Risinn Costco hristir upp í markaðnum

Allt bendir til þess að banda­ríski smá­söluris­inn Costco muni hrista veru­lega upp í íslenska smá­sölu­mark­aðnum. Fyr­ir­tækið er um átt­falt verð­mæt­ara en allur íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn.

Innkoma Costco á íslenskan versl­unar- og heild­sölu­markað eru mikil tíð­indi og er greini­legt að mik­ils skjálfta gætir hjá sam­keppn­is­að­ilum. Formleg opnun er á morgun í Kauptúni klukkan 09:00.

En hvaða fyr­ir­tæki er þetta og hvers vegna gæti inn­koma Costco haft mikil áhrif á íslenska mark­aðnum?

1. Costco, í þeirri mynd sem nú þekk­ist, var stofnað árið 1983 í Seattle í Banda­ríkj­unum, en höf­uð­stöðv­arnar eru þar á svæð­inu, nánar til­tekið í Issaquah. Fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt og býður þeim sem eru með áskrift hjá Costco, betri verð á fjöl­breyti­legum vörum sem fyr­ir­tækið selur í stórum versl­unum sínum. Verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu er nú 76 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur upp­hæð sem er tæp­lega átta sinnum verð­meiri en allur íslenski hluta­bréfa­mark­að­ur­inn, eða um átta þús­und millj­örðum króna.

2. Hjartað í starf­sem­inni er í Banda­ríkj­unum þar sem yfir 500 vöru­hús á vegum fyr­ir­tæk­is­ins eru en 94 vöru­hús eru í Kanada. Í Evrópu eru 28 vöru­hús í Bret­landi en sam­tals eru þau nú 730 tals­ins, og stefnir félagið að miklum vexti á næstu árum.

3. Samtals eru 85 millj­ónir manna með Costco aðild­ar­á­skrift, miðað við stöð­una eins og hún var í lok árs í fyrra, en til sam­an­burðar þá eru Amazon Prime með­limir - sem greiða mán­að­ar­lega til Amazon - um 70 millj­ónir. Þessi tvö af stærstu og mest hratt vax­andi smá­sölu­fyr­ir­tækjum heims eru bæði með höf­uð­stöðvar á Seattle svæð­inu. Costco er þriðja verð­mætasta smá­sölu­fyr­ir­tæki heims á eftir Walmart og Amazon, sem er lang­sam­lega verð­mætasta félagið, með mark­aðsvirði upp á 460 millj­arða Banda­ríkja­dala.

4. Í krafti þess­arar miklu stærðar hefur félagið geta stundað hag­kvæm inn­kaup. Ekki síst það atriði gæti haft mikið að segja á Íslandi, þar sem félagið er nýtt á mark­aði á Íslandi og gæti nýtt sér það með því að bjóða mun lægra verð en aðrir - bæði heildsalar og versl­anir - þegar það er að koma sér fyrir á mark­aði. Samkvæmt frétt Stöðvar 2 frá því á laug­ar­dag þá hafa nú þegar, áður en versl­unin opnar form­lega, 35 þús­und keypt Costco aðild. Það þykir ein­stakt í sögu fyr­ir­tæk­is­ins, sé horft til hlut­falls af heild­ar­stærð mark­að­ar­ins.

5. Fyrstu vís­bend­ingar um verð­lagn­ingu benda til þess að inn­koma Costco gæti stuðlað að mik­illi lækkun á verðum á ýmsum vörum, þar á meðal á elds­neyti. Upp­hafsverðið er 169,9 krónur á bens­ín­lítr­ann en við­mið­un­ar­verðið í maí, hjá íslensku olíu­fé­lög­unum, hefur verið 195,5 krónur, sam­kvæmt bens­ín­vakt Kjarnans (les­endur eru hvattir til að fylgj­ast með henni). Í versl­unum Costco fást alls konar vörur. Bíldekk, sjón­vörp, mat­vara, lyf, áfengi í heild­sölu, leik­föng, hús­gögn, og raunar margt, margt fleira. Í krafti þessa fjöl­breyti­leika reynir Costco að bjóða sem mesta versl­un­ar­upp­lifun fyrir þá sem hafa Costco aðild.

6. Þrátt fyrir að Costco sé risa­vaxið á alla mæli­kvarða, í sam­an­burði við íslenska hag­kerfið, þá á eftir að koma í ljósi hversu mikil áhrifin af inn­komu fyr­ir­tæk­is­ins verða á Íslandi. Stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins, Hagar, var með árlegar tekjur upp rúm­lega 80 millj­arða í fyrra, en það rekur versl­anir á eftir þrjá­tíu stöðum um land allt. Costco er hins vegar aðeins með þessa einu veru verslun, og tak­markast áhrifin því þó nokkuð vegna þessa. En það er ekki síst á sviði heild­versl­unar fyrir fyr­ir­tæki þar sem áhrifin gætu orðið mikil. Aukin sam­keppni um verð, neyt­endum til heillar, er hins vafa­lítið það sem mun skipta mestu máli fyrir heim­ilin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár