Heilbrigðisráðherra ræður Björn Zoëga sem ráðgjafa við breytingar á Landspítalanum

Fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, og núver­andi for­stjóri Karol­inska sjúkra­húss­ins í Svíþjóð, hefur verið ráð­inn sem ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herra vegna breyt­inga á rekstri og yfir­stjórn Land­spít­al­ans.

Björn Zoëga, for­stjóri Karol­inska sjúkra­húss­ins í Svíþjóð og fyrr­ver­andi for­stjóri Land­spít­al­ans, hefur verið ráð­inn sem ráð­gjafi af Willum Þór Þórssyni heil­brigð­is­ráð­herra.

Um er að ræða tíma­bundið hluta­starf með­fram störfum Björns sem for­stjóra. Hann hefur þegar hafið störf.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir Willum að Land­spít­al­inn sé hryggjar­stykkið í okkar heil­brigð­is­kerfi. „Spít­al­inn verður að geta sinnt sínu mik­il­væga hlut­verki nú og í fram­tíð­inni. Þá er gott sam­spil spít­al­ans við aðra þætti heil­brigð­is­kerf­is­ins lyk­il­at­riði. Umtals­verðar breyt­ingar á rekstri og yfir­stjórn Land­spít­al­ans munu eiga sér stað á næst­unni og því er gríð­ar­lega mik­il­vægt að sér­fróðir aðilar með þekk­ingu á rekstri slíkrar stofn­unar séu til að veita ráð við slíka vinnu.“

Meðal þess sem liggi til grund­vallar þeirri vinnu sem sé framundan séu áherslur í heil­brigð­is­málum í nýjum stjórn­ar­sátt­mála, inn­leið­ing þjón­ustu­tengdrar fjár­mögn­unar og grein­ing­ar­vinna sem gerð hefur verið á fram­tíð­ar­þjón­ustu Land­spít­ala.

Björn segir á sama stað að fjöl­mörg tæki­færi séu til að styðja við og styrkja Land­spít­al­ann og starfs­fólk hans. „Ég er því þakk­látur og ánægður að fá tæki­færi til að leggja mitt af mörkum, og aðstoða nýjan ráð­herra í þessu mik­il­væga verk­efni.“

Páll Matth­í­as­son til­kynnti fyrir nokkru að hann myndi hætta sem for­stjóri Land­spít­al­ans. Starfið verður aug­lýst laust til umsóknar en skipað verður í það frá 1. mars 2022. Í nýjum stjórn­ar­sátt­mála var til­kynnt að stjórn yrði skipuð yfir spít­al­ann.

Hætti árið 2013

Björn var ráð­inn for­stjóri Lands­spít­al­ans árið 2010 en sagði upp störfum í lok sept­em­ber árið 2013. Hann sagði í yfir­lýs­ingu vegna upp­sagn­ar­innar að nokkrar ástæður væru fyrir upp­sögn sinni og nefndi sér­stak­lega fjár­skort spít­al­ans. Hann sagði nauð­syn­lega upp­bygg­ingu ekki hafa verið í aug­sýn á þeim tíma.

Þetta var í annað sinn á rúm­lega ári sem Björn tók ákvörðun um að hætta sem for­stjóri Land­spít­ala. Það ætl­aði hann að gera árið áður þegar honum barst boð um starf erlend­is. Eftir við­ræður við Guð­bjart Hann­es­son, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, ákvað Björn að halda áfram í starfi for­stjóra. Þá fékk hann lof­orð um aukið fjár­fram­lag til tækja­kaupa og um fleiri aðgerðir í þágu spít­al­ans. Björn átti einnig að fá launa­hækkun en ekk­ert varð af henni vegna harðrar gagn­rýni starfs­fólks á spít­al­an­um.

Hann var ráð­inn for­­stjóri Karol­inska sjúkra­húss­ins í Sví­­þjóð árið 2019.

Sagði þörf á bæði einka- og opinberum rekstri í kerfinu

Björn hefur nýverið rætt sýn sína á vanda Land­spít­al­ans. Á fundi Samtaka atvinnu­lífs­ins og Samtaka versl­unar og þjón­ustu sem hald­inn var í ágúst 2021 sagði hann að þörf væri á bæði einka­rekstri og opin­berum rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu.

Í við­tali við Kastljós í sept­em­ber síð­ast­liðnum sagði hann að vandi spít­al­ans fælist í því að hann væri á föstum fjár­lögum en ekki fjár­magn­aður eftir afköstum. Björn sagð­ist þar einnig telja að það yrði til bóta ef sér­stök stjórn yrði yfir Land­spít­al­anum.

Ekki hefði náðst að þróa íslenska heil­brigð­is­kerfið sem skyldi á síð­ustu árum, og að hans mati skorti sam­vinnu milli ein­stakra hluta þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár