Kolefnishlutleysi 2045 – Svíar lögfesta metnaðarfull loftslagsmarkmið

Sænska þingið sam­þykkti metn­að­ar­fullar og lög­bundnar áætl­anir um kolefn­is­hlut­leysi Sví­þjóðar árið 2045. Þetta er fyrsta alls­herj­ar­lofts­lags­lög­gjöfin í heim­inum sem sett er fram í kjöl­far Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins 2015.

Isabella Lövin, varaforsætisráðherra Svíþjóðar og ráðherra græningja, afgreiddi málið úr ríkisstjórn í febrúar. Undirritunin vakti athygli vegna uppstillingarinnar á myndinni; Þar eru bara konur og hún á að vera einskonar ádeila á Donald Trump.
Isabella Lövin, vara­for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar og ráð­herra græn­ingja, afgreiddi málið úr rík­is­stjórn í febr­úar. Und­ir­rit­unin vakti athygli vegna upp­still­ing­ar­innar á mynd­inni; Þar eru bara konur og hún á að vera eins­konar ádeila á Donald Trump.

Sænska þingið hefur sam­þykkt laga­lega bind­andi mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi lands­ins árið 2045. Þetta er fyrsta lofts­lags­lög­gjöfin í Svíþjóð og fyrsta alls­herj­ar­lög­gjöfin sem sett er um lofts­lags­mál í kjöl­far lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París 2015.

[links]Frá þessu er greint á vef sænskra stjórn­valda en rík­is­þingið greiddi atkvæði um þau 15. júní síð­ast­lið­inn. 254 þing­menn greiddu atkvæði með nýju lög­unum en 41 þing­maður Sví­þjóð­ar­demókrata kaus gegn þeim, sam­kvæmt Climate Home.

Svíþjóð er aðild­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu og partur af sam­eig­in­legu mark­miði Evr­ópu­ríkja gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við árið 1990. Ísland er einnig aðili að þessu sam­eig­in­lega mark­miði.

Lögin munu taka gildi á fyrsta degi næsta árs. Í þeim eru þrjár meg­in­stoðir sem eiga að stuðla að því að lofts­lags­mark­miðin náist, sama hvaða flokkar eða stjórn­mála­menn eru við völd.

[adspot]

Verða að meta stöðuna á hverju ári

Fyrir það fyrsta þá skylda lögin sænsk stjórn­völd til þess að byggja áætl­anir sínar á mark­mið­unum í lofts­lags­málum. Stjórn­völd verða jafn­framt að útlista hvernig þessum mark­miðum verði náð.

Gagna­öfl­unar- og upp­lýs­inga­skylda sænsku stjórn­ar­innar er einnig skýr: á hverju ári verða stjórn­völd að kynna sér­staka lofts­lags­skýrslu í fjár­laga­frum­varpi sínu og fjórða hvert ár verður að upp­færa stefnu­mót­un­ar­á­ætl­anir um hvernig mark­mið­unum verði náð.

Þannig eru fjár­út­lát rík­is­ins borin saman við áfanga og áætl­anir í lofts­lags­málum á hverju ári og áætl­anir upp­færðar í sam­ræmi við það.

Kolefnishlutleysi 2024

Lofts­lags­mark­miðin eru önnur stoð lag­anna en þar segir að árið 2045 ætli Svíþjóð að vera kolefn­is­hlut­laust, þe. losa jafn mikið eða minna af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en bundið er í jörðu. Eftir árið 2045 er mark­miðið að los­unin verði nei­kvæð, þe. meira bundið í jörðu en sett er út í and­rúms­loftið.

Þetta verður gert með því að draga úr losun en einnig með því að binda meira af kolefni í jörðu. Þá hyggj­ast stjórn­völd fjár­festa í ræktun skóga utan Sví­þjóðar, með svo­kall­aðri kolefn­is­upp­bót. Á end­anum er gert ráð fyrir að útblástur frá Svíþjóð verði um 85 pró­sent minni en árið 1990.

Í lög­unum er einnig kveðið á um mark­mið til skemmri tíma og eru þau ekki síður metn­að­ar­full. Árið 2030 á útblástur frá þeim geirum sem falla undir sam­eig­in­legt mark­mið Evr­ópu­ríkja að vera 63 pró­sent minni en árið 1990 og 75 pró­sent minni árið 2040.

Loftslagsstefnuráð til ráðgjafar

Þriðja stoð nýju lofts­lagslag­anna í Svíþjóð er sér­stakt sjálf­stætt lofts­lags­stefnu­ráð sem á að veita stjórn­völdum aðhald. Ráðið á að meta stefnu­mörkun stjórn­valda og upp­lýsa um hversu lík­legt sé að stefnan skili árangri miðað við sett mark­mið.

Lofts­lags­lögin hafa verið í und­ir­bún­ingi und­an­farin ár. Sérstök þverpóli­tísk nefnd um umhverf­is­verk­efni hefur unnið að lag­ara­mm­anum og að mótun loft­lags­á­ætl­unar fyrir Svíþjóð.

Í Svíþjóð ríkir nú sam­steypu­stjórn sós­í­alde­mókrata og græn­ingja. Vara­for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, græn­ing­inn Isabella Lövin, afgreiddi málið frá rík­is­stjórn­inni í febr­úar og þingið tók afstöðu til þess um miðjan mán­uð­inn.

Íslensk loftslagslög síðan 2012

Á Íslandi er í gildi lag­ara­mmi um aðgerðir stjórn­valda í lofts­lags­málum. Lofts­lags­lögin voru sam­þykkt árið 2012 en þar er fjallað um hlut­verk rík­is­stofn­ana gagn­vart alþjóð­legum skuld­bind­ingum, fjallað um gerð aðgerða­á­ætl­ana og þau tól sem fyrir eru til mót­vægis útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Lögin voru ekki síst gerð og sam­þykkt til þess að setja einn hatt á lofts­lags­að­gerðir og -verk­efni íslenskra stjórn­valda. Árið 2012 hafði Ísland gengið í sam­starfið um

Markmið Íslands eru hins vegar ekki bundin í íslensk lög og ekki er kveðið á um að stjórn­völd eða almenn­ingur séu upp­lýst um árangur stefnu­mót­un­ar­innar. Umhverf­is­stofnun hefur, sam­kvæmt lög­unum, það hlut­verk að upp­færa los­un­ar­bók­hald Íslands og skila til Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar á hverju ári. Það verk­efni kemur til vegna þátt­töku Íslands í Kýóto-sam­komu­lag­inu.

Breiðari samstaða innan stjórnarráðsins

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur und­ir­ritað sér­staka sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu milli ráðu­neyta um breið­ari sam­stöðu innan stjórn­ar­ráðs­ins um aðgerðir í lofts­lags­málum í maí síð­ast­liðnum. Það eru þess vegna sex ráðu­neyti sem munu standa að gerð nýrrar aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum. Sú áætlun sem er nú í gildi er síðan 2010.

Það eru nýmæli að svo mörg ráðu­neyti standi form­lega á bak við gerð aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum en hingað til hafa lofts­lags­mál verið á könnu umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins. Umhverf­is­ráðu­neytið hefur svo óskað eftir sam­starfi við önnur ráðu­neyti.

Í fyrra sam­þykkti Ísland Par­ís­ar­samn­ing­inn og undir honum er Ísland í sam­floti með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum með mark­mið um að minnka losun um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

Áætlað er að end­an­legar skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu verði á bil­inu 35-40 pró­sent minnkun útstreym­is. Enn hafa form­legar við­ræður ekki haf­ist milli Íslands og ESB. Yfir­völd í Brus­sel vilja ekki hefja þær við­ræður fyrr en reglu­verkið í kringum þessi sam­eig­in­legu mark­mið hefur verið frá­gengið og sam­þykkt. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur íslenskum stjórn­völdum verið sagt að sú vinna eigi að klár­ast fyrir árs­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár