Kosningastjóri Hrannars Péturssonar aðstoðar Ragnheiði Elínu

Eva Magn­ús­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­maður Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Eva hóf störf í ráðu­neyt­inu í dag, en hún hefur und­an­farin tvö ár rekið ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Podium ehf. Eva er með MBA gráðu í við­skipta­fræði og stjórnun, diplómu í hag­nýtri fjöl­miðlun og BA gráðu í þjóð­hátta­fræði og leik­hús- og bók­mennta­fræðum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Stefnt er að því að halda þing­kosn­ingar í haust svo ljóst er að ráðn­ing Evu er til skamms tíma. Eva starf­aði fyrir fram­boð Hrannars Pét­urs­sonar til for­seta Íslands, og sendi meðal ann­ars út allar frétta­til­kynn­ingar um fram­boð hans á meðan á því stóð, en hann dró fram­boð sitt til baka eftir að Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti að hann hygð­ist bjóða sig fram á ný. Sem kunn­ugt er dró Ólafur Ragnar svo sitt fram­boð til baka skömmu síðar.

[adspot]

Hrannar var ráð­inn aðstoð­ar­maður Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra sléttri viku eftir að hann dró fram­boð sitt til for­seta til baka í lok apríl síð­ast­lið­ins.

Ragn­heiður Elín hefur allt kjör­tíma­bilið aðeins haft eitt aðstoð­ar­mann, Ingvar Pétur Guð­björns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár