Samningaviðræður um hafnargarðinn framundan

Fram­kvæmda­að­ilar við Hafn­ar­torg vilja við­ræður við Minja­stofnun um fram­tíð hafn­ar­garðs­ins. Þeir hafa gert kröfu upp á rúm­lega 600 millj­ónir króna vegna kostn­aðar og munu ekki setja garð­inn upp aftur nema ríkið borgi.

Lögmaður Reykja­vík Develop­ment, sem er fram­kvæmda­að­ili á Hafn­ar­torgi, býst við því að á næstu vikum verði fundað með Minja­stofnun Íslands um það hvernig haldið skal áfram með mál­efni hafn­ar­garðs­ins, sem var fjar­lægður af lóð­inni í lok síð­asta árs.

Hafn­ar­garð­ur­inn var skyndi­frið­aður fyrir tæpu ári síðan, þegar fram­kvæmdir á lóð­inni voru þegar hafnar, og stöðv­uð­ust fram­kvæmd­irnar um stund. Fram­kvæmda­að­il­arnir sögðu strax þá að frið­lýs­ingin myndi valda þeim 2,2 millj­arða króna tjóni yrði hún stað­fest og það tjón yrði sótt úr hendi Minja­stofn­unar, og þar með rík­is­ins. Gerðar voru alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð­ina.

Fyrir skömmu síðan sendi Mál­flutn­ings­stofa Reykja­víkur kröfu­bréf til Minja­stofn­unar fyrir hönd Reykja­vík Develop­ment vegna kostn­aðar í tengslum við frið­un­ina. Krafan er tví­þætt, ann­ars vegar vegna áorð­ins tjóns vegna breyt­inga á hönnun sem þurfti að ráð­ast í vegna kröf­unnar um verndun garðs­ins, sem og kostn­aðar vegna veru­legra verktafa. Þetta er metið upp á rúm­lega 600 millj­ónir króna. Hins vegar var boðuð krafa fyrir kostn­aði vegna rým­is­ins sem mun fara undir garð­ana, sem og kostn­aði við að setja þá upp og útbúa þá.

Það er um seinna atriðið sem Reykja­vík Develop­ment vill ræða sér­stak­lega við Minja­stofnun, og að sögn Bjarka Þórs Sveins­sonar lög­manns var erindið sem sent var til Minja­stofn­unar þess efnis að beðið hafi verið um fund um fram­haldið. Hann seg­ist hafa verið í sam­bandi við lög­mann Minja­stofn­unar en ekki sé búið að ákveða fund­ar­tíma eða neitt slíkt.

Hafn­ar­garð­ur­inn, sem var fluttur stein fyrir stein í burtu af svæð­inu, er í geymslu. Reykja­vík Develop­ment telur ljóst að ef setja á hann upp aftur á lóð­inni þurfi ríkið að borga þann kostnað, sem gæti hlaupið á millj­örðum. Nú þurfi því að funda um fram­haldið, hvernig hægt sé að lág­marka tjónið og ná niður kostn­aði.

Umdeild lög Sigmundar Davíðs

Fyrr á þessu kjör­tíma­bili voru sam­þykkt lög um vernd­ar­svæði í byggð. Flutn­ings­maður þeirra var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. ­Sam­kvæmt lög­unum get­ur ­for­sæt­is­ráð­herra tekið ákvörðun um vernd byggðar að feng­inni til­lögu sveit­ar­stjórnar eða Minja­stofn­unar Íslands, ekki sveit­ar­fé­lögin sem byggðin er í. Minja­stofnun var færð undir for­sæt­is­ráðu­neytið þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar tók við völd­um. Hún heyrði áður undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­ið. Var þetta gert sér­stak­lega að ósk Sig­mundar Dav­íðs, sem er mik­ill áhuga­maður um skipu­lags- og vernd­ar­mál. Minja­stofnun er eina eft­ir­lits­stofnun lands­ins sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið.

Lög­in hafa verið gagn­rýnd harka­lega, meðal ann­ars af Sam­bandi íslenskra sveita­rfé­laga. Hall­dór Hall­dórs­son, for­maður Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sagði til dæmis að frum­varpið stríði gegn skipu­lags­valdi og sjálf­stjórn­ar­rétti sveit­ar­fé­lag­anna, og að minnsta kosti sé farið mjög nálægt því að brjóta ákvæði stjórn­ar­skrár­innar með því.

Sagði garðinn verða friðaðan áður en ákvörðun var tekin

Þann 7. sept­em­ber í fyrra ákvað Minja­stofnun að ­skyndi­friða hafn­ar­garða við Aust­ur­höfn­ina í Reykja­vík. Friðunin gilti í sex vikur og átti for­sæt­is­ráð­herra að taka ákvörðun um það hvort hún stæði áfram eða ekki.

Í raun eru þetta nefni­lega tveir garðar, annar þeirra telst til forn­leifa þar sem hann er yfir 100 ára gam­all. Minja­stofnun hafði áður til­kynnt lóð­ar­höfum að sá garður ætti að standa en að það mætti hylja hann að fullu. Hinn garð­ur­inn, sá nýrri, var reistur 1928 og er því ekki forn­minjar sam­kvæmt 100 ára skil­grein­ing­unni. Umræddur garður stóð auk þess í tíu ár eftir að hann var byggð­ur. Þennan garð stóð til að fjar­lægja. Þrátt fyrir þetta til­kynnti Minja­stofnun um skyndi­friðun alls garðs­ins án afmörk­unar 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Reykja­vík­ur­borg dró stjórn­sýslu­legt hæfi Sig­mundar Davíðs í efa og krafð­ist þess að hann viki sæti í ákvörð­un­inni. Ástæðan var að hann hafði tjáð skoðun sína á mál­inu með afger­andi hætti og átt aðkomu að mál­inu á fyrri stigum. Hann var meðal ann­ars búinn að skrifa grein á blogg­síðu sína þar sem hann tal­aði um ugg­væn­lega þróun í skipu­lags­málum og sagði bein­línis að hafn­ar­garð­ur­inn yrði frið­aður, löngu áður en Minja­stofnun tók svo ákvörðun um að skyndi­friða garð­inn.

Það fór svo að Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra var settur for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og hún ákvað að stað­festa friðun á öllum garð­inum í heild.

Í des­em­ber var gert sam­komu­lag þar sem ákveðið var að hafn­ar­garð­ur­inn yrði fluttur svo hægt væri að ráð­ast í fram­kvæmdir, en að honum yrði svo komið fyrir á sama stað. Land­eig­endur hafa alltaf sagt að sá kostn­aður myndi lenda á rík­inu. Í febr­úar sagði Sigrún Magn­ús­dóttir hins vegar að ríkið myndi bara bera launa­kostnað vegna eft­ir­lits með fram­kvæmd­unum. Því höfn­uðu fram­kvæmda­að­ilar, líkt og alltaf, og sögð­ust mundu sækja bæt­urnar til rík­is­ins.

Stærsta bygg­inga­verk­efni til þessa í hjarta Reykja­víkur

Bygg­ing­ar­reit­ur­inn að Aust­ur­bakka 2 er um 55 þús­und fer­metrar að stærð og liggur frá Ing­ólfs­garði, yfir Geirs­götu að Tryggva­götu. Lóð­ar­hafar eru Tón­list­ar- og ráð­stefnu­hús ohf., Situs ehf., Kolu­fell ehf., Lands­bank­inn og Bíla­stæða­sjóður Reykja­vík­ur. Um er m.a. að ræða lóð­ina sem Harpa stendur á, lóð­ina sem lúx­us­hótel á að rísa á við hlið henn­ar, lóð­ina sem Lands­bank­inn hefur haft hug á að reisa sér höf­uð­stöðvar og lóð­ina við hlið Toll­húss­ins.

Á lóð­inni er gert ráð fyrir bygg­ing­arreit neð­an­jarð­ar. Sá bygg­ing­arreitur nær yfir alla lóð­ina. Um er að ræða kjall­ara á tveimur hæðum með þjón­ustu og bíla­stæð­um.

Allt í allt eru níu bygg­ing­arreitir á Aust­ur­bakka 2. Félagið Reykja­vík Develop­ment, sem áður hét Land­stólpar þró­un­ar­fé­lag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­hafs fram­kvæmda á reit­un­um. Í frétt á heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar af því til­efni seg­ir: „Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­vík­ur. Sam­kvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­ur­bakka, 21.400 m2 of­anjarð­ar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa atvinnu­starf­semi, s.s. versl­an­ir, veit­inga­hús, skrif­stofur og þjón­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­legur kjall­ari rúmi um 1.000 bíla“.

Fram­kvæmd­unum átti að ljúka árið 2018 sam­kvæmt áætl­un.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár