von­brigði, en um leið brýn áminn­ing þess að löndin taki höndum saman.

Bræðrabönd

Tveir þeirra sem tóku þátt í hryðju­verka­árás­unum í Brussel voru bræður. Sá sem spengdi sig á Zaventem-flug­vell­inum í Brussel hét Ibrahim el-Bakraoui. Bróðir hans, Kahalid, sprengdi sig á Maalbek-braut­ar­stöð­inni. Þeir eru fæddir og upp­aldir Belgar. Þetta er nýr veru­leiki. Sjálfs­morðsárásir. Fólk að ráð­ast á sína eigin landa. El-Bakraoui bræður voru þekktir glæpa­menn í Belgíu. Þeir höfðu marg­sinnis verið hand­teknir fyrir ofbeldi og ýmis­konar glæpi en ekki verið bendl­aður við öfga­hópa ísla­mista fyrr en nýlega. Síðasta sumar var Ibrahim vísað úr landi í Tyrk­landi og sendur með flugi til Hollands. Tyrknesk yfir­völd segj­ast hafa sent við­vörun til hol­lenskra og belgískra yfir­valda um að Ibrahim væri tengdur sýr­lenskum hryðju­verka­sam­tökum en ekki hafi verið brugð­ist við þeim við­vör­unum. Þetta er enn ein gagn­rýnin á belgísk lög­reglu­yf­ir­völd – en það er fátt um svör.

[adspot]

Lög­reglan leitar enn þriðja manns­ins, Naijim Lacchraoui. Hann er sagður spengju­sér­fræð­ingur sem hafi gert sprengjur og und­ir­búið hryðju­verkin í París í nóv­em­ber. Hann er tal­inn hafa verið náinn sam­starfs­maður Salah Abdeslam sem var hand­tek­inn í Brussel síð­ast­lið­inn föstu­dag. Nú þykir lík­legt að hann hafi verið einn þeirra sem fórst í speng­ing­unni á flug­vell­inum.

Bræður hafa verið áber­andi hryðju­verka­menn síð­ast liðin ár. Kouachi-bræður réð­ust á Charlie Hebdo ritstjón­ar­skrif­stof­urnar og bræð­urnir Tamerlan og Dzhokhar Tsarnaev frömdu hryðju­verkin í Boston-mara­þon­hlaup­inu 2013. Hryll­ing­ur­inn á þriðju­dag er tengdur við hand­töku Salah Abdeslam. Bróðir hanns, Brahim, er einn þeirra sem tók þátt í þeim árásum og sprengdi sjálfan sig í loft upp. Það er hugs­an­legt að enn stærri árás hafi verið í bígerð.

Fasisminn fitnar eins og púkinn á fjósbitanum

Er hryðju­verka­mönnum að takast ætl­un­ar­verk sitt, að skapa glund­roða, ótta og spennu? Landamæra­eft­ir­lit hefur verið stór­aukið og fylgi hægri-öfga­manna rýkur upp. Hryðju­verkin eru árás á vest­ræn gildi, frelsi og umburð­ar­lyndi. Á meðan á öllu þessu gengur eykst fylgi hægri öfga­manna, bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Það er hin raun­veru­lega hætta. Ísla­mist­arnir eru af sama anga og hægri öfga­menn­irnir, þeir vilja aðskilja ólíka hópa, upp­ræta fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagið og taka upp reglur og siði sem giltu á mið­öldum.

Litlir, her­skáir, hryðju­verka­hópar hafa raunar verið til í Evrópu síð­ast liðin 200 ár. Í Rúss­landi, Frakk­landi, á Norður-Írlandi, Spáni, Ítalíu og víðar hafa litlar sellur og hópar ráð­ist á sak­lausa, almenna borg­ara í póli­tískum til­gangi. Þeir eru hluti af sam­fé­lag­inu eins og nauð­garar, morð­ingjar og ölvað fólk á bílum sem veldur slysum og hörm­ungum. Ísla­mistar í Evrópu eru lít­ill hópur – en valda nú miklum glund­roða. Samt er raunin sú að fleiri deyja í bílslysum eða reyk­ingum. En það eru afleið­ing­arnar, upp­vöxtur fasimans sem er mesta áhyggju­efnið. Aukinn við­bún­aður og örygg­is­gæsla er hjá lög­reglu um alla Evrópu, það gilda enn neyða­lög í Frakk­landi, landamæra­gæsla hefur verið aukin, njósnir og eft­ir­lit með almennum borg­urum. Sú opna, frjáls­lynda Evrópa sem við þekkjum er kannski óðara að hverfa. Hern­að­ar­að­gerðir í Mið-Aust­ur­löndum virð­ast litlum árangri skila og raunar er stefna Vest­ur­landa á þeim heims­hluta síð­ast­liðin hund­rað ár, hrein hörm­ung.

Hvernig á þá að bregð­ast við hryðju­verkum? Þetta er helsta verk­efni Evrópu um þessar mundir. Á upp­risu­há­tíð­inni er kannski vert að huga að gömlum boð­skap frá stríðs­hrjáðu svæði og gera eins og stendur í Róm­verja­bréf­inu:

„Gjaldið engum illt fyrir illt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár