Forsætisráðuneytið fær að koma að endurhönnun bygginga á Hafnartorgi

For­sæt­is­ráðu­neytið kemur að end­ur­hönnun á bygg­ingum sem for­sæt­is­ráð­herra gagn­rýndi harð­lega á dög­unum.

For­sæt­is­ráðu­neytið fær að hafa aðkomu að end­ur­hönnun bygg­inga á reitnum Hafn­ar­torgi í mið­borg Reykja­víkur, bygg­ingar sem for­sæt­is­ráð­herra hefur gagn­rýnt. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og Land­stólpum ehf. Land­stólpar, sem eiga reit­inn við Aust­ur­bakka 2, hafa boð­ist til þess að end­ur­skoða hönnun bygg­inga á reitnum í sam­ráði við for­sæt­is­ráðu­neytið og einnig boðið Stjórn­ar­ráði Íslands að leigja allt skrif­stofu­hús­næði á reitnum, alls 6.400 fer­metra.

Húsið er um ræðir er hið umdeilda hús gegnt Arn­ar­hóli, sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur meðal ann­ars gagn­rýnt útlitið á harð­lega. „Ef þarna yrði byggt með þeim hætti sem dregið hefur verið upp á þessum myndum yrði það lík­lega seinna álitið mesta skipu­lags­slys í miðbæ Reykja­víkur í seinni tíð og jafn­vel alla tíð,“ sagði hann við Morg­un­blaðið fyrir skömmu. Hann lýsti því yfir að hann teldi að end­ur­hugsa þyrfti frá grunni fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu, ann­ars stefni í óefni.

Lóðin hefur líka verið umdeild vegna hafn­ar­garðs­ins sem þar stóð og Sigrún Magn­ús­dóttir frið­aði sem starf­andi for­sæt­is­ráð­herra í októ­ber síð­ast­liðnum. Lending náð­ist í því máli með þeim hætti að Land­stólpar þurftu að fjar­lægja hafn­ar­garð­inn stein fyrir stein og svo verður hann settur upp aftur síðar. Land­stólpar hafa lýst því yfir að skaða­bætur verði sóttar í rík­is­sjóð vegna þessa kostn­aðar, sem met­inn er á hálfan millj­arð króna.

Guðni Rafn Eiríks­son, einn eig­enda Land­stólpa, segir að næstu þrjár vikur verði not­aðar til að skoða málin og reyna að finna lausn sem öllum aðilum hugn­ast. Það sé oft þannig að leigj­endur að nýbygg­ingum fái að hafa skoðun og áhrif á bygg­ing­arnar, jafn­vel útlitið. Það hafi verið sam­tal milli stjórn­ar­ráðs­ins og fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2014. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár