Adele og metin sem aldrei verða slegin

Tón­list­ar­konan Adele hefur slegið hvert metið á fætur öðru frá því að nýjasta plata hennar, 25, kom út í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Í heimi minnk­andi tón­list­ar­sölu er Adele í algjörum sér­flokki, og ólík­legt að mörg þess­ara meta verði nokkurn tím­ann slegin.

Adele er ein allra stærsta stjarna sam­tím­ans. Það er stað­reynd, frekar en hug­lægt mat. Frá því að nýjasta platan hennar, 25, kom út í lok síð­asta árs hefur hún slegið hvert metið á fætur öðru. Og hún virð­ist ekki geta slegið feil­nótu, í óeig­in­legum skiln­ingi.

Reyndar var hún byrjuð að slá met áður en platan kom út. Fyrsta smá­skífan af plöt­unni, lagið Hello, kom út 23. októ­ber síð­ast­lið­inn og byrj­aði að slá met strax á fyrsta degi. Þá var horft á mynd­bandið við lagið 27 milljón sinnum á Youtube. Það tók fimm daga að kom­ast yfir 100 millj­ónir, sem var líka met. Núna, 9. mars, er áhorfstalan komin yfir 1,3 millj­arða, sem sam­svarar því að næstum einn af hverjum fimm jarð­ar­búum hafi horft einu sinni á mynd­bandið.

Strax í fyrstu vik­unni varð smá­skífan mest selda lag árs­ins 2015 í Bret­landi. Í Banda­ríkj­unum var yfir milljón ein­tökum hlaðið niður fyrstu vik­una. Aldrei áður hafði lag náð yfir milljón á einni viku, og það sem meira er, þetta var hálfri milljón meira en lagið Right Round með Flo Rida, sem átti metið fram að því. Fyrir tíma nið­ur­hals hefur eitt lag náð meiri sölu sem smá­skífa en Hello, og það var end­ur­út­gáfan af Candle in the Wind, sem Elton John gaf út eftir að Díana prinsessa dó árið 1997.

Og hún sem sagð­ist hafa haldið að eftir svona langan tíma án þess að gefa nokkuð út væri öllum orðið sama um hana.

Langlífu orðrómarnir

Síðasta plata Adele kom út í byrjun árs 2011, og ári síðar gaf hún út lag fyrir James Bond mynd­ina Skyfall. Eftir það hafði hún sig mjög lítið í frammi. Áður en 25 kom svo út höfðu lengi verið orðrómar á kreiki um nýju plöt­una hennar, sem fólk þótt­ist alla tíð visst um að myndi heita 25. Hún hafði líka fram að þessu gefið út plöt­urnar 19 og 21, eftir aldri hennar þegar plöt­urnar voru gerðar. Þegar hún átti 25 ára afmæli ýtti hún heldur betur undir orð­rómana í gegnum Twitter-síðu sína, eins og sjá má hér að neðan.

Árið 2014 kom þó og fór og ekk­ert heyrð­ist frá henni. Seinna kom í ljós að hún gerði fullt af tón­list sem henni þótti ekki nógu góð þegar á hólm­inn var komið. Árið 2015 voru sögu­sagn­irnar orðnar háværar, enda vitað að verið væri að vinna í plötu með aðstoð ýmissa tón­list­ar­manna, og talið var víst á seinni hluta árs­ins að nú myndi fara að draga til tíð­inda. Bill­bo­ard sagði frá því síð­ast­liðið haust að platan kæmi í nóv­em­ber, en það var ekki 100% stað­fest. 

Svo allt í einu og upp úr þurru birt­ist aug­lýs­ingin hér að neðan, í aug­lýs­inga­hléi á X-Factor þætti í breska sjón­varp­inu þann 18. októ­ber.

Ekkert meira fylgdi aug­lýs­ing­unni, en það ætl­aði strax allt um koll að keyra. Var þetta í alvör­unni hún, var hún að til­kynna form­lega um útgáfu plöt­unnar og var þetta þá lag af nýju plöt­unni? Svarið var já.

Nokkrum dögum seinna birti hún skila­boð til aðdá­enda sinna á Twitter, og sýndi svo plötu­umslagið og til­kynnti útgáfu­dag­inn 20. nóv­em­ber á Instagram. Í skila­boð­unum á Twitter útskýrði hún fjar­veru sína og það hversu langan tíma hefði tekið að koma plöt­unni út. Útskýr­ingin var reyndar ein­föld, lífið gerð­ist. Meðal þess sem gerð­ist í lífi hennar var að hún eign­að­ist son, sem er nú þriggja ára.

Sló met 'NSYNC, Oasis og Susan Boyle

Það væri of löng upp­taln­ing að skrifa um öll metin sem Adele hefur slegið með útgáfu 25, en hér koma samt nokkur í við­bót. Fyrstu vik­una voru tæp­lega 3,4 millj­ónir ein­tök seld af plöt­unni í Banda­ríkj­unum, sam­kvæmt mæl­ingum Nielsen Music, sem hefur mælt plötu­sölu frá árinu 1991 og tekið inn í mæl­ingar sínar streymi og sölu á ein­staka lögum. Ekki að ein­staka lög hafi skipt miklu máli hjá Adele, næstum því hver einn og ein­asti keypti plöt­una í heild sinni.

25 er fyrsta platan í sögu þess­ara mæl­inga til þess að selj­ast í yfir þremur millj­ónum ein­taka á einni viku. Áður en platan kom út hafði því verið velt upp í fjöl­miðlum hvort hún gæti mögu­lega jafnað sölu­metið, sem stráka­sveitin 'NSYNC átti þá. Þeir seldu 2,4 millj­ónir af No Strings Attached í vik­unni eftir að hún kom út árið 2000. Adele jafn­aði ekki bara metið heldur sló það svo ræki­lega að talið er ólík­legt að nokkur muni ná henni.

Og í Bret­landi var sömu sögu að segja. 800 þús­und ein­tök og gott betur seld­ust í fyrstu vik­unni þar, yfir 100 þús­undum meira en sölu­hæsta platan þar í landi fram að því. Fyrsta dag­inn seld­ust 300 þús­und ein­tök. Be Here Now með Oasis, hafði áður verið mest selda platan á einni viku, en hún seld­ist í 696 þús­und ein­tökum vik­una sem hún kom út árið 1997.

Hún sló alls konar önnur met í öðrum löndum. Til að mynda setti hún sölu­met á Nýja-Sjálandi og sló þar út Susan Boyle, sem hafði átt metið þar í landi.

25 fór í fyrsta sæti á iTu­nes list­anum í 106 af 119 löndum þessa fyrstu viku og seld­ist þar í 900 þús­und ein­tökum. Nýjustu tölur segja að platan hafi selst í nítján milljón ein­tökum um allan heim.

Adele á Grammy-verðlaununum nýverið.
Adele á Grammy-verð­laun­unum nýverið.

Ekki platan sem bjargar tónlistarheiminum

Það er mjög vel þekkt að tón­list­ar­sala og neysla á tón­list hefur breyst gríð­ar­lega síð­ustu ár, og plötu­sala dregst veru­lega saman ár frá ári. Það gerir gríð­ar­lega vel­gengni plötu eins og 25 sér­staka, það að hún slái svona mörg met þrátt fyrir stöð­una á mark­aðnum. Adele ákvað að setja plöt­una ekki á streym­is­síður eins og Spotify, og hún kemst upp með slíka ákvörðun, sem lík­lega jók bara söl­una.

En það þýðir ekki neitt fyrir almenna plötu­sölu, segja sér­fræð­ingar. „Þetta er óvenju­legt. Þetta er ekki merki um það hvert iðn­að­ur­inn stefnir, og bara þótt við höfum eina stóra og far­sæla plötu­sölu þýðir það ekki að allir fari að kaupa plötur aftur,“ sagði tón­list­ar­grein­and­inn Mark Mulligan við Guardian þegar 25 var nýkomin út. Þetta væri ekki platan sem bjarg­aði tón­list­ar­heim­inum, miklu nær væri að líta aðeins neðar á listana til þess að finna raun­veru­lega stöðu iðn­að­ar­ins. Raunin er sú að efsta eina pró­sentið af tón­list­ar­mönnum fái 77% allra tekna. Með öðrum orðum, súper­stjörn­urnar græða pen­inga og selja plötur, en hin 99% tón­list­ar­mann­anna lenda í vand­ræðum.

Fleiri sem græða

Það eru samt ekki bara Adele og plötu­fyr­ir­tækið hennar sem græða stór­kost­lega á þess­ari vel­gengni. Tón­list­ar­síðan djbooth hefur reynt að meta hvað aðrir sem unnu að plöt­unni, eins og upp­töku­stjórar og laga­höf­undar, hafi fengið í sinn hlut. Til að mynda er sagt að Greg Kurstin, sem gerði Hello með Adele, hafi grætt meira en tvær millj­ónir doll­ara. Eins og síðan segir: það þýðir að maður sem eng­inn veit hver er, er að græða meiri pen­inga en 90% þeirra tón­lista­manna sem gefa út plötur.

Áætlað er að auð­æfi Adele séu í kringum 75 millj­ónir doll­ara, tæp­lega 10 millj­arðar íslenskra króna. Það er bara af tón­list, vegna þess að þrátt fyrir fjöl­mörg boð þar um, hefur hún sagt nei við hverju ein­asta til­boði um að aug­lýsa eða ger­ast tals­kona hluta. Í við­tali við Guardian í haust sagði hún að henni hefði verið boðið að aug­lýsa allt mögu­legt. Bækur, föt, drykki, mat, bíla, leik­föng, smá­forrit og kerti, tók hún sem dæmi. „Milljón pund fyrir að syngja í afmæl­is­veisl­unni þinnig? Ég myndi frekar gera það ókeypis ef ég geri það á annað borð, takk,“ sagði hún.

Tónleikaferðalagið heldur henni á toppnum áfram

Í síð­ustu viku hóf Adele svo fyrsta tón­leika­ferða­lagið sitt í fjögur ár. Hún neydd­ist til að hætta að koma fram árið 2011 vegna radd­vand­ræða, sem hún fór í aðgerð til að laga. Upp­haf­lega var því haldið fram að hún myndi ekki fara í neina tón­leika­ferð vegna nýju plöt­unnar, en svo not­aði hún sam­fé­lags­miðla enn á ný til þess að til­kynna að hún hygð­ist víst ætla að halda tón­leika.

Hún byrj­aði í Belfast, og fer nú um Evrópu fram á sumar. Þá fer hún til Norður-Ameríku, þar sem hún heldur tón­leika fram til 15. nóv­em­ber, en síð­ustu tón­leik­arnir hennar verða í Mexík­ó­borg það kvöld. 105 tón­leikar eru áform­aðir, 49 í Evrópu, 56 í Norður-Ameríku. Uppselt er á alla tón­leik­ana, en það seld­ist upp á Evr­óput­úr­inn strax svo að fleiri tón­leikum var bætt við.

Dæmi eru um að miðar á tón­leika með henni séu í end­ur­sölu fyrir meira en 290 sinnum upp­haf­legt verð. Sæti sem kost­uðu 85 pund á tón­leika í London eru í sölu fyrir tæp­lega 25 þús­und pund, sem eru rúm­lega 4,5 millj­ónir króna.

Síðasta plata Adele, 21, var í fyrsta sæti á Bill­bo­ard list­anum í 24 vikur, sem var met. Aldrei fyrr hafði kona náð við­líka árangri á list­anum. Hún var í 23 vikur á toppi breska vin­sæld­ar­list­ans og fór á topp­inn í yfir 30 löndum. Allar líkur eru taldar á því að hún slái sitt eigið met með 25. Nú í upp­hafi tón­leika­ferða­lags­ins hefur platan þegar setið í topp­sæti Bill­bo­ard í 10 vikur og á breska vin­sæld­ar­list­anum í níu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár