Hundrað milljarða hækkun á nokkrum vikum

Hluta­bréf halda áfram að hækka og krónan að styrkj­ast. Síðustu vikur hafa verið líf­legar á verð­bréfa­mörk­uðum.

Mark­aðsvirði hluta­bréfa sem skráð eru í kaup­höll Íslands hefur hækkað um tæp­lega hund­rað millj­arða, sé horft yfir síð­ustu sjö mán­uði, en megnið af hækk­un­inni hefur komið fram á síð­ustu fjórum vikum.

Miklu munar þar um hækkun á virði Marels en félagið er nú 256 millj­arða virði, eða sem nemur tæp­lega fjórð­ungi af öllu mark­aðsvirði skráðra félaga á Íslandi.

Á sama tíma og virði bréfa í Icelandair hefur farið lækk­andi, sé horft til síð­ustu sjö mán­aða, þá hafa önnur félög, mörg hver, hækkað umtals­vert.

Miðað við stöðu mála eins og hún var í við lokun mark­aða á föstu­dag þá er sam­an­lagt mark­aðsvirði félaga í kaup­höll Íslands 1047 millj­arðar króna. Um miðjan októ­ber í fyrra var virði þeirra 949,5 millj­arðar og nemur hækk­unin á þessu tíma­bili því 97,5 millj­örðum króna. Sveiflan á síð­ustu vikum hefur hins vegar verið mikil upp á við, eftir lækkun þar á undan.

Miklar hækkanir erlendis

Þessi hækkun er í takti við mikla hækkun sem hefur verið á alþjóð­legum mörk­uðum allt þetta ár, en félög í upp­lýs­inga­tækni hafa hækkað mest allra. S&P 500 vísi­talan hækk­aði um hefur hækkað um tæp­lega 8 pró­sent á árinu en hún skipt­ist í 11 und­ir­vísi­tölur eftir atvinnu­geirum. Vísitala félaga í upp­lýs­inga­tækni hefur á þessu tíma­bili hækkað um 16,5 pró­sent, og munar þar ekki síst um gríaðr­legar hækk­anir á mark­aðsvirði helstu risa í geir­anum, Amazon, Alphabet, Microsoft og Apple þar á meðal. Mark­aðsvirði Apple er nú 811 millj­arðar Banda­ríkja­dala, og hefur þetta verð­mætasta skráða félag í heim­inum, hækkað mikið á und­an­förnum vikum.

Í nýlegri grein­ingu Lands­bank­ans um þróun á erlendum mörk­uðum þá segir að grein­endur Standard & Poor telji að þessar hækk­anir geti haldið áfram næstu mán­uði og miss­eri.

Mikil hækkun á þremur vikum

Á und­an­förnum rúmum þremur veikum hafa verið tölu­verðar hækk­anir á hluta­bréf á Íslandi og hefur vísi­talan farið úr 1.751 18. apríl síð­ast­lið­inn í 1.910 við lokun mark­aða síð­ast­lið­inn föstu­dag. Sem þýðir að vísi­talan er nú á svip­uðum stað og hún var í apríl í fyrr, áður en mark­að­ur­inn fór að ein­kenn­ast af miklum lækk­unum, ekki síst hjá Icelandair.

Krónan styrkist og styrkist

Gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum hefur haldið áfram að styrkj­ast und­an­farin miss­eri. Banda­ríkja­dalur kostar nú 103 krónur og evran 113 krónur. Norska krónan kostar nú 12,2 krónur og danskan 15,2. Fyrir einu og hálfu ári var allt annað uppi á ten­ingnum, þegar gengið er ann­ars vegar, en þá kost­aði Banda­ríkja­dalur tæp­lega 140 krónur og evran 150 krónur.

Flestir við­mæl­enda Kjarnans, sem skoðað hafa fjár­flæði til og frá land­inu, gera ráð fyrir að gjald­eyr­is­inn­streymi verði mikið á næstu mán­uðum, sam­hliða helsta anna­tíma í ferða­þjón­ust­unni á Íslandi. Reikna má með því að krónan haldi áfram að styrkj­ast, nema að Seðla­banki Íslands beiti sér enn meira en hann hefur nú þegar gert, til að veikja gengi krón­unnar.

Töluverð spenna er nú fyrir næsta ákvörð­un­ar­degi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem er á næsta mið­viku­degi. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur kallað eftir því að vextir verði lækk­aðir og segir fullt svig­rúm til þess.

Meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent en verð­bólga mælist 1,9 pró­sent, og hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði í meira en þrjú ár. Grein­endur spá því ýmist að vextir muni lækka um 0,25 pró­sentu­stig eða standa í stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár