Allt lestarkerfi Hollendinga knúið vindorku árið 2018

Hollensk lestar­fé­lög hafa sam­ein­ast um að ætla að knýja allt lest­ar­kerfi lands­ins með vind­orku eftir þrjú ár. Hol­lenska orku­fyr­ir­tækið Eneco hefur gengið að sam­komu­lagi við lestar­fé­lögin um að útbúa raf­orku­kerfið fyrir þessar breyt­ingar.

Nú þegar er helm­ingur alls lest­ar­kerf­is­ins, sem er 2.890 kíló­metra langt og þjón­ustar um 1,2 milljón manns á hverjum degi, knúið vind­orku. Verk­efnið sem ráð­ist verður í á næstu þremur árum miðar einnig að því að hraða inn­leið­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í öðrum Evr­ópu­löndum.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Lest­ar­k­efið í Hollandi þjón­ustar um það bil 1,2 milljón manns á hverjum degi. (Mynd: EPA)[/caption]

Orkan verður fram­leidd í vind­orku­verum í Hollandi, Belgíu og nokkrum af Norð­ur­lönd­unum. Síðustu ár hefur vind­orka hlotið byr undir báða vængi um allan heim. Samkvæmt upp­lýs­ingum Alþjóða orku­ráðs­ins hefur inn­leið­ing vind­orku í raf­orku­kerfi heims­ins auk­ist um að jafn­aði 24 pró­sent á hverju ári síðan árið 2000. Ráðið spáir því að ef áætl­anir haldi muni vind­orka verða 18 pró­sent allrar orku­fram­leiðslu heims­ins árið 2050.


Lest­ar­kerfið er ekki eina verk­efni orku­fyr­ir­tæks­ins Eneco því nýverið gekk fyr­ir­tækið frá samn­ingum við Google um að sjá gagna­veri hug­bún­að­ar­ris­ans banda­ríska fyrir raf­orku ein­göngu með vind­orku.

Aldrei meiri eftirspurn eftir sólarorku í Bandaríkjunum

Samtök um sól­ar­orku­iðn­að­inn í Banda­ríkj­unum (SEIA) segja að aldrei hafi verið jafn mikil eft­ir­spurn eftir raf­orku sem fram­leidd er með sól­ar­sellum. Gríð­ar­leg upp­bygg­ing hefur verið á innviðum fyrir sól­ar­orku­fram­leiðslu vestra á síð­ustu miss­erum. Á raf­orku­mark­að­inum komst sól­ar­orka í fyrsta sinn yfir 20 gíga­vött í júní. Þá hefur orðið 70 pró­sent vöxtur í sölu sól­ar­orku til heim­ila, að sögn SEIA.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] SEIA vill að banda­rísk stjórn­völd lagi lög­gjöf lands­ins að nýsköpun í raf­orku­fram­leiðslu. (Mynd: EPA)[/caption]

Lobbý­istar sól­ar­orku­iðn­að­ar­ins þrýsta nú á stjórn­völd að auka skatta­af­slátt á fjár­fest­ingar í sól­ar­orku svo þessi fram­leiðsla geti haldið áfram að vaxa. „Eft­ir­spurn eftir sól­ar­orku er nú meiri en nokkru sinni og þróun und­an­far­inna miss­era sýnir að Ameríka verður að við­halda snjallri, árang­urs­rík­ari og fram­sýnni stefnu­mótun,“ segir Rhone Resch, for­seti SEIA.


Sól­ar­orka á þó langt í land vest­an­hafs enda var orku­fram­leiðsla með sól­ar­orku aðeins 0,4 pró­sent af allri raf­orku í Banda­ríkj­unum. Það er um það bil eitt pró­sent af þeirri raf­orku sem fram­leidd er með brennslu kola.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár