The Rocky Horror Picture Show: Költ-undrið framlengir hátíðarhöldin

Söngva­myndin sem braut allar sam­fé­lags­reglur um kyn­líf varð 40 ára gömul síð­asta haust og ekk­ert lát er á vin­sældum hennar. Leik­ar­arnir halda áfram að hitta aðdá­endur sína og halda upp á afmælið með þeim.

Dr. Frank N. Furter ræðir við Brad og Janet.
Dr. Frank N. Furter ræðir við Brad og Janet.

Aðdá­endum kvik­mynd­ar­innar The Rocky Horror Picture Show gefst nú kostur á að hitta hetj­urnar sínar í Los Angeles í byrjun júlí en þá munu aðal­leik­ar­arnir mæta saman til end­ur­funda í annað skiptið. Tilefnið er að í fyrra voru 40 ár síðan myndin kom út.

Hér fyrir ofan er hið fræga byrj­un­ar­at­rið þar sem Patricia Quinn ljáir varir sínar við rödd Richard O´Briens.

Myndin kom út árið 1975 en hún var unnin upp úr sam­nefndu leik­riti eftir Richard O´Brien sem var frum­sýnt tveimur árum áður. Kvik­myndin gekk ekki vel til að byrja með en varð síðan að költ-undri um allan heim.

Sprungið dekk með afdrifaríkar afleiðingar

Sögusvið mynd­ar­innar er kast­ali dr. Frank N. Furter en eftir að springur á bíl pars­ins Brad Majors og Janet Weiss verða þau að leita á náðir hans með húsa­skjól og aðstoð. Gest­gjaf­inn býður þeim að gista og sér­kenni­legir atburðir eiga sér stað þessa nótt.

Einn eft­ir­minni­leg­asti leik­ari mynd­ar­innar er Tim Curry sem lék hinn lit­ríka dr. Frank N. Furter. Upp­haf­lega hug­myndin hjá honum var að leika hann sem Þjóð­verja eða sem Amer­ík­ana en Tim datt loks­ins niður á hreim­inn þegar hann heyrði eldri konu tala í strætó með sama hreim. Hann hugs­aði með sér að þarna væri dr. Frank N. Furter kom­inn.

Hér fyrir neðan er áhuga­vert við­tal við Tim Curry frá árinu 1975 þar sem hann talar um hvernig það kom til að hann fór með hlut­verkið og hvernig upp­lifun það hafi verið.

Barry Bostwick lék hinn sak­lausa Brad og Susan Sarandon Janet. Patricia Quinn fór með hlut­verk Magentu, hús­hjálpar dokt­ors­ins og Meatloaf lék Eddie. Flestir leik­ar­anir hafa átt far­sælan frama sem leik­arar en þeir tala allir um að það hafi haft mikil áhrif á líf þeirra að taka að sér hlut­verk í þess­ari skraut­legu kvik­mynd.

Frægt leikverk

Leik­ritið hefur verið sýnt um allan heim og er einn vin­sæl­asti söng­leikur síð­ari hluta 20. aldar. Kvik­myndin kom einmitt til þegar Jim Sharman bjó til hand­rit upp úr leik­rit­inu í sam­starfi við O´Brien en hinn síð­ar­nefndi leikur einnig í mynd­inni aðstoð­ar­mann­inn Riff Raff.

Fjöl­margar sýn­ingar á verk­inu hafa verið settar upp á Íslandi og má þar nefna eft­ir­minni­lega upp­setn­ingu í Loft­kast­al­anum árið 1995 í leik­stjórn Baltasars Kormáks. Söng­leik­ur­inn var sýndur oftar en 60 sinnum og fór Helgi Björns­son á kostum sem dr. Frank N. Furter. Björn Jörundur Frið­björns­son lék Riff Raff og Hilmir Snær Guðnason og Val­gerður Guðna­dóttir fóru með hlut­verk Brads og Janetar.

„Sumir fá kannski hland fyrir hjartað þegar tæpt er á vissum vel­sæm­is­mörkum, en „hver er meiri per­vert sá sem er per­vert eða sá sem borgar fyrir að horfa á per­vert­inn?“.“ Þetta kom fram í rit­dómi sem Ingvi Þór Kor­máks­son skrif­aði í DV árið 1995. Hann lýsti sýn­ing­unni sem vand­aðri, hressi­legri og hraðri og að heil­mikið stuð hefði verið í tón­list­inni.

Söng­leik­ur­inn hefur einnig verið fluttur í nem­enda­leik­húsum um allt land og ber að minn­ast þess þegar Margrét Vera Mána­dóttir aug­lýsti sýn­ingu Mennta­skóla Borg­ar­fjarðar með því að segj­ast vera dóttir höf­und­ar­ins og leik­ar­ans Richards O´Brien og villti þar með um fyrir blaða­manni Frétta­blaðs­ins. Þessi brella ku hafa aukið aðsókn og ekki haft aðrar afdrifa­ríkar afleið­ingar í för með sér.

Hvert sækir höfundur efnið sitt?

Sagan sjálf byggir í raun á gömlu sagna­minni. Richard O´Brien hefur sjálfur sagt frá því að hug­mynd­ina megi finna í sjálfri sköp­un­ar­sög­unni um Adam og Evu og í sög­unni um Hans og Grétu. Þess vegna, meðal ann­ars, sé Rocky Horror Picture Show eins vin­sæl mynd og raun ber vitni.

Ný endurgerð

Til stendur að end­ur­gera kvik­mynd­ina og mun sjón­varps­mynd koma út á næst­unni. Tim Curry sjálfur tekur þátt í þess­ari nýju end­ur­gerð en hann leikur svo­kall­aðan afbrota­fræð­ing sem hefur það hlut­verk að segja sög­una.

Mikil hefð hefur skap­ast í kringum sýn­ingu kvik­mynd­ar­innar en hún er einnig sýnd í kvik­mynda­húsum út um heim allan enn í dag. Fólk klæðir sig iðu­lega upp og sækir sýn­ingar aftur og aftur. Hér kemur stutt heim­ilda­mynd frá árinu 1981.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár