Hetjan sem bjargaði Rúanda er minni hetja en þú hélst

„Aldrei aftur“ voru skila­boðin frá heims­byggð­inni eftir þjóð­ar­morðin í Rúanda árið 1994 þar sem er talið að um 800.000 manns hafi fallið á ein­ungis 100 dögum. Í Kígalí, höf­uð­borg Rúanda, má finna safn og minn­is­varða um þessa atburði, sem lýsir því hvernig Hútúar myrtu Tútsa á öllum aldri í þeim til­gangi að útrýma þeim öllum. Safnið lætur engan ósnort­inn og skilur við lífs­glaða ferða­langa nið­ur­brotna og með tárin í aug­unum. Hryll­ing­ur­inn sem blasir þar við er ógn­væn­legur - þar er her­bergi til­einkað börnum með myndum af þeim og lýs­ingum á því hvernig þau voru myrt.

Paul Kagame kom sá og sigraði. Og friðaði


Á meðan alheims­sam­fé­lagið svaf algjör­lega á verð­inum náði her Tútsa í útlegð (RPF) undir for­ystu Paul Kagame, núver­andi for­seta Rúanda, að hrekja burt helstu ger­end­urna (Interahamwe) í þjóð­ar­morð­unum og ná völdum. Síðan þá hefur Rúanda verið frið­sælt land. Ferða­menn sækja til lands­ins og þykir Kígalí vera meðal örugg­ustu borga í aust­an­verðri Afríku. Einnig hefur landið náð tals­verðum árangri efna­hags­lega og er í 3. sæti í Afríku sunnan Sahara á "Doing Business" lista Alþjóða­bank­ans. Þá hefur lands­fram­leiðsla á mann tvö­fald­ast, ung­barna­dauði lækkað úr 124 í 37 á hverjar 1,000 fæð­ingar og skóla­sókn auk­ist.

Við fyrstu sýn virð­ist Paul Kagame vera hetja - mað­ur­inn sem bjarg­aði Rúanda hér um bil frá tor­tím­ingu. Hann hefur á und­an­förnum árum fengið mikið lof fyrir að hafa haldið frið­inn og rifið hag­kerfið í gang. Rúanda hefur ítrekað verið nefnt það sem kall­ast "donor dar­l­ing" og er Kagame vin­sæll meðal vest­rænna leið­toga. Hann á fræga vini - Bill Clinton, Ben Affleck, Bono og sér­stak­lega Tony Blair hafa lýst yfir mik­illi aðdáun á Kagame. Einnig virð­ist, á yfir­borð­inu a.m.k., vera loks­ins búið að stöðva þjóð­ern­iserjur í eitt skipti fyrir öll og er strang­lega bannað að skil­greina sig og aðra Hútúa eða Tútsa.

[caption id="attachment_19524" align="alignnone" width="426"] Paul Kagame, for­seti Rúanda.[/caption]

Glansímynd Kagame sem sterks og góðs leiðtoga er að falla


Þrátt fyrir mikið lof um árangur í efna­hags­málum er Rúanda enn sára­fá­tækt og 82% þjóð­ar­innar lifir á 2 doll­urum eða minna á dag - hlut­fall sem hefur lítið lækkað á síð­ast­liðnum ára­tug. Einnig er landið gríð­ar­lega háð þró­un­ar­að­stoð og hefur hún numið um kringum 20% af þjóð­ar­tekjum síð­ustu tvo ára­tugi, þar til að hún lækk­aði um nærri því helm­ing árið 2012 vegna vís­bend­inga um að Rúanda hafi stutt við M23 skæru­liða­hreyf­ing­una í Austur-Kongó.

Paul Kagame, forseti Rúanda.
Paul Kagame, for­seti Rúanda.

Heilt yfir hefur gríman verið hægt og rólega að falla af Kagame. Við blasa mann­rétt­inda­brot, skoð­ana­kúgun, ein­ræð­istil­burðir, morð á and­stæð­ingum og annað sem gefur til­efni til að hafa áhyggjur af þró­un­inni í Rúanda, sem upp­lifði nán­ast sam­fellda valda­bar­áttu og spennu frá sjálf­stæði þar til 1994.

Er opinbera sagan á bak við þjóðarmorðin bjöguð?


Sig­ur­veg­ar­arnir skrifa sög­una og það sést vel á áður­nefndum þjóð­ar­morða­minn­is­varða í Kígalí. Opinbera sagan er sú að eftir að hútúskir upp­reisn­ar­menn hafi skotið niður flug­vél for­set­ans Habya­rim­ana í apríl 1994 og sett af stað skipu­lögð morð á Tútsum. Þó að fáir neiti því að þjóð­ar­morðin hafi átt sér stað og sann­an­irnar um fjöldamorð á Tútsum séu óyggj­andi, benda ýmsar vís­bend­ingar til þess að það segi ekki alla sög­una.

Í nýrri og gríð­ar­lega umdeildri heim­ild­ar­mynd BBC Rwanda's Untold Story er slíkum kenn­ingum velt upp. Sumar þeirra virð­ast hæpnar, eins og að Kagame hafi skipu­lagt að flug­vél for­set­ans væri skotin niður. Þá segir frá vís­bend­ingum um að Kagame og RPF hafi myrt þús­undir sekra og sak­lausra Hútúa þegar þeir náðu völdum í land­inu. Einng er vísað í skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 2010 og aðrar vís­bend­ingar um að RPF hafi skipu­lega myrt tug­þús­undir hútúskra flótta­manna í Austur-Kongó á árunum eftir þjóð­ar­morðin. Ólöglegt er að hafa svo mikið sem efa­semdir um opin­beru sög­una á bak­við þjóð­ar­morðin svo það þarf varla að taka það fram að BBC var bannað í Rúanda um leið og myndin var sýnd.

Vaxandi alræðistilburðir


Þó deilt sé um hvað nákvæm­lega gerð­ist og hversu mikil hetja Kagame er, þá er eng­inn vafi á því að Kagame hefur sýnt mikla vald­níðslu og ber hann niður alla mót­spyrnu hvað sem það kostar. Einnig virð­ist vera að hann hafi allt að því ein­ræð­is­vald yfir land­inu. Fjöl­margar alþjóð­legar stofn­anir eins og Amnesty International og Human Righs Watch hafa harð­lega gagn­rýnt spillt rétt­ar­kerfi og stjórn­völd fyrir að virða ekki tján­ing­ar­frelsi. Kagame hefur horn í síðu slíkra sam­taka á grund­velli þess að það sé hætta á að ný átök brjót­ist út ef farið sé að þeirra ráðum. Kagame hikar heldur ekki við að hand­taka stjórn­mála- og blaða­menn sem eru honum ósam­mála. Í kosn­ing­unum 2010 sem Kagame vann með 93% atkvæða voru þrír stjórn­mála­flokkar úti­lok­aðir og tveir leið­togar þeirra settir í fang­elsi.

[caption id="attachment_19521" align="alignnone" width="548"] Í safn­inu um þjóð­ar­morðin í Kígalí. Hryll­ing­ur­inn vekur iðu­lega upp miklar til­finn­ingar. [/caption]

Í safninu um þjóðarmorðin í Kígalí.
Í safn­inu um þjóð­ar­morðin í Kígalí.

Margir fyrr­ver­andi sam­starfs­menn Kagame og blaða­menn, sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa þurft að flýja land eftir ósætti við Kagame, hafa gagn­rýnt hann væg­ast sagt harka­lega í útlegð­inni. Nýlega skrif­aði fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Kagame harð­orða grein um skort á lýð­ræði, hvernig Kagame hefur mis­tek­ist að koma land­inu á réttan kjöl og að elíta í skjóli hans sé að taka yfir hag­kerfið. Þeir sem hafa gagn­rýnt Kagame eiga það oft sam­eig­in­legt að hafa fengið líf­láts­hót­anir, orðið fyrir árásum eða myrtir. Einn þeirra, Kayumba Nyamwaza, sem var lengi vel hátt­settur í RPF en lenti svo upp á kant við Kagame, hefur kallað eftir upp­reisn gegn honum. Á sama tíma hefur Nyamwaza sloppið frá þremur morð­til­raunum. Sam­starfs­maður Nyamwaza, Patrick Karegeya, flúði land eftir að hann gagn­rýndi mann­rétt­inda­brot og glæpi stjórn­valda. Hann var myrtur á dul­ar­fullan hátt í Suður-Afríku fyrir ári síðan

Þurfum við að óttast?


Milljón manns­lífa spurn­ingin er hvort að þjóð­ar­morð eða átök milli þjóð­ar­brot­anna tveggja sé eitt­hvað sem gæti end­ur­tekið sig. Í nágranna­land­inu Búrúndi er skipt­ing milli Tútsa og Hútúa svipuð. Þar má finna í meg­in­dráttum svip­aða sorg­ar­sögu um ætt­bálka­á­tök og eru teikn á lofti um að kosn­ing­arnar á þessu ári verði hugs­an­lega ekki frið­samar. Stuttu fyrir þjóð­ar­morðin árið 1994 var hútúskur for­seti Búrúndí myrtur, sem hleypti afar illu blóði í rúandska Hútúa.

Þó að það sé ekk­ert sem bendi til þess að slíkt end­ur­taki sig núna, þá kennir sagan okkur að alræð­istil­burðir og skoð­ana­kúgun eins og Kagame hefur sýnt gangi oft ekki upp til lengri tíma. Í aðstæðum eins og eru í Rúanda, þar sem stutt er frá hörm­ung­unum árið 1994 og öll and­staða við stjórn­völd er kæfð niður með ofbeldi, er auð­velt að ímynda sér að verið sé að setja af stað tíma­sprengju. Sér­stak­lega ef upp­bygg­ing hag­kerf­is­ins mun ekki ganga sem skyldi og fólk verður enn fast í fátækt með litla mögu­leika. Eft­ir­málum þjóð­ar­morð­anna er heldur ekki alveg lokið, þar sem enn má finna hútúska skæru­liða í Austur-Kongó, sem tóku þátt í þjóð­ar­morð­unum. Vissu­lega er póli­tíska staðan svipuð í mörgum öðrum ríkjum en sporin hræða í Rúanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár