Hvað á eiginlega að gera á landamærunum?

Margir hafa mis­skilið það sem rík­is­stjórnin ætlar sér að gera á landa­mær­unum. Enda hafa mis­vísandi upp­lýs­ingar komið fram. Stjórn Lækna­fé­lags­ins gagn­rýnir nýjar skil­grein­ingar stjórn­valda harð­lega. En hvað hefur rík­is­stjórnin boðað?

Ráðherrar fjölmenntu á blaðamannafund í Hörpu í gær til þess að kynna breytingar á landamæraaðgerðum vegna veirunnar. Mikill misskilningur hefur verið uppi um hvað stjórnvöld ætla sér í dag.
Ráð­herrar fjöl­menntu á blaða­manna­fund í Hörpu í gær til þess að kynna breyt­ingar á landamæra­að­gerðum vegna veirunnar. Mikill mis­skiln­ingur hefur verið uppi um hvað stjórn­völd ætla sér í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Tölu­verðs mis­skiln­ings hefur gætt í sam­fé­lag­inu, meðal ann­ars hjá fjöl­miðla­fólki og þing­mönnum, um þær aðgerðir á landa­mærum sem rík­is­stjórnin boð­aði að ráð­ist yrði í á blaða­manna­fundi sínum í Hörpu gær.

Margir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar voru við­staddir fund­inn, en virð­ast þó ekki hafa náð að miðla því skýrt út í sam­fé­lagið hver áætl­unin er.

Orðalag í frétta­til­kynn­ingu stjórn­valda um aðgerð­irnar, sem send var út eftir fund­inn, var á skjön við það sem fram kom í glæru­kynn­ingu á fund­inum og það sem fram hefur komið í máli ráð­herra síðan.

Á þingi í dag deildu for­menn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks ekki skiln­ingi á því sem boðað hefði verið. „Ég heyri að hátt­virtur þing­maður telji að ég mis­skilji eitt­hvað. En ég tel að það sé öfugt farið,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í and­svari við ræðu Loga Ein­ars­sonar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma.

Misræmið á milli glærukynningar og fréttatilkynningar

Ef til vill skal engan undra að margir mis­skilji. Í glæru­kynn­ingu stjórn­valda á fund­inum í gær sagði að miðað yrði við að þær reglur sem verið væri að herða tíma­bundið myndu eiga við um „lönd þar sem eru svæði með nýgengi smita“ yfir ákveðnu hlut­falli af hverjum 100 þús­und íbúum.

Í frétta­til­kynn­ingu stjórn­valda, sem var ekki send út fyrr en tæpum tveimur tímum eftir blaða­manna­fund­inn í Hörpu, sagði hins vegar að nýjar reglur myndu ná til „far­þega sem koma frá löndum þar sem nýgengi smita er yfir til­teknum mörkum“. Í til­kynn­ing­unni var ekk­ert talað um að miða skuli við svæði, eða héruð, innan til­tek­inna landa.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir þurfti að leið­rétta mis­skiln­ing­inn, sem virð­ist sem áður segir nokkuð útbreiddur, er hann fékk spurn­ingu á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í morgun sem byggði á röngum for­sendum. Frekari útskýr­ingar á þessu voru birtar á vef emb­ættis land­læknis í dag og þá stuðst við þann skiln­ing sem settur var fram í frum­varp­inu sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra lagði fram á þingi.

„Sé löndum skipt upp í fleiri en eitt svæði þar sem nýgengi smita er ólíkt er allt landið miðað við það svæði þar sem nýgengi er hæst. Ef full­nægj­andi upp­lýs­ingar um nýgengi smita liggja ekki fyrir um svæði getur það talist háá­hættu­svæði. Almennt er miðað við að list­inn verði upp­færður í sam­ræmi við upp­lýs­ingar frá Sótt­varna­stofnun Evrópu (ECDC) á tveggja vikna fresti en fyrr að gefnu til­efni,“ segir í til­kynn­ingu land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

Þetta er það sem ríkisstjórnin er að boða

14 daga nýgengi smita yfir 1.000/100.000 íbúa (Einn af hverjum 100 með greint virkt smit)

Allir komu­far­þegar frá löndum þar sem finn­ast svæði, eða héruð, þar sem 14 daga nýgengi smita er yfir 1.000 á hverja 100.000 íbúa munu þurfa að dvelja í fimm daga á sótt­varn­ar­hót­eli við kom­una til lands­ins. Frá þessu verða ekki gerðar und­an­tekn­ingar. Nema auð­vitað ef fólk er bólu­sett eða með vott­orð um að það hafi þegar fengið COVID-19.

Þetta myndi í dag eiga við um far­þega frá Póllandi, Hollandi, Ung­verja­landi, Frakk­landi og San Marinó. Ef við horfum út fyrir Evrópu bæt­ast svo Úrúgvæ, Bermúda og Curacao við, eins og mál standa í dag.

Að auki mun dóms­mála­ráð­herra fá, sam­kvæmt þeim laga­breyt­ingum sem mælt var fyrir á Alþingi í dag, heim­ild til þess að banna ónauð­syn­leg ferða­lög erlendra rík­is­borg­ara frá þessum ríkjum hingað til lands.

14 daga nýgengi smita yfir 750/100.000 íbúa

Allir komu­far­þegar frá löndum þar sem finn­ast svæði, eða héruð, þar sem 14 daga nýgengi smita er yfir 750 á hverja 100 þús­und íbúa eiga að meg­in­reglu að dvelja í fimm daga á sótt­varna­hót­eli. Hægt verður að sækja um und­an­þágu frá þessu ef fólk getur sýnt fram á að það hafi við­un­andi aðstæður til að halda sótt­kví, en und­an­þágu­beiðni þarf að ber­ast tveimur dögum fyrir kom­una til lands­ins.

Þetta myndi í dag gilda um þá sem koma frá Svíþjóð, Litháen, Eist­landi, Króatíu, Andorra, Ítalíu, Kýpur, Serbíu og Tyrk­landi. Ef horft er lengra út í heim mun þetta einnig gilda um þá sem koma frá Jórdaníu og Barein, eins og málin standa í dag.

[adspot]

Listi yfir þau lönd sem þetta á við mun lík­lega taka breyt­ingum strax á morgun, en þá verða birtar nýjar viku­legar tölur frá ECDC, sótt­varna­stofnun Evrópu.

En bíddu, er ekki miðað við 14 daga nýgengi yfir 500/100.000 íbúa í dag?

Jú, nefni­lega. Það er verið að hækka það við­mið um nýgengi smita sem í dag er nægi­legt til þess að sú meg­in­regla gildi að far­þegar sem á annað borð þurfa að fara í sótt­kví, fari í sótt­kví í sótt­varna­húsi, eigi þeir ekki kost á því að vera í sótt­kví í við­un­andi hús­næði hér inn­an­lands.

Allt í einu yrði 14 daga nýgengi smita upp á 500-750 á hverja 100 þús­und íbúa ekki nægi­lega hátt til þess að meg­in­reglan um sótt­varna­hús gildi. Til þess að setja þetta í sam­hengi hefur 14 daga nýgengi smita á Íslandi aldrei farið yfir 292 á hverja 100 þús­und íbúa lands­ins frá því að far­ald­ur­inn hófst.

Og hér á landi eru tekin mörg próf, miðað við höfða­tölu.

Læknar botna lítið í þessu

Þetta hefur verið gagn­rýnt í dag, meðal ann­ars af Magnúsi Gott­freðs­syni, yfir­lækni á Land­spít­ala og sér­fræð­ingi í smit­sjúk­dómum, sem sagði við RÚV að hann teldi veik­leika í útfærslu stjórn­valda. Hún væri án for­dæma, eftir því sem hann best vissi og stjórn­völd virt­ust svo­lítið vera að „leika af fingrum fram.“

Lækna­fé­lag Íslands sendi síð­degis í dag frá sér umsögn um hinar nýju skil­grein­ingar stjórn­valda og seg­ist gera „alvar­legar athuga­semdir við þá fyr­ir­ætlan íslenskra stjórn­valda að ætla að end­ur­skil­greina áhættu­mat sem alþjóð­leg sam­staða ríkir um og er við­mið í helstu nágranna­löndum okkar og grund­völlur sótt­varna­að­gerða innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins.“

Lækna­fé­lagið telur að ekki sé færður fram „nægj­an­legur rök­stuðn­ingur fyrir slíkum breyt­ingum“ og leggur til að stuðst verði áfram við hinar alþjóð­legu skil­grein­ingar á áhættu­mati sem ECDC styðst við og tekið verði mið af því í reglu­gerð ráð­herra.

Félagið telur einnig vert að nefna, í umsögn sinni til vel­ferð­ar­nefndar vegna laga­breyt­ing­anna, að far­sótt­ar­far­aldrar lúti ekki ósk­hyggju.

Umræða um breyt­ingar á sótt­varna­lögum og útlend­inga­lögum, sem eiga að skjóta stoðum undir þær breyt­ingar sem rík­is­stjórnin ætlar sér að gera, hefur staðið yfir á þingi í dag. Fjöldi gesta mun koma á fund vel­ferð­ar­nefndar til þess að fara yfir málið í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár