Goldman Sachs kaupir „hungursskuldabréf“ frá Venesúela

Goldman Sachs hefur sætt gagn­rýni eftir kaup á skulda­bréfum að and­virði 2,8 millj­arða Banda­ríkja­dala í rík­is­reknu venes­ú­elsku olíu­fyr­ir­tæki. Fyr­ir­tækið er helsta tekju­lind rík­is­stjórnar Nicolás Maduro sem ásökuð er um mann­rétt­inda­brot.

Goldman Sachs hefur fest kaup á skulda­bréfum að and­virði 2,8 millj­arða Banda­ríkja­dala frá rík­is­rekna venes­ú­elska olíu­fyr­ir­tæk­inu Petr­ó­leos de Venezuela SA (PdVSA) í gegnum miðl­ara í London, Dinosaur Group. Kaup­verðið á skulda­bréf­unum, sem eru með gjald­daga árið 2022, var um 865 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem þýðir að bréfin voru seld með 31% afslætti miðað við venes­ú­elsk verð­bréf með gjald­daga sama ár.

Julio Borges, leið­togi þings­ins sem er í höndum stjórn­ar­and­stöð­unnar, brást við kaup­unum með því að saka Goldman Sachs um að reyna að græða fjót­lega pen­inga af þján­ingu venes­ú­elska fólks­ins og lagði til að lýð­ræð­is­lega kjörin fram­tíð­ar­rík­is­stjórn lands­ins ætti ekki að við­ur­kenna eða borga af þessum skulda­bréfum. Stjórn­ar­and­staðan í Venes­ú­ela hefur lengi hvatt Wall Street til að snið­ganga rík­is­stjórn Maduro og koma í veg fyrir áfram­hald­andi þróun í land­inu. Hún for­dæmir skil­mála kaupanna og sam­þykkti nýlega til­lögu í þing­inu um að biðja banda­ríska þingið hefja rann­sókn á kaup­unum.

Hvers vegna fjárfesta í skuldabréfunum?

Goldman Sachs er langt frá því að vera eini fjár­festir­inn í venes­ú­elskum skulda­bréfum en sjóðir á borð við Fidelity Invest­ments, BlackRock og HSBC Holdings hafa gert slíkt hið sama, sem og jap­anski fjár­fest­inga­bank­inn Nomura sem keypti skulda­bréf að and­virði um 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala í sömu við­skiptum og veittu Goldman Sachs sinn skerf. Við­skipti í skulda­bréfum rík­is­rekna olíu­fyr­ir­tækja eru meðal algeng­ustu við­skipta í ört vax­andi marköðum, svoköll­uðum „emerg­ing markets“, og eru þau aðlað­andi að hluta til vegna rík­is­á­byrgðar sem fylgir kaup­unum.

Við­skipti í skulda­bréf­unum skila miklum skamm­tíma­hagn­aði og ávöxtun af skuldum Venes­ú­ela var einn hæst allra allra rík­is­skulda­skulda­bréfa í síð­ustu viku eftir við­skipti Goldman Sachs, eða 8,39%. Mögu­leikar á miklum hagn­aði til lengri tíma eru líka til staðar; það er ekki ólík­legt að Venes­ú­ela muni neyð­ast til að end­ur­skipu­leggja rík­is­skuldir sínar á næstu árum og þótt að afleið­ingar þess ferlis geta tekið langan tíma getur ávinn­ing­ur­inn orðið mik­ill. Til dæmis græddi fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Elliott Mana­gement um 400% á upp­haf­legu fjár­fest­ingu sinni eftir upp­gjör skulda­bréfa sem hann átti í argent­ínskum skuldum, fimmtán árum eftir að Argent­ína gekk í gegnum greiðslu­fall árið 2001.

Við­skipti í skulda­bréfum af þessu tagi eru algeng í eft­ir­mörk­uðum og með því að stunda þau eru fjár­festar ekki endi­lega beint að styrkja rík­is­stjórnir í sjálfu sér. Það má færa rök fyrir því að aðgerðir fjár­festa gætu leitt til að lönd á borð við Venes­ú­ela lagi rík­is­fjár­hag sinn til lengri tíma litið og hafi því jákvæð áhrif. Þetta hug­ar­far kom greini­lega í ljós í til­kynn­ingu sem Goldman Sachs sendi frá sér í kjöl­far gagn­rýn­innar en þar segir að bank­inn við­ur­kenni að staðan í Venes­ú­ela sé flókin og að landið sé í krísu; hins vegar sé bank­inn sam­mála um að lífs­kjör í land­inu verði að batna og að fjár­fest­ingin hafi að hluta til haft það að sjón­ar­miði.

„Hungursskuldabréf“

Skulda­bréfin hafa verið kölluð „hung­urs­skulda­bréf“ af Ricardo Hausmann, hag­fræði­pró­fessor í Harvard-háskóla og fyrr­ver­andi skipu­lags­ráð­herra Venes­ú­ela, vegna þess að þau eru aðal­tekju­lind rík­is­stjórnar Nicolás Maduro. Efna­hags­stefna hans hefur leitt til mat­ar­skorts og skorts á nauð­synja­vörum eftir því sem afborgun skulda og vaxta hefur verið sett í for­gang í stað inn­flutn­ings á nauð­synja­vörum. Hausmann hefur lagt til að fjár­fest­inga­bank­inn JP Morgan Chase fjar­lægi skulda­bréfin úr Emerging Markets-vísi­tölu sinni sem er vin­sæl hjá verð­bréfa­sjóðum. Þannig væri hægt að skilja að fjár­fest­ingar í skulda­bréf­unum og gera það að verkum að fjár­festar verði að taka með­vit­aða ákvörðun um að styðja rík­is­stjórn Maduro með því að kaupa þau.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn (IMF) hefur spáð 720% verð­bólgu í Venes­ú­ela í ár, hag­kerfi lands­ins hefur minnkað um 27% á fjórum árum og rann­sóknir sýna að þrír fjórð­ungar af íbúum lands­ins hafa lést um fjögur kíló að með­al­tali vegna mat­væla­skorts og verð­bólgu. Ung­barna­dauði hefur auk­ist um 30%, mæðra­dauði um 65% og malar­íutil­felli um 76%. Ofbeld­is­full mót­mæli hafa leitt til dauða 55 manns á und­an­förnum mán­uðum, og Maduro til­kynnti nýlega áform um að breyta stjórn­ar­skrá lands­ins og frestaði um leið fyr­ir­ætl­uðum kosn­ingum í land­inu til lok árs­ins.

Gagn­rýnin á fjár­festum í tengslum við við­skipti á skulda­bréfum ríkja í ástandi á borð við það sem Venes­ú­ela upp­lifir í augna­blik­inu verður að ein­hverju leyti að telj­ast rétt­mæt. Athyglin sem Goldman Sachs hefur fengið vegna kaupa sinna er sér­stök vegna vægi, orð­spors og stærðar fjár­fest­inga­bank­ans í alþjóða­fjár­mála­kerf­inu en mætti jafn auð­veld­lega beina að öðrum fjár­festum. Hins vegar er meg­in­vanda­mál Venes­ú­ela arfa­slök efna­hags­stefna og getu­leysi rík­is­stjórnar Maduro og þróun lands­ins í átt að ein­ræði sem afleið­ing þess að Maduro hefur ekki náð að við­halda þeim lýð­ræð­is­lega stuðn­ingi sem ein­kenndi for­vera hans í emb­ætti, og hug­mynda­fræði­legs arkítekts venes­ú­el­anska stjórn­ar­skrár­innar, Hugo Chávez. Tog­streita í land­inu og veru­leikafirr­ing rík­is­stjórn­ar­innar virð­ist aukast með degi hverjum en ljóst er að Maduro getur ekki fjár­magnað setu sína með þessum hætti enda­laust. Fjár­hags­legar horfur fjár­festa eru hins vegar að öllum lík­indum bjartar hvernig sem úr ræt­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár