Landspítalann vantar 1,8 milljarð til að geta staðið undir óbreyttum rekstri og þróun

Land­spít­al­inn á að fá um 82,5 millj­arða króna úr rík­is­sjóði á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Það er ekki nóg að mati starf­andi for­stjóra. Hún segir alls vanta tæp­lega 1,6 millj­arða króna til að standa undir óbreyttum rekstri.

Samkvæmt drögum að fjár­hags­á­ætlun Land­spít­ala þá áætlar spít­al­inn að óbreyttur rekstur muni kosta tæp­lega 82,5 millj­arða króna á næsta ári. Fjár­veit­ingar til spít­al­ans úr rík­is­sjóði sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi eru 80,8 millj­arðar króna. Alls vantar Land­spít­al­ann því 1.642 millj­ónir króna til að við­halda óbreyttum rekstri sínum á næsta ári.

Þetta kemur fram í umsögn spít­al­ans um fjár­laga­frum­varpið. Guðlaug Rakel Guð­jóns­dóttir, settur for­stjóri Land­spít­ala, skrifar undir umsögn­ina.

Í henni segir Guðlaug að margt jákvætt sé í fjár­laga­frum­varp­inu. Spít­al­inn hafi þó miklar áhyggjur af því að ofan­greinda upp­hæð vanti til að standa undir óbreyttum rekstri. „Miðað við það þá hefur spít­al­inn ekk­ert fjár­magn til að takast á við eðli­legar lýð­fræði­legar breyt­ingar og inn­leiða fram­farir í með­ferð sjúk­linga.“

Guðlaug segir að ef reikni­við­mið fjár­laga á liðnum árum hefðu verið látin gilda hefði Land­spít­al­inn fengið 1.410 millj­ónum krónum meira. „Óskar Land­spít­ali eftir að svo verði áfram en miðað við að reikn­aður raun­vöxtur nægi ekki til að standa undir óbreyttum rekstri,

og hvað þá að gera spít­al­anum kleift að þró­ast enn frekar, leggur spít­al­inn einnig til að fallið verði frá 387 m.kr. hag­ræð­ing­ar­kröfu á hendur honum. Samtals væri þetta þá 1.797 m.kr. nýtt rekstr­arfé til spít­al­ans sem gerði honum kleift að standa undir óbreyttum rekstri og þró­ast áfram með nýja þjón­ustu ásamt því að vinna að eðli­legum rekstr­ar­um­bótum.“

Hún segir það einnig vera sér­stakt áhyggju­efni hve tækja­kaupafé spít­al­ans hafi dreg­ist saman á liðnum árum. „Að óbreyttu þarf spít­al­inn því að skerða þjón­ustu sína. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hve alvar­leg slík staða er.“

Langvarandi fjárhagsvandi og hallarekstur

Land­spít­al­inn hefur glímt við langvar­andi fjár­hags­vanda og halla­rekstur. Á árunum 2018 til 2020 var sam­an­lagður halli á rekstri spít­al­ans tæp­lega 4,3 millj­arðar króna. Þeim halla hefur verið mætt meðal ann­ars með því að hag­ræða í rekstri og reyna að aðlaga starf­sem­ina að fjár­heim­ildum, sam­kvæmt umsögn­inni.

Þar segir þó að síð­ustu ár hafi verið þung og skýrist af hluta af heims­far­aldr­inum sem hafi haft veru­leg áhrif á starf­semi spít­al­ans. Því hafi það ekki tek­ist að fullu að aðlaga rekstur að fjár­heim­ildum.

Í ár sé þó gert ráð fyrir að spít­al­inn verði rek­inn innan fjár­veit­inga en það segi ekki alla sög­una, sam­kvæmt Guðlaugu. „Und­ir­liggj­andi rekstr­ar­vandi á árinu 2021 er um 1.000 m.kr. þegar tekið er til­lit til ein­skiptis hag­ræð­ing­ar­að­gerða (frestað við­hald ofl.) og fjár­veit­inga sem bókast á árið 2021 en kostn­aður féll til á árinu 2020.“

Björn Zoëga ráðinn sem ráðgjafi

Páll Matth­í­as­son sagði upp störfum sem for­stjóri Land­spít­al­ans fyrr á þessu ári og skipa á í stöð­una frá 1. mars á næsta ári. Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar var þess sér­stak­lega getið að skipa ætti stjórn yfir Land­spít­al­ann.

Í gær var svo til­kynnt að Björn Zoëga, for­stjóri Karol­inska sjúkra­húss­ins í Sví­þjóð og fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, hefði verið ráð­inn sem ráð­gjafi af Willum Þór Þórs­syni heil­brigð­is­ráð­herra.

Um væri að ræða tíma­bundið hluta­starf með­fram störfum Björns sem for­stjóra. Hann hefur þegar hafið störf.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna þessa var haft eftir Willum að Land­spít­al­inn sé hryggjar­stykkið í okkar heil­brigð­is­kerfi. „Spít­al­inn verður að geta sinnt sínu mik­il­væga hlut­verki nú og í fram­tíð­inni. Þá er gott sam­spil spít­al­ans við aðra þætti heil­brigð­is­kerf­is­ins lyk­il­at­riði. Umtals­verðar breyt­ingar á rekstri og yfir­stjórn Land­spít­al­ans munu eiga sér stað á næst­unni og því er gríð­ar­lega mik­il­vægt að sér­fróðir aðilar með þekk­ingu á rekstri slíkrar stofn­unar séu til að veita ráð við slíka vinn­u.“

Meðal þess sem liggi til grund­vallar þeirri vinnu sem sé framundan séu áherslur í heil­brigð­is­málum í nýjum stjórn­ar­sátt­mála, inn­leið­ing þjón­ustu­tengdrar fjár­mögn­unar og grein­ing­ar­vinna sem gerð hafi verið á fram­tíð­ar­þjón­ustu Land­spít­ala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár