Segir að nú þurfi „að hvetja frjósemisgyðjuna til dáða“ og hækka þar með fæðingartíðni

Þing­maður Við­reisnar hvatti fólk til að ferð­ast í svefn­her­berg­inu á þingi í dag því vel­ferð­ar­sam­fé­lagið geti ekki staðið undir sér ef fólk hættir að eign­ast börn. Fæð­ing­ar­tíðni er nú um 1,7 en þarf að vera 2,1 til að við­halda mann­fjöld­anum.

„Vel­ferð­ar­sam­fé­lagið stendur ekki undir sér ef fólk hættir að eign­ast börn,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, á Alþingi í dag. Þorbjörg fjall­aði um fæð­ing­ar­tíðni íslenskra kvenna sem hefur dreg­ist saman um sem nemur hálfu barni síð­ustu tíu árum.

Þorbjörg Sigríður vís­aði til orða Ernu Solberg sem hvatti Norðmenn til að eign­ast fleiri börn en fæð­ing­ar­tíðni þar í landi hefur einnig lækkað tölu­vert. „Hún sagði að hún þyrfti senni­lega ekki að útskýra hvernig þetta sé gert, né ætl­aði hún að gefa beinar skip­anir en henni var alvara því Norð­mönnum, þeim fjölgar ekki nægi­lega,“ sagði Þorbjörg.

Hún sagði ald­ur­spíramída á hvolfi ekki geta staðið undir vel­ferð. Hér á landi fædd­ust of fá börn til þess að halda jafn­væg­inu til lengri tíma litið. Því ætti kapps­mál stjórn­valda að vera að stuðla að frek­ari barn­eignum að mati Þor­bjargar.

Þetta væri eitt­hvað til að hugsa um, nú þegar fólk dvelst mikið heima við. „Við eigum þess vegna að hvetja frjó­sem­is­gyðj­una til dáða, hvetja hana til að leggj­ast undir feld. Um þetta ættu lands­menn að hugsa núna þegar þeir ferð­ast inn­an­húss og inn­an­lands í sumar að gleyma þá ekki að ferð­ast kannski bara dálítið í svefn­her­berg­inu.“

Fæðingartíðni lækkaði milli ára

Samkvæmt nýlegum tölum Hag­stof­unnar fjölg­aði fæddum börnum milli áranna 2020 og 2019 en fæð­ing­ar­tíðni lækk­aði. Fjöldi lif­andi fæddra barna árið 2020 var 4.512 sam­an­borið við 4.452 á árinu 2019.

Fæð­ing­ar­tíðnin lækk­aði aftur á móti úr 1,75 árið 2019 niður í 1,72. Samkvæmt frétt á vef Hag­stof­unnar er fjöldi lif­andi barna á ævi hverrar konu helsti mæli­kvarði á frjó­semi. Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til að við­halda mann­fjölda til lengri tíma litið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár