Mint Solutions fær 650 milljóna fjármögnun - Ör vöxtur og mikil tækifæri

Íslensk-hol­lenska hátækni­fyr­ir­tækið Mint Solutions hefur lokið við 650 milljón króna fjár­fest­ingu sem gerir fyr­ir­tæk­inu kleift að hraða mark­aðs­setn­ingu og inn­leið­ingu lyfja­ör­ygg­is­kerf­is­ins MedEye á sjúkra­húsum og heil­brigð­is­stofn­unum í Evrópu og í Banda­ríkj­unum. Fjár­magnið kemur frá hópi fjár­festa undir for­ystu BOM Capital í Hollandi og tveggja núver­andi hlut­hafa, LSP og Seventure Partners, ásamt Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins og íslenskum einka­fjár­festum.

„MedEye sér til þess sjúk­ling­arnir fái rétt lyf, í réttu magni á réttum tíma og kemur því í veg fyrir lyfja­mis­tök,” segir Gauti Þór Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri Mint Solutions. Hann segir enn­fremur að fjár­fest­ingin muni nýt­ast við að þróa MedEye áfram og svara eft­ir­spurn frá sjúkrá­húsum og heil­brigð­is­stofn­unum í Hollandi og víðar. „Fjár­fest­ingin gerir okkur kleift að efla þróun MedEye enn frekar og svara auk­inni eft­ir­spurn frá sjúkra­húsum og heil­brigð­is­stofn­unum í Hollandi og víðar í Evrópu. MedEye kemur í stað mun flókn­ari og dýr­ari lausna, t.d. strik­a­merk­inga á hverjum lyfja­skammti fyrir sig, og við getum því gjör­bylt þeim mark­aði sem við erum á,“ segir Gauti Þór.

Sjö ára saga

Mint Solutions var stofnað á Íslandi árið 2009 og hefur síðan þá unnið að þróun lyfja­ör­ygg­is­kerf­is­ins MedEye. Kerfið stór­bætir lyfja­ör­yggi á sjúkra­húsum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum, að því er segir í til­kynn­ingu.

Á Íslandi og í Hollandi

Öll þró­un­ar­vinna fer fram á Íslandi. Fyr­ir­tækið er nú með 18 starfs­menn, níu hér á landi og níu í Hollandi, sem er stærsti mark­aður þess, að því er segir í til­kynn­ingu. Með fjár­fest­ing­unni stefnir Mint Solutions á frek­ari land­vinn­inga á alþjóð­legum mörk­uðum, m.a. í Belgíu, Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins fjár­festi í félag­inu árið 2011 og og hefur fylgt fjár­fest­ing­unni eftir síðan þá. „Við höfðum strax trú á þess­ari vöru og sáum tæki­færi til þess að leysa viða­mikið vanda­mál á sviði heil­brigð­is­tækni. Þróun MedEye hefur gengið vel og Mint Solutions hefur nú fengið einka­leyfi fyrir tækn­inni og hafið mark­aðs­setn­ingu í Hollandi. Við fögnum þess­ari nýju fjár­fest­ingu þar sem hún mun gera Mint Solutions og MedEye kleift að ná fót­festu á heims­vísu,“ segir Hekla Arn­ar­dóttir, fjár­fest­inga­stjóri hjá Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins.

Alþjóðlegir hluthafar

Aðrir helstu hlut­hafar í Mint Solutions eru LSP, Seventure Partners og BOM Capital, ásamt minni einka­fjár­festum, stofn­endum og starfs­fólki. Tækni­þró­un­ar­sjóður lagði einnig til styrki við fyr­ir­tækið þegar þróun MedEye hófst.

MedEye er komið í notkun á fjórum hol­lenskum sjúkra­húsum og verið er að inn­leiða kerfið á þremur til við­bótar. Að sögn Gauta Þórs hefur MedEye nú þegar sannað gildi sitt og komið í veg fyrir fjölda lyfja­mistaka. „Sem dæmi hefur Deventer sjúkra­húsið í Hollandi verið með MedEye í notkun síðan í ágúst á síð­asta ári og kerfið er nú notað við öll 250 sjúkra­rúm spít­al­ans. Á þessum tíma höfum við komið í veg fyrir yfir þús­und rangar lyfja­gjafir.“

Viðræður standa nú yfir við mörg stærstu sjúkra­hús Hollands, þar á meðal háskóla­sjúkra­hús. Gauti segir því von á fleiri góðum fréttum af fyr­ir­tæk­inu. „Eft­ir­spurnin eftir MedEye hefur auk­ist mikið á síð­ustu mán­uðum. Sjúkra­húsin eru að átta sig á því að MedEye er mun ódýr­ari og örugg­ari kostur í sam­an­burði við keppi­nauta okkar,“ segir Gauti Þór.

Ívar Helgason, Gauti Reyn­is­son og María Rún­ars­dóttir stofn­uðu fyr­ir­tækið, og hafa fylgt eftir öfl­ugu vaxt­ar­skeiði þess inn á alþjóð­lega mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár