Framsókn á flugi í borginni en meirihlutinn heldur

Flokk­arnir sem mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur gætu að óbreyttu end­ur­nýjað sam­starf sitt. Góðar líkur eru þó á ýmis­konar fjög­urra flokka mynstrum ef vilji er til að breyta.

Litlar breyt­ingar eru á heild­ar­fylgi flokk­anna fjög­urra sem mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur milli vikna. Sam­eig­in­legt fylgi Sam­fylk­ingar, Pírata, Við­reisnar og Vinstri grænna mælist nú 49,2 pró­sent sem er 0,6 pró­sentu­stigi minna en flokk­arnir mæld­ust með fyrir viku síðan. Þeir myndu halda sama fjölda borg­ar­full­trúa og þeir eru með nú, tólf tals­ins, sem dugar til að end­ur­nýja meiri­hluta­sam­starfið ef vilji er til.

Þetta er nið­ur­staða nýj­ustu kosn­inga­spár Kjarn­ans og Dr. Bald­urs Héð­ins­sonar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, sem fara fram 14, maí næst­kom­and­i.

Flokk­arnir fjórir mæl­ast með meira fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum 2018 þegar þeir fengu 46,4 pró­sent. Sú breyt­ing yrði þó á að einn borg­ar­full­trúi myndi flytj­ast frá Sam­fylk­ingu til Pírata en Viðreisn og Vinstri græn héldu sama fjölda borg­ar­full­trúa að óbreyttu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar tveimur borg­ar­full­trúum frá síð­ustu kosn­ingum og fengi sex, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem er án full­trúa í borg­ar­stjórn eins og er fengi þrjá og Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokk­ur­inn myndu halda sínum staka borg­ar­full­trúa hvor að óbreyttu.

Mið­flokk­ur­inn er í miklum vand­ræðum, mælist með hverf­andi fylgi og stefnir í að missa þann full­trúa sem flokk­ur­inn á nú í borg­ar­stjórn.

Sá borg­ar­full­trúi sem er í mestri hættu á að detta út er annar maður Við­reisnar. Annar maður á lista Sós­í­alista­flokks­ins er ansi nálægt því að slá hann út og fella þar með meiri­hlut­ann í borg­inni.

Samfylkingin bætir við sig milli vikna en er undir kjörfylgi

Sam­fylk­ingin er eini meiri­hluta­flokk­ur­inn sem bætir við sig fylgi milli vikna og fer úr 23 í 23,7 pró­sent fylgi. Það skilar henni sex borg­ar­full­trúum, fimm sem eru þegar borg­ar­full­trúar og Guðný Maju Riba, sem situr í sjötta sæti list­ans. Píratar standa nán­ast í stað og mæl­ast með 12,8 pró­sent fylgi sem myndi duga til að bæta Magnúsi Davíð Norðdahl við borg­ar­stjórn­ar­flokk þeirra sem þær Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, og Alex­andra Briem skipa nú þegar.

Viðreisn missir hálft pró­sentu­stig sem skilar þeim í 6,7 pró­sent fylgi. Borg­ar­full­trúar flokks­ins yrðu áfram sem áður þau Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir og Pawel Bartoszek.

Vinstri græn tapa mest meiri­hluta­flokka milli vikna, 0,6 pró­sentu­stigum, og mæl­ast með slétt sex pró­sent. Líf Magneu­dóttir yrði áfram eini borg­ar­full­trúi flokks­ins að óbreyttu.

Sjálfstæðisflokkurinn enn stærstur í borginni

Sá flokkur sem er á mestu flugi í borg­inni er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann beið afhroð 2018 þegar hann fékk ein­ungis 1.780 atkvæði í höf­uð­borg­inni sem skil­aði 3,2 pró­sent fylgi og engum borg­ar­full­trúa. Nú mælist hann þriðji stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík með 12,9 pró­sent fylgi sem myndi skila nýjum odd­vita, Ein­ari Þor­steins­syni fyrr­ver­andi frétta­manni, örugg­lega í borg­ar­stjórn ásamt Árelíu Eydísi Guð­­munds­dótt­­ur, dós­ent við Háskóla Íslands og rit­höf­und­i, sem skipar annað sæt­ið á lista flokks­ins, og Magneu Gná Jóhanns­dótt­ur laga­­nema sem situr í því þriðja. Framsókn bætir við sig 1,2 pró­sentu­stigi milli vikna.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur nokkurn veg­inn í stað og mælist með 25 pró­sent fylgi, sem er 5,8 pró­sentu­stigum minna en hann fékk 2018. Enginn einn flokkur í Reykja­vík hefur tapað eins miklu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó enn stærsti flokkur borg­ar­innar með 1,3 pró­sentu­stigi meira en Sam­fylk­ingin, sem sækir þó á milli vikna. Auk Hildar Björns­dótt­ur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins, myndu tveir sitj­andi og einn fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi ná inn ásamt vara­borg­ar­full­trú­anum Ragn­hildi Öldu Vil­hjálms­dóttur og vara­þing­mann­inum Frið­jóni R. Frið­jóns­syn­i.

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir næði ein inn fyrir Sós­í­alista­flokk­inn sem mælist með 6,4 pró­sent fylgi og Kolbrún Bald­urs­dóttir fyrir Flokk fólks­ins, sem mælist með 4,9 pró­sent.

Sanna Magdalena Mörtudóttir er nálægt því að taka einn mann til með sér í borgarstjórn fyrir Sósíalistaflokkinn.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er nálægt því að taka einn mann til með sér í borg­ar­stjórn fyrir Sós­í­alista­flokk­inn.

Mið­flokk­ur­inn er ansi langt frá því að ná inn manni. Fylgið mælist ein­ungis 1,5 pró­sent og undir fjórð­ungs­líkur eru á því sem stendur að Ómar Már Jónsson, nýr odd­viti sem tók við af Vigdísi Hauks­dóttur, setj­ist í borg­ar­stjórn að loknum kosn­ingum.

Margir möguleikar í stöðunni

Sam­kvæmt útreikn­ingum kosn­inga­spár­innar eru 47 pró­sent líkur á því að núver­andi meiri­hluti haldi velli og nái að minnsta kosti þeim tólf sætum sem þarf til að stjórna borg­inni. Líkurnar á því að Fram­sókn­ar­flokk­ur, Sjálf­stæð­is­flokkur og Við­reisn gætu myndað meiri­hluta að óbreyttu eru 26 pró­sent og lík­urnar á því að tveir fyrr­nefndu flokk­arnir gætu náð tólf borg­ar­full­trúum án Við­reisnar eru fimm pró­sent.

Hildur Björnsdóttir stefnir að því að verða borgarstjóri eftir kosningar. Mynd: Skjáskot/RÚV
Hildur Björns­dóttir stefnir að því að verða borg­ar­stjóri eftir kosn­ingar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Ef Fram­sókn­ar­flokk­num yrði skipt inn í stað Við­reisnar í meiri­hlut­ann eru 86 pró­sent líkur á að slíkur meiri­hluti Sam­fylk­ing­ar, Pírata, Fram­sóknar og Vinstri grænna næði meiri­hluta borg­ar­full­trúa. Ef Vinstri grænum yrði skipt út fyrir Við­reisn í þeirri jöfnu eru lík­urnar á meiri­hluta enn meiri, en slíkur meiri­hluti hefði 14 borg­ar­full­trúa miðað við nýj­ustu kosn­inga­spánna.

Flokk­arnir sem mynda minni­hlut­ann í borg­ar­stjórn í dag, að við­bættri Fram­sókn eiga litla mögu­leika á því að ná saman völdum í höf­uð­borg­inni. Lík­urnar á því að þeir þrír flokkar úr því mengi sem mæl­ast með mann inni nái að minnsta kosti tólf sætum eru sem stendur 16 pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokkur, Framsókn, Viðreisn og Flokkur fólks­ins eiga hins vegar, sem stendur meiri líkur á að mynda meiri­hluta en núver­andi borg­ar­stjórn­ar­flokkar, eða 49 pró­sent. Þá er ekki úti­lokað að mynda vinstri­sækn­ari meiri­hluta með því að skipta Viðreisn út fyrir Sós­í­alista­flokk­inn. Slíkur meiri­hluti, sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Pírötum, Fram­sókn­ar­flokknum og Sós­í­alistum á 45 pró­sent líkur á því að verða að veru­leika.

Kannanir í nýjustu kosningaspá fyrir borgarstjórnarkosningar 14. maí:

  • Skoð­ana­könnun Maskínu 22. – 29. mars (35,8 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 14. mars. – 10. apríl (64,2 pró­sent)

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ing­um. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­leg­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­um. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta bet­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­un­ar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unn­ar.

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár