Tappað af lífeyrissjóðunum og hlutabréfamarkaðnum

Nokkur lækkun hefur verið á hluta­bréfa­mörk­uð­unum að und­an­förnu, bæði hér heima og erlendis. Losun hafta gæti minnkað eft­ir­spurn eftir hluta­bréfum.

Skörp lækkun hefur verið á hluta­bréfa­mörk­uðum að und­an­förnu, bæði erlendis og hér á landi. Eftir mikla ávöxtun í fyrra, þegar 43 pró­sent varð á hluta­bréfa­mark­aði hér á landi, gætu aðrir tímar verið framundan á árinu sem nú er nýhafið.

Félögin sextán sem skráð eru í Kauphöll Íslands lækk­uðu í verði í gær. Mest lækk­aði Icelandair, alls um 4,10 pró­sent, í 1.250 milljón króna við­skiptum. Skammt á eftir kom Marel, en bréf í félag­inu lækk­uðu um 4,04 pró­sent.

Áhyggjur af Kína og minnkandi eftirspurn

Alls lækk­aði úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar um 3,33 pró­sent á þessum eina degi. Frá ára­mótum hefur ávöxtun á mark­aðnum verið nei­kvæð um fimm pró­sent, sem allt annað og verra en árið í fyrra. Erlendis hafa rauðar tölur lækk­unar verið áber­andi víð­ast hvar, og má nefna að DAX vísi­talan þýska, sem sögu­lega sveifl­ast náið með útflutn­ings­iðn­að­inum í Þýska­landi, hefur lækkað um nærri fjórtán pró­sent það sem af er ári. Í Kína og fleiri Asíu­ríkjum hafa lækk­anir einnig verið áber­andi, en að mati flestra þeirra sér­fræð­inga, sem vísað hefur verið til í fag­fjöl­miðlum á sviði við­skipta og efna­hags­mála, þá fara áhyggjur fjár­festa af stöðu mála í Kína vax­andi. Minnk­andi umsvif þar draga úr eft­ir­spurn í heims­bú­skapnum, sem grefur undan hag­kerfum margra ríkja sem háð eru útflutn­ingi til Kína.

Haftamarkaðurinn Ísland

En Ísland hefur ekki fylgt stöðu mála á erlendum mörkuð náið á und­an­förnum miss­erum, og munar þar meðal ann­ars um að á Íslandi eru fáir erlendir fjár­festar inn á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, enda markast aðstæður af fjár­magns­höftum og hafa gert frá því þeim var komið á í nóv­em­ber 2008.

Lang­sam­lega umsvifa­mestu fjár­festar á íslenska mark­aðnum eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, en fjár­fest­inga­þörf þeirra nemur um 12 til 13 millj­örðum króna á hverjum mán­uði.

Nýlegar til­slak­anir Seðla­banka Íslands, á höft­unum til handa líf­eyr­is­sjóð­unum, gefur þeim mögu­leika á því að fjár­festa erlendis í meira mæli. Hinn 8. jan­úar síð­ast­lið­inn til­kynnti Seðla­bank­inn um að líf­eyr­is­sjóð­irnir gætu fjár­fest erlendis fyrir 20 millj­arða á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins. Í júlí í fyrra var líf­eyr­is­sjóð­unum veitt und­an­þága til erlendrar fjár­fest­ingar upp á tíu millj­arða á sex mán­uðum og dreifð­ist það yfir síð­ari helm­ing árs­ins.

Lands­sam­band líf­eyr­is­sjóða fagn­aði þessu sér­stak­lega, og sagði þetta jákvætt skref í átt að því að losa um höftin enn frekar.

Sé miðað við heild­ar­fjár­fest­ingar líf­eyrs­sjóð­anna á mán­uði, þá eru 20 millj­arðar umtals­vert stór hluti af fjár­fest­ingum þeirra til fjög­urra mán­aða, eða um 40 pró­sent. Ekki er ólík­legt að þessi til­slökun á höft­unum geti valdið því til skemmri tíma að veru­lega dragi úr eft­ir­spurn eftir hluta­bréfum á Íslandi, með þá til­heyr­andi lækk­un­ar­á­hrifum. Sé horft sér­stak­lega til vik­unnar sem liðin er frá því Seðla­bank­inn til­kynnti um til­slak­an­irnar frá höft­unum, fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina, þá hefur verð á hluta­bréfum á Íslandi lækkað nokkuð skarpt. Erfitt er að segja til um hvort til­slök­unin á höft­unum hafi þessi áhrif beint, en ekki er hægt að úti­loka það, enda hefur til­kynn­ing bank­ans ein og sér áhrif á fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­anir líf­eyr­is­sjóða.

Aðlögun framundan

Áformað er á þessu ári að losa um höftin enn meira, í sam­ræmi við áætlun stjórn­valda og Seðla­banka Íslands þar um. Það mun taka tíma fyrir íslenskan fjár­mála­markað að laga sig að breyttum og frjáls­ari aðstæðum, þegar losað verður um höftin. Líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem eru meðal stærstu hlut­hafa í nær öllum skráðum félögum á Íslandi, standa þá frammi fyrir krefj­andi verk­efnum um hvernig þeir stýra fjár­fest­ingum sínum.

Í ljósi þess hversu stórt líf­eyr­is­sjóða­kerfið er á Íslandi, í sam­hengi við þjóð­ar­búið, mun miklu skipta hvernig ákveðið verður að stýra fjár­fest­ingum þeirra á kom­andi krefj­andi tímum. Heild­eignir líf­eyr­is­sjóð­anna í lok árs­ins námu 3.200 millj­örðum króna, og juk­ust þær um tæp­lega tíu pró­sent í fyrra, ekki síst vegna mik­illar hækk­unar á virði inn­lendra hluta­bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár