Bandaríkin hyggjast loka Guantanamo-fangabúðunum

Skrif­stofa for­seta Banda­ríkj­anna er að leggja loka­hönd á áætlun sem miðar að því að Guant­anamo-fanga­búð­unum á Kúbu verði lokað. Í búð­unum eru grun­aðir erlendir hryðju­verka­menn fang­els­aðir. Frá þessu var greint í dag.

Fanga­búð­irnar í Guant­anamo hafa valdið Barack Obama, banda­ríkja­for­seta, tölu­verðum vand­ræðum í for­seta­tíð hans og telja sér­fræð­ingar að nú sé allt kapp lagt á að klára til­lögur að frum­varpi og afgreiða það í þing­inu áður en kjör­tíma­bil hans er úti. Tals­maður Hvíta húss­ins segir rík­is­stjórn­ina vona að málið flæk­ist ekki fyrir repúblikönum í banda­ríska þing­inu sem áður hafa komið í veg fyrir lokun fanga­búð­anna.

Fang­elsið var sett á lagg­irnar utan landamæra Banda­ríkj­anna eftir árás­irnar á Tví­bura­t­urn­ana í New York 11. sept­em­ber 2001 en í fyrri kosn­inga­bar­áttu Obama lof­aði hann að loka Guant­anamo strax á fyrsta ári sínu sem for­seti. Þar hafa fangar verið beittir mann­rétt­inda­brotum, en talið er að pynt­ingar séu not­aðar til að knýja fram upp­lýs­ingar sem nota má gegn föng­unum.

Þegar hafa fangar verið fluttir úr fanga­búð­unum til heima­landa sinna og er fjöldi fanga þar 116. Banda­ríkin vilja hins vegar ekki flytja 69 jem­enska fanga til heima­lands síns vegna ótryggs ástands þar.

Banda­ríska dag­blaðið The New York Times hefur heim­ildir fyrir því að stjórn­völd í Washington hafi áhyggjur af því að varn­ar­mála­ráð Banda­ríkj­anna, Pentagon, sé að draga lapp­irnar þegar kemur að flutn­ingi fanga úr Guant­anamo.

Ash Carter, varn­ar­mála­ráð­herra, var þannig settur þröngur tímara­mmi til að taka ákvörðun um flutn­ing nokk­urra fanga en hann gat raunar ekki ákveðið sér­staka dag­setn­ingu. Repúblikanar á Banda­ríkja­þingi hafa fært fyrir því rök að flutn­ingur fanga úr haldi Banda­ríkj­anna kunni að leiða til frels­unar þeirra og að fang­arnir muni þá berj­ast gegn banda­rískum hags­munum.

Repúblikan­inn John McCain, for­maður varn­ar­mála­nefndar öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings, hefur ávalt hvatt Obama til að leggja til áætlun um lokun fanga­búð­anna. McCain var for­seta­efni repúblik­ana gegn demókrat­anum Obama árið 2008. Hann var sjálfur stríðs­fangi í Vietnam­stríð­inu og sætti pynt­ingum sem slíkur.

McCain hefur bent á að lokun fanga­búð­anna muni þýða að þeir fangar sem enn eru í búð­unum verði leiddir fyrir dóm­ara og úrskurður kveð­inn upp í þeirra máli.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] John McCain[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár