Veirufræðideildin getur aðeins unnið 500 sýni á dag

Í skýrslu verk­efn­is­stjórnar um und­ir­bún­ing fram­kvæmdar vegna sýna­töku og grein­ingar á COVID-19 meðal far­þega sem koma til lands­ins kemur fram að verk­efnið sé fram­kvæm­an­legt en að leysa þurfi úr mörgum verk­þáttum áður en hægt verður að hefj­ast handa.

Bæta þarf aðstöðu sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, alveg óháð skimun á ferðamönnum.
Bæta þarf aðstöðu sýkla- og veiru­fræði­deildar Land­spít­al­ans, alveg óháð skimun á ferða­mönnum. Mynd: EPA

Sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala er ekki í stakk búin til að vinna nema 500 veiru­sýni á dag fyrir far­þega sem koma hingað til lands. Til að auka afkasta­getu þarf að bæta tækja­búnað, mönnun og aðstöðu deild­ar­innar en miðað við fyr­ir­liggj­andi áætl­anir er í fyrsta lagi hægt að auka afkasta­getu í 1000 sýni á dag eftir miðjan júlí. Aðeins tíu þús­und sýna­töku­sett eru nú til í land­inu.

Þetta er meðal helstu nið­ur­staðna skýrslu verk­efn­is­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 að á landa­mærum hér á landi. Skýrslan var kynnt heil­brigð­is­ráð­herra í dag en sam­kvæmt henni þarf að leysa ýmis mál áður en hægt er hrinda skimun komu­far­þega í fram­kvæmd. Ákvörðun um aflétt­ingu ferða­tak­mark­ana liggur ekki fyrir og verður ekki tekin fyrr en til­lögur sótt­varna­læknis til ráð­herra þar af lút­andi liggja fyrir.

Í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar segir að mik­il­vægt sé að líta til þess að ef upp komi hóp­sýk­ingar og smit eykst í sam­fé­lag­inu munu þau sýni hafa for­gang fram yfir sýni úr ein­kenna­lausum komu­far­þegum. „Aðkoma ann­arra grein­ing­ar­að­ila er mögu­legt úrræði til að auka grein­ing­ar­get­una en ekki hefur verið lagt mat á hver sú sam­an­lagða grein­ing­ar­geta gæti verið.“

Þá segir að sú óvissa sem ríki um fjölda komu­far­þega á verk­efn­is­tíma­bil­inu gæti stofnað verk­efn­inu í hættu þar sem „farið gæti verið fram úr afkasta­getu þess og þeim fyr­ir­heitum að taka sýni hjá öllum komu­far­þegum varpað fyrir róða“. Þetta á við hvort heldur sem er á skil­greindu tíma­bili eða mögu­legu fram­haldi þess þar sem vænt­ingar um sýna­töku kunna að vera for­senda fyrir ferða­lagi til Íslands.

Verk­efn­is­stjórnin telur að unnt sé að skila nið­ur­stöðum á um það bil fimm klukku­stundum frá því síð­asta sýni er tekið úr far­þegum við­kom­andi flug­vélar á Kefla­vík­ur­flug­velli frá morgni og fram eftir degi. Sýni sem ber­ast smit­sjúk­dóma­deild eftir kl. 17 verða greind næsta morgun nema mönnun verði aukin.

Fyrirséð er að grein­ing sýna frá öðrum landamæra­stöðvum gæti tekið lengri tíma, sér­stak­lega ef senda þarf sýnin lands­horna á milli.

Kostn­aður á hvert sýni er áætl­aður undir 50 þús­und krónum svo fram­ar­lega sem tekin eru fleiri en 107 sýni á dag. Kostn­að­ur­inn fer lækk­andi með fjölgun sýna og er tæpar 23 þús­und krónur miðað við 500 sýni á dag.

Þá segir í skýrsl­unni að nauð­syn­legt sé að kveða á um í lögum eða reglum um ábyrgð flug­rek­enda á for­skrán­ingu far­þega til að fækka smit­andi ein­stak­lingum sem gætu komið til lands­ins, til að sýna­töku­ferlið geti gengið hratt og vel fyrir sig og til að auð­kenna þá far­þega sem fram­vísa vott­orðum eða velja að fara í sótt­kví. Einnig er nauð­syn­legt að frá­vís­un­ar­heim­ildir á landa­mærum séu skýrar gagn­vart þeim sem ekki ætla að hlíta sótt­varna­ráð­stöf­unum.

„Mik­il­vægt er að tryggja áfram­hald­andi verk­lag um sýna­töku vegna veik­inda í land­inu, grein­ingu, smitrakn­ingu, sótt­kví og ein­angrun með því að hafa sam­hæf­inga­stöð almanna­varna og sótt­varna áfram virka til að koma í veg fyrir útbreiðslu smits,“ segir í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar og að upp­lýs­inga­gjöf til ferða­manna sé mik­il­vægur hluti verk­efn­is­ins. Bæta þurfi sér­stak­lega við virkni Rakning C-19 smá­forrits­ins og upp­lýs­ingar til ferða­manna í því.

Hildur Helga­dóttir sem leiddi vinnu verk­efn­is­stjórn­ar­innar kynnti nið­ur­stöð­urnar fyrir heil­brigð­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra á fundi í gær ásamt öðrum full­trúum verk­efn­is­stjórn­ar­innar. Fundinn sat einnig sótt­varna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár