Grænir hvatar og umhverfisskattar verði undirstaða lágkolvetnishagkerfis á Íslandi

Breiðara sam­starf verður innan stjórn­ar­ráðs­ins um aðgerðir í lofts­lags­málum. Sex ráð­herrar und­ir­rit­uðu sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu í gær. Grænir hvatar og umhverf­is­skattar skoð­aðir til að ýta undir þróun íslensks sam­fé­lags.

Frá undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar í gær. Frá vinstri: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Björt Ólafsdóttir, Bjarni Benediktsson, Benedikt Jóhannesson og Jón Gunnarsson.
Frá und­ir­ritun sam­starfs­yf­ir­lýs­ing­ar­innar í gær. Frá vinstri: Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, Björt Ólafs­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son, Benedikt Jóhann­es­son og Jón Gunn­ars­son. Mynd: Umhverfisráðuneytið

Rík­is­stjórn Íslands hefur hrundið af stað gerð aðgerða­á­æt­unar í lofts­lags­málum til árs­ins 2030. Við það til­efni var sam­starfs­yf­ir­lýs­ing milli sex ráð­herra um aðgerðir í lofts­lags­málum und­ir­rituð að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í gær.

Það eru nýmæli að svo mörg ráðu­neyti standi form­lega á bak við gerð aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum en hingað til hafa lofts­lags­mál verið á könnu umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins. Umhverf­is­ráðu­neytið hefur svo óskað eftir sam­starfi við önnur ráðu­neyti.

Það voru þau Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra, Björt Ólafs­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir ferða­mála, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra sem und­ir­rit­uðu sam­starfs­yf­ir­lýs­ing­una.

[links]Björt Ólafs­dóttir boð­aði gerð nýrrar aðgerða­á­ætl­unar í við­tali við Kjarnann í mars, eftir að Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands hafði skilað skýrslu sinni um stöðu og stefnu Íslands í lofts­lags­málum. Staðan er ekki nógu góð og íslensk stjórn­völd þurfa að grípa í taumana til þess að hægt sé að standa við þær skuld­bind­ingar sem þegar hefur verið geng­ist undir.

Í fyrra sam­þykkti Ísland Par­ís­ar­samn­ing­inn og undir honum er Ísland í sam­floti með Evr­ópu­sam­bands­ríkjum með mark­mið um að minnka losun um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

Áætlað er að end­an­legar skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu verði á bil­inu 35-40 pró­sent minnkun útstreymis. Enn hafa form­legar við­ræður ekki haf­ist milli Íslands og ESB. Yfirvöld í Brussel vilja ekki hefja þær við­ræður fyrr en reglu­verkið í kringum þessi sam­eig­in­legu mark­mið hefur verið frá­gengið og sam­þykkt. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur íslenskum stjórn­völdum verið sagt að sú vinna eigi að klár­ast fyrir árs­lok.

[adspot]

Síðast var gerð aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum árið 2010 í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Sú áætlun er enn í gildi. Í henni er miðað að því að Ísland nái að upp­fylla skuld­bind­ingar sínar gagn­vart fram­haldi Kýótó-bók­un­ar­innar til 2020. Til við­bótar við aðgerða­á­ætl­un­ina lagði rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar fram sókn­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum í nóv­em­ber 2015 þar sem lögð var áhersla á valdar aðgerðir.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um orku­skipti í sam­göngum vóg þyngst í sókn­ar­á­ætl­un­inni en hún var aldrei afgreidd af Alþingi. Tillagan var svo lögð aftur fram af Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur í vetur. Aðrar aðgerðir hafa kom­ist til fram­kvæmda, eins og til dæmis end­ur­heimt vot­lendis en vinna við kort­lagn­ingu og fram­kvæmdir hófust síð­asta sumar.

Útstreymi frá Íslandi eykst

Þrátt fyrir þær skuld­bind­ingar sem Ísland hefur geng­ist undir hefur losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi auk­ist síðan árið 2011.

Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi jókst um 1,9 pró­sent á milli ára 2014 og 2015 og hefur útstreymið ekki verið hærra síðan árið 2010.

Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi jókst um 28 pró­sent árið 2015 miðað við við­mið­un­ar­árið 1990. Losun frá Íslandi náði hæstu hæðum árið 2008 vegna stór­auk­inna umsvifa stór­iðju hér á landi. Í kjöl­far efna­hags­þreng­inga sama ár og vegna auk­inna krafa um föngun kolefnis frá stór­iðju dróst losun saman á árunum 2009, 2010 og 2011 en var svo nokkuð svipuð þar eft­ir.

Sé rýnt í þær breyt­ingar sem orðið hafa síðan 1990 má sjá að iðn­að­ar­fram­leiðsla ber ábyrgð á rúm­lega helm­ingi aukn­ing­ar­innar til árs­ins 2015. Far­ar­tæki á landi bera ábyrgð á nærri því fjórð­ungi aukn­ing­ar­inn­ar.

Vegna þátt­töku Íslands í sam­eig­in­legum mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir fellur um það bil 40 pró­sent af losun Íslands utan skuld­bind­ing­anna. Það þýðir að stjórn­völd hér á landi eru ekki skuld­bundin í alþjóða­samn­ingum til þess að draga úr losun frá álf­ram­leiðslu, járn­blendi, alþjóða­flugi og fleiri geirum sam­fé­lags­ins.

Breyta þarf eignarhaldi á málaflokkinum

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um stöðu Íslands í lofts­lags­málum sem kynnt var í febr­úar á þessu ári kemur fram að íslensk stjórn­völd þurfa að grípa til rót­tækra aðgerða ef mark­mið í lofts­lags­málum eiga að nást.

Í við­tali við Kjarnann í mars sagði Björt Ólafs­dóttir að henni þætti mik­il­vægt að fleiri ráðu­neyti eign­uðu sér mála­flokk lofts­lags­mála.

„Ég hef sagt það, og það er mín stað­fasta trú, að ef að við ætlum að ná ein­hverjum árangri í lofts­lags­málum þá verður að vera breytt eign­ar­hald á því stóra verk­efni,“ sagði Björt. „Það er ekki þannig að það dugi eitt og sér að hafa umhverf­is­ráð­herra sem er öfl­ugur og vill vel. Ég verð að ná áheyrn fleira fólks og auð­vitað þeirra sem stjórna en ekki síst: Þetta kemur ekki „top-down“. Það mun ekki virka mjög vel ef við segjum bara „ger­iði svona og hinsegin“.“

Í sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu ráð­herrana síðan í gær segir að ný aðgerða­á­ætlun verður unnin undir for­ystu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins, og að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sam­göngu­ráðu­neytið og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið muni taka fullan þátt í gerð hennar.

Mark­miðið verður að velja þær aðgerðir sem „eru hag­kvæm­astar og skila fjöl­þættum ávinn­ingi auk minnk­andi los­unar, s.s. minni loft­mengun, end­ur­heimt jarð­vegs og gróð­urs, auk­inni nýsköpun og jákvæðri ímynd atvinnu­greina og Íslands.“

Í yfir­lýs­ing­unni segja ráð­herr­arnir að helstu tæki­færi Íslands til þess að draga úr losun liggi í sam­göngum, sjáv­ar­út­vegi, land­bún­aði og land­notkun. „Raf­væð­ing bílaflot­ans er til að mynda raun­hæf leið til að nýta inn­lenda græna orku á hag­kvæman hátt og sjávarútveg­ur­inn hefur mikla möguleika á að draga frekar úr losun í gegnum til að mynda orku­skipti og tækni­lausnir við veiðar.“

Athygl­is­vert er að í sam­starfs­yf­ir­lýs­ing­unni er sagt að sér­stök áhersla verði lögð á að „skoða hvar hægt er að beita grænum hvötum og umhverf­is­sköttum til að ýta undir þróun íslensks sam­fé­lags í átt að lág­kolefn­is­hag­kerfi“.

Þetta eru kannski ekki nýmæli en viss stefnu­breyt­ing frá því að sókn­ar­á­ætlun síð­ustu rík­is­stjórnar var lögð fram. Í til­efni af sókn­ar­á­ætl­un­inni sagði Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn, að ekki stæði til að beita skatta­legum hvötum til þess að knýja á um aðgerðir í lofts­lags­málum.

Hér á landi gilda þegar reglur um kolefn­is­skatta, mis­mun­andi verð­flokka bif­reiða­gjalda eftir útblæstri og olíu­gjald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár