Stjórnarskrárnefnd skilar: Auðlindir í þjóðareign og 15% geta krafist þjóðaratkvæðis

Stjórn­ar­skrár­nefnd hefur skilað Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra til­lögum sínum að breyt­ingum á stjórn­ar­skránni. Nefndin leggur til að sett verði inn almennt ákvæði um að auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyri íslensku þjóð­inni, ákvæði um umhverfis- og nátt­úru­vernd og ákvæði þar sem lagt er til að 15% kosn­inga­bærra manna geti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um lög frá Alþingi. Ekki náð­ist sam­komu­lag um ákvæði um fram­sal vald­heim­ilda í þágu alþjóða­sam­vinnu.

Þjóðareign á náttúruauðlindum

Nefndin skil­aði for­sæt­is­ráð­herra þremur frum­vörpum til stjórn­skip­un­ar­laga. Í frum­varp­inu um þjóð­ar­eign á nátt­úru­auð­lindum er almennt ákvæði um að auð­lindir í nátt­úru Íslands til­heyri íslensku þjóð­inni.

„Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Þær ber að nýta á sjálf­bæran hátt og til hags­bóta lands­mönnum öllum. Ríkið hefur eft­ir­lit og umsjón með með­ferð og nýt­ingu auð­lind­anna í umboði þjóð­ar­innar,“ segir í frum­varp­inu. „ Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Enginn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota og aldrei má selja gæðin eða veð­setja.“ Þá eigi að jafn­aði að taka „eðli­legt gjald fyrir heim­ildir til nýt­ingar nátt­úru­auð­linda og lands­rétt­inda sem eru í eigu íslenska rík­is­ins eða þjóð­ar­eign.“ Þá eigi að gæta jafn­ræðis og gagn­sæis í veit­ingu nýt­ing­ar­heim­ilda, og slíkar heim­ildir leiði aldrei til var­an­legs eign­ar­réttar eða for­ræðis.

Umhverfis- og náttúruvernd

„Náttúra Íslands er und­ir­staða lífs í land­inu. Ábyrgð á vernd nátt­úru og umhverfis hvílir sam­eig­in­lega á öllum og skal verndin grund­vall­ast á var­úðar- og lang­tíma­sjón­ar­miðum með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi. Stuðlað skal að því að fjöl­breytni nátt­úr­unnar sé við­haldið og vöxtur líf­ríkis og við­gangur tryggður,“ segir í frum­varp­inu um umhverfis- og nátt­úru­vernd. Jafn­framt kemur þar fram að almenn­ingi sé heimil för um landið og „dvöl þar í lög­mætum til­gangi. Ganga skal vel um nátt­úr­una og virða hags­muni land­eig­enda og ann­arra rétt­hafa.“

Þjóðaratkvæðagreiðslur með 15% undirskrifta

Í frum­varp­inu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur að kröfu hluta kjós­enda er lagt til að fimmtán pró­sent kosn­ing­ar­bærra manna geti knúið fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um lög frá Alþingi. „Fjárlög, fjár­auka­lög, lög um skatta­mál­efni og lög sem sett eru til að fram­fylgja þjóð­rétt­ar­skuld­bind­ingum verða ekki borin undir þjóð­ina sam­kvæmt þess­ari máls­grein,“ segir í frum­varp­inu og verða því þess konar lög ekki sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu með þessum hætti.

„Til þess að hnekkja lögum eða álykt­unum sam­kvæmt þess­ari grein þarf meiri hluti í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, þó minnst fjórð­ungur kosn­ing­ar­bærra manna, að synja þeim sam­þykkis,“ segir í frum­varp­inu, og því er gerð krafa um kosn­inga­þátt­töku.

Harma nauman tíma til að klára málið

Full­trúar minni­hlut­ans á þingi í nefnd­inni, þau Aðal­heiður Ámunda­dóttir fyrir Pírata, Katrín Jak­obs­dóttir fyrir VG, Róbert Marshall fyrir Bjarta fram­tíð og Val­gerður Bjarna­dóttir fyrir Sam­fylk­ing­una, segja ljóst að tím­inn sé orð­inn naumur til að ljúka þing­legri með­ferð stjórn­ar­skrár­breyt­inga á kjör­tíma­bil­inu. „Það eru mikil von­brigði að þessi vinna skuli ekki hafa gengið hraðar en sýnir mik­il­vægi þess að nýr meiri hluti á þingi for­gangsraði því að ljúka þeirri vinnu sem hófst með þjóð­fundi 2010 að afloknum kosn­ingum í haust,“ segja þau í bókun sinni um nið­ur­stöð­una.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Birgir Ármanns­son og Val­gerður Gunn­ars­dóttir, koma einnig inn á óviss­una sem ríkir um fram­haldið. „Í ljósi stjórn­mála­á­stands­ins er óvíst hvað nú tekur við þegar stjórn­ar­skrár­nefnd skilar for­sæt­is­ráð­herra nið­ur­stöðum sínum í formi þriggja frum­varpa. Hvernig sem þró­unin verður að því leyti árétta full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins þá afstöðu sína að við frek­ari vinnu við þessi frum­vörp og aðrar hugs­an­legar til­lögur til stjórn­ar­skrár­breyt­inga verði áfram leit­ast við að ná sem víð­tæk­astri sátt um nið­ur­stöð­urnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár