Vilja flytja Útlendingastofnun til Reykjanesbæjar

Nokkrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggja til að færa Útlend­inga­stofnun. Þeir segja Reykja­nes­bær skammt frá og því ekki sér­lega íþyngj­andi fyrir starfs­menn stofn­un­ar­innar ef hún yrði flutt þangað.

Vilhjálmur Árnason, Birgir Þórarinsson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Ásmundur Friðriksson þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Vil­hjálmur Árnason, Birgir Þór­ar­ins­son, Guðrún Haf­steins­dóttir og Ásmundur Frið­riks­son þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Samsett mynd

Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram til­laga til þings­á­lykt­unar um flutn­ing Útlend­inga­stofn­unar til Reykja­nes­bæjar.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Birgir Þór­ar­ins­son og með honum eru þau Guðrún Haf­steins­dóttir, Vil­hjálmur Árnason og Ásmundur Frið­riks­son.

Í grein­ar­gerð­inni með frum­varp­inu er bent á að Útlend­inga­stofnun sé ein af und­ir­stofn­unum dóms­mála­ráðu­neytis og starfi sam­kvæmt lög­gjöf um mál­efni útlend­inga. Umfangs­mesti þátt­ur­inn í starf­semi Útlend­inga­stofn­unar sé útgáfa dval­ar­leyfa, hvort sem um er að ræða dval­ar­leyfi á grund­velli atvinnu­þátt­töku eða til dæmis fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, náms­vistar eða vist­ráðn­ingar, og afgreiðsla umsókna um alþjóð­lega vernd og umsókna um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Stjórt skref í átt að því að tryggja fjölbreytt atvinnutækifæri utan höfuðborgarsvæðisins

„Stofn­unin er til húsa að Dalvegi 18 í Kópavogi og er vinnu­veit­andi 86 starfs­manna. Mikill meiri hluti opin­berra stofn­ana er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og af því leiðir að störf við flestar stofn­anir standa í raun ein­ungis íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til boða. Með flutn­ingi Útlend­inga­stofn­unar til Reykja­nes­bæjar væri tekið stórt skref í átt að því að tryggja fjöl­breytt atvinnu­tæki­færi utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Á Suð­ur­nesjum er hlut­fall háskóla­mennt­aðra mun lægra en lands­með­al­tal. Mikill meiri hluti starfa hjá Útlend­inga­stofnun er sér­fræði­störf sem krefj­ast háskóla­mennt­unar. Með flutn­ingi stofn­un­ar­innar til Reykja­nes­bæjar væri því sér­fræði­störfum fjölgað og hlut­fall háskóla­mennt­aðra á svæð­inu bætt.

Þar að auki býr fjöldi inn­flytj­enda á Suð­ur­nesjum sem nýtir sér þjón­ustu stofn­un­ar­innar, en um 9 pró­sent íbúa í bænum eru af erlendum upp­runa. Þá er rétt að líta til þess að yfir­gnæf­andi meiri hluti þeirra sem sækj­ast eftir alþjóð­legri vernd kemur til lands­ins um Kefla­vík­ur­flug­völl og því væri hent­ugt að stofn­unin væri nær flug­vell­inum. Jafn­framt hefur vel­ferð­ar­svið Reykja­nes­bæjar séð um þjón­ustu og aðbúnað þeirra sem sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi síðan árið 2004 og var bær­inn fyrsta sveit­ar­fé­lagið sem bauð upp á þá þjón­ustu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Myndi laða að nýja íbúa

Þá kemur fram að fólks­fækkun á lands­byggð­inni vegna flutn­inga til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafi um langa hríð verið eitt af meg­in­vanda­málum sam­fé­laga á lands­byggð­inni og sömu­leiðis skortur á störfum og lítil fjöl­breytni þeirra. Aukinn fjöldi og meiri fjöl­breytni starfa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins auki líkur á því að fólk af lands­byggð­inni sem sækir sér menntun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu snúi aftur til heima­bæjar síns eftir að námi lýkur. Jafn­framt laði slíkt að nýja íbúa.

„Í skýrslu Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands um sam­fé­lags­grein­ingu á Suð­ur­nesjum frá 8. októ­ber 2021 kemur fram að atvinnu­líf á Suð­ur­nesjum sé ein­hæft og fram­boð á atvinnu tak­markað. Þá kjósi margir íbúar á svæð­inu að starfa í Reykja­vík þar sem fleiri mögu­leika sé að finna og fjöl­breytt­ara úrval starfa í boði. Atvinnu­líf í Reykja­nesbæ er að miklu leyti háð flug­sam­göngum og ferða­þjón­ustu og lítið um sér­fræði­störf á öðrum sviðum. Flutn­ingur Útlend­inga­stofn­unar til sveit­ar­fé­lags­ins myndi því ótví­rætt fela í sér nauð­syn­lega fjöl­breytni vinnu­mark­að­ar­ins á Suð­ur­nesjum.

Atvinnu­mögu­leikar ráða óneit­an­lega miklu þegar ein­stak­lingar ákveða hvar skal búa, en þeir mögu­leikar eru umtals­vert minni í Reykja­nesbæ en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Bera opin­berar tölur um atvinnu­leysi það skýr­lega með sér. Samkvæmt upp­lýs­ingum Vinnu­mála­stofn­unar var áætlað atvinnu­leysi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í des­em­ber 2021 5 pró­sent, en á sama tíma var atvinnu­leysi í Reykja­nesbæ 9,9 pró­sent. Slíkt mis­ræmi milli bæj­ar­fé­laga er óheppi­legt og því rétt að bregð­ast við með því að efla fram­boð á atvinnu í Reykja­nesbæ og auka fjöl­breytni hennar eins og hér er lagt til,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Að lokum segir að þrátt fyrir að eitt­hvert óhag­ræði yrði fyrir núver­andi starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar að því að starf­semin yrði flutt út fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið, þá sé Reykja­nes­bær skammt frá og því ekki sér­lega íþyngj­andi fyrir starfs­menn stofn­un­ar­innar ef hún yrði flutt þangað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár