Evrasíusambandið - Rússland gegn Evrópusambandinu?

Þann 1. jan­úar 2015 hóf evr­a­síska efna­hags­sam­bandið sam­starf sitt. Sá atburður hefur ekki vakið mikla athygli hér á landi og leitun er að því í íslenskum fjöl­miðlum að sam­bandið sé nefnt á nafn. Eflaust vita fáir Íslend­ingar yfir höfuð hvað evr­a­síska efna­hags­sam­bandið er. Því er fullt til­efni til að taka saman grunn­upp­lýs­ingar um sam­bandið, íslenskum les­endum - að minnsta kosti áhuga­sömum - til gagns.

Lauslega mætti skil­greina það sem sam­starf fimm þjóða: Rúss­lands, Kazakhstan, Hvíta-Rúss­lands, Armeníu og Kyrgistan, sem nú er í inn­töku­ferli. Sam­bandið á sér langan til­drag­anda og er byggt á evr­a­sísku efna­hags­sam­starfi og tolla­sam­bandi þjóða í Mið-Asíu og Rúss­lands. Íbúar land­anna fimm eru u.þ.b 180 millj­ónir tals­ins, en þar af eru Rússar um 130 millj­ónir. Hlutverk sam­band­ins er aðal­lega efna­hags­legt, en í því felst einnig nokkur sam­staða í alþjóða­málum og hern­að­ar­leg sam­vinna land­anna. Vegna hlut­falls­legrar stöðu land­anna innan sam­bands­ins hafa margir talið það vera, a.m.k. að hluta, ætlað til að auka áhrif Rúss­lands í nær­löndum þess.

[quote font="0" align="right"]Evr­asíu­sam­bandið er byggt upp á mjög keim­líkan hátt og ESB, með fram­kvæmda­ráði og ráð­herra­ráði þar sem aðild­ar­ríki taka ákvarð­anir sam­hljóða. Sam­starfið virð­ist þó strax vera í upp­námi.[/quote]

Evr­asíu­sam­bandið er byggt upp á mjög keim­líkan hátt og ESB, með fram­kvæmda­ráði og ráð­herra­ráði þar sem aðild­ar­ríki taka ákvarð­anir sam­hljóða. Sam­starfið virð­ist þó strax vera í upp­námi. Nýlega lét sendi­herra Rússa gagn­vart ESB lét þau orð falla, að Evr­asíu­sam­bandið leit­aði eftir nán­ara sam­starfi við ESB, þrátt fyrir væg­ast sagt stirð sam­skipti Rússa og ESB og efna­hags­þving­anir.

Ekkert verður til í tómarúmi


Sam­bandið er byggt á tolla­banda­lagi frá árinu 2010, en það var þó ekki fyrsta til­raun Rúss­lands til auk­inna áhrifa í nær­löndum sínum. Eftir fall Berlín­ar­múrs­ins hefur Rússland lent í til­vist­ar­kreppu og reynt að end­ur­skapa fyrri frægð eftir bestu getu. Sér­stak­lega hefur þetta verið áber­andi eftir að Vladimir Pútín tók við stjórn­ar­taumum og inn­lyksun Krímeu fór eflaust ekki fram­hjá neinum. Þetta er ekki eini lið­ur­inn í utan­rík­is­stefnu Rússa gagn­vart nágrönnum sínum og hefur Pútin reynt að hafa putt­ana í stjórnun ýmissa ríkja gömlu Sov­ét­ríkj­anna á sein­ustu árum (sbr. inn­rás Rússa í Georgíu o.s.frv.), með því að móta stefnu gagn­vart erlendum sam­löndum sínum (þ.e. fyrr­ver­andi þegnum Sov­ét­ríkj­anna sem mætti telja rúss­neska).

Það virð­ist nokkuð aug­ljóst að Rússland sé að reyna að færa sig upp á skaftið í heims­stjórn­málum og nú þegar Evr­ópu­sam­bandið hefur átt í efna­hag­legum erf­ið­leikum síða­sliðin ár þá hafa rík­is­stjórnir land­anna fimm eflaust séð leik á borði til þess að mynda mót­jafn­vægi og bjóða upp á annan mögu­leika fyrir lönd, sem voru hluti af Sovet­ríkj­unum, en hafa verið í nánu sam­starfi við ESB á síð­ustu árum.

Draumur verður að martröð


Evr­asíu­draumur Pútíns virð­ist vera að breyt­ast í martröð miðað við efna­hags­stöðu Rúss­lands nú þessa fyrstu daga árs­ins 2015. Löndin sem stofn­uðu sam­bandið með Rúss­landi hljóta að sjá eftir því í dag. Rúblan hríð­fellur og erf­ið­leikar Rúss­lands aukast. Kasakskir ráða­menn hafa viljað skil­greina sam­bandið ein­göngu sem efna­hags­lega stofnun. Ef rík­is­stjórn Kazaksthan, sem hefur orðið vell­auð­ugt af olíu, hugs­aði aðal­lega um hags­muni sjálfs síns, þá ættu þeir að reyna að fjar­lægj­ast Rússum og leita annað.

[caption id="attachment_16539" align="alignnone" width="1024"] Vladimír Pútin fer yfir málin með Nursultan Nazarbayev, for­seta Kasakstan, á fundi Evr­asíu­sam­bands­leið­toga á Þor­láks­messu.[/caption]

Vladimír Pútin fer yfir málin með Nursultan Nazarbayev, forseta Kasakstan, á fundi Evrasíusambandsleiðtoga á Þorláksmessu.
Vladimír Pútin fer yfir málin með Nursultan Nazarbayev, for­seta Kasakstan, á fundi Evr­asíu­sam­bands­leið­toga á Þor­láks­messu.

Efna­hags­legir örð­ug­leikar sam­bands­ins standa í vegi fyrir að það verði valda­mikið á næstu árum, en að mínu mati þá segir það okkur að Rússland Pútíns er aug­ljós­lega að reyna að búa til mót­jafn­vægi gegn vest­rænum öflum. Rússar eru að færa sig enn fjær Evr­ópu­sam­band­inu, þeir vilja vera sinn eigin herra og helst herrar ann­arra.

Nýtt kalt stríð, eða ný heimsmynd?


Heyrst hefur verið talað um nýtt kalt stríð, annað hvort í upp­sigl­ingu, eða þá að það sé hrein­lega hafið. Það er vill­andi að tala um nýtt kalt stríð vegna þess að í raun er heim­ur­inn tals­vert breyttur staður og getur það verið hættu­legt að hugsa of mikið í for­tíð­inni.

En það er aug­ljóst að valda­hlut­föll í heim­inum eru að breyt­ast. Vestrænt ofur­vald (e. hegemony) er að minnka og aðrir valda­kjarnar eru að verða til í heim­inum. Rússland er aug­ljós­lega að reyna að vera einn af þeim valda­kjörnum. Lönd eins og Rússland og Kína geta boðið upp á efna­hags­legt sam­starf án eins þröngra skil­yrða og ESB. En hvernig fer, veit eng­inn, nema kannski guð og Pútín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár