Mynd: EPA

Fimmti hver Bandaríkjamaður þarf að vera heima

„Við erum að sjá hörm­ungar á skala sem við höfum ekki séð af völdum smit­sjúk­dóms frá árinu 1918,“ segir Jeffrey Shaman, pró­fessor í lýð­heilsu. „Og þetta krefst fórna sem við höfum ekki séð síðan í síð­ari heims­styrj­öld­inni.“

Nýja kór­ónu­veiran hefur sýkt mun fleira fólk í Banda­ríkj­unum en sýna­tökur sýna fram á. Nauð­syn­legt er að grípa til rót­tækra aðgerða í ríkjum þar sem veiran hefur ekki stungið sér niður að ráði til að hefta útbreiðsl­una, koma í veg fyrir veik­indi og dauðs­föll.

Þetta eru nið­ur­stöður vís­inda­manna við Columbia-háskóla sem studd­ust í rann­sókn sinni við gagna­banka New York Times um þekkt til­felli veirunnar sem og opin­ber gögn smit­sjúk­dóma­varna í land­inu. Mjög mikil óvissa er í öllum spálík­önum um þróun far­ald­urs­ins vest­an­hafs og breyt­ast spárnar mjög hratt.

Engu að síður eru miklar blikur á lofti; jafn­vel þó að það tak­ist að fækka smitum veru­lega á næst­unni er mögu­legt að um 650 þús­und Banda­ríkja­menn sýk­ist á næstu tveimur mán­uðum.

Aukning til­fella er aðal­lega rakin til smit­aðra sem eru með engin eða lítil ein­kenni og vita því ekki að þeir eru smit­berar. Vís­inda­menn Columbia-háskóla telja að miðað við fyr­ir­liggj­andi gögn megi gera ráð fyrir því að fjöldi smit­aðra sé ell­efu sinnum meiri en nið­ur­stöður sýna­taka benda til. Þetta segja þeir til marks um hversu yfir­völd í Banda­ríkj­unum hafa dreg­ist aftur úr mörgum öðrum þjóðum í því að skima fyrir veirunni.

Nokkur svæði í Banda­ríkj­unum eiga á meiri hættu en önnur að sjá gríð­ar­lega aukn­ingu til­fella jafn­vel þótt að gripið hafi verið til rót­tækra aðgerða, m.a. New York-borg, Seattle, Boston og Kali­forn­íu­ríki. Í gær höfðu 4.000 stað­fest smit greinst í New York og vís­inda­menn gera ráð fyrir að sú tala eigi eftir að marg­fald­ast.

Brooklyn-brúin er yfirleitt yfirfull af ferðamönnum. Í dag er hún nánast tóm.
Brooklyn-brúin er yfir­leitt yfir­full af ferða­mönnum. Í dag er hún nán­ast tóm.

Vís­inda­menn­irnir benda hins vegar á að svæði þar sem veiran hefur ekki stungið sér niður að ráði geti enn varist mik­illi útbreiðslu ef hörðum aðgerðum verður beitt nú þegar. Nauð­syn­legt sé að banna fjölda­sam­komur og fram­kvæma mun fleiri sýna­tökur en nú er gert. Verði það gert gæti hægt á útbreiðsl­unni á lands­vísu.

„Við erum að sjá hörm­ungar á skala sem við höfum ekki séð af völdum smit­sjúk­dóms frá árinu 1918,“ hefur New York Times eftir Jeffrey Shaman, pró­fessor í lýð­heilsu við Columbia-háskóla. „Og þetta krefst fórna sem við höfum ekki séð síðan í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Það verða gríð­ar­legar trufl­anir. Það er engin ein­föld leið út úr þessu.“

Víðs vegar um Banda­ríkin hefur þegar verið gripið til ýmissa ráð­staf­ana. Skólum hefur verið lokað, böru mog veit­inga­húsum sömu­leiðis og ferða­lög eru fátíð. Í Kali­forníu, New York og Illinois hafa yfir­völd sett á sam­komu­bann og beita öðrum rót­tækum aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Miðað við þær aðgerðir þarf að minnsta kosti fimmti hver Banda­ríkja­maður að vera heima hjá sér næstu dag­ana. Um 75 millj­ónir manna eiga að halda sig heima. Von er á því að yfir­völd fleiri borga og ríkja gripi til sam­bæri­legra ráð­staf­ana á næst­unni.

Donald Trump sagði í gær, föstu­dag, að hann ætti ekki von á því að gefa út fyr­ir­mæli til þjóð­ar­innar allrar að halda sig heima. Nokkrum dögum fyrr hafði rík­is­stjórn hans gefið út leið­bein­ingar um „fimmtán daga pásu“ þar sem Banda­ríkja­menn voru hvattir til að forð­ast fjöl­menna mann­fagn­aði.

Ljóst þykir að „fimmtán daga pásan“ mun lík­lega vara lengur.

Í dag er stað­fest að yfir 11.800 manns um allan heim hafa lát­ist úr COVID-19 sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran veldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár