Apple vill kanna reikningstöðu viðskiptavina sinna

Tölvuris­inn Apple hefur sótt um einka­leyfi á tækni sem kannar stöðu korta­reikn­inga og miðlar svo aug­lýs­ingum á vefnum til fólks eftir því hvað það hefur efni á að kaupa. Frá þessu var greint í dag.

Í einka­leyf­is­um­sókn­inni segir að kostir þess­arar tækni sé betra úrtak þegar aug­lýs­ingum er dreift á fólk á vefnum. Snjall­símar fólks virka orðið eins og gagna­banki um ein­stak­linga og þessar upp­lýs­ingar vill Apple nota til að mark­aðs­her­ferðir skili betri árangri.

Í síð­asta mán­uði fékk Apple einka­leyfi á hug­bún­aði sem dreifir með aug­lýs­ingum í tölvu­pósti, smá­skila­boðum og sam­fé­lags­miðlum efitr upp­lýs­ingum sem fást síma­núm­erum, tölvu­póst­föngum og öðrum per­sónu­legum gögnum.

Svo aug­lýs­ingar fram­tíð­ar­innar í Apple-snjall­tækjum munu aðeins kynna vörur sem eig­and­inn hefur efni á á hverri stundu.

Tim Cook, for­stjóri Apple, hefur hins vegar lýst því yfir að hann kunni ekki við aug­lýs­ingar sem byggi á per­sónu­upp­lýs­ingum. Hann und­ir­strik­aði í ræðu fyrr á þessu ári að Apple hafi ekki áhuga á að breyta við­skipta­vinum sínum í vöru fyrir mark­aðstjóra.

„Þeir grafa upp allan fróð­leik um þig sem þeir geta og reyna að búa til pen­inga úr því,“ sagði Cook. „Okkur þykir það ekki rétt­læt­an­legt og það er ekki það sem við viljum gera úr fyr­ir­tæk­inu Apple.“

Banda­ríski vef­mið­ill­inn Mashable rekur hins vegar ástæður þess hvers vegna fólk ætti að taka þessum orðum Cook með fyr­ir­vara því und­an­farið hefur Apple átt við­skipti sem gætu bent til ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár